Vikan - 24.05.1973, Page 4
Ef bi crt aö:
BYGGJA.
BBEYTA
EBA BÆTA
bá litti við í Ulaveri.
kví M hsfir ávant
traraai sio
— LITAVER
Símar 32262 - 30280 og 30480
Grnisásveoi 22 - 24
PÓSTURINN
Snyrting og hjúkrun
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær, sem langar
til að þakka þér allt gamalt og
gott, sem í Vikunni er. En á
okkur hafa legið þung íhugunar-
efni, og langar okkur að biðja
þig að gefa okkur fullnægjandi
svör. Hér kemur romsan:
1. Hvað tekur langan tíma að
læra andlitssnyrtingu?
2. Hvaða menntun þarf maður
að hafa?
3. Hvaða skóla þarf að
ganga í?
4. Hvaða einkunnir þarf upp úr
IV bekk til þess að komast í
þann V?
5. Hvað tekur langan tíma að
læra hjúkrun?
6. Hvert á að snúa sér til að fó
upplýsingar um þetta?
7. Er ekki heimavist við þennan
skóla?
Og að síðustu: Hvernig fara eft-
irfarandi stjörnumerki saman?:
Hrúturinn (stúlka) og Ijónið
(piltur), bogmaður (stúlka) og
tvíburar (piltur). Hvað lestu úr
skrift okkar? Með fyrirfram
þökk.
X & Z.
1., 2. og 3. Snyrting hefur verið
og er kennd eingöngu á snyrti-
stofum, en samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem okkur tókst a8
afla okkur, er mjög erfitt um
þessar mundir a8 komast að
sem nemi ó neinni þeirra snyrti-
stofa, sem Félag íslenzkra
snyrtisérfræðinga viðurkennir.
Tímalengd námsins er eitthvað
á annaS ár, og undirbúnings-
menntun hefur ekki þurft aðra
en skyldunámið. En ykkur er
bezt að leita ykkur nákvæmari
upplýsinga hjá Félagi íslenzkra
snyrtisérfræðinga eða einhverri
þeirra stofa, sem félagið viður-
kennir.
4. Það þarf aðaleinkunnina 6
og meðaleinkunnina 6 í sam-
ræmdu fögunum á gangfræða-
prófi, þ. e. í íslenzku I og II og
ensku, dönsku og stærðfræði.
5. Hjúkrunarnóm tekur 3 ár.
6. Til Hjúkrunarskóla íslands,
Eiriksgötu 34, Reykjavík.
7. Jú.
Hrútur og Ijón eiga vel saman,
sömuleiðis bogmaður og tví-
burar. Skrift bréfritara lýsir svo-
litlu óstöðuglyndi, en góðvilja
og kímnigófu einnig, hin rit-
höndin gefur til kynna smó-
munasemi og gott skaplyndi.
„Hættulegustu
gæjarnir"
Kæri Póstur!
Ég sé, að alls konar fólk leitar
til þín með vandamál sín og
fær greinargóð svör. Ég vona,
að þú sjáir þér fært að ráða
fram úr mínu líka. Þannig er
mól með vexti, að ég fór ó ball
um daginn og hitti þar strók,
sem ég hef lengi kannazt við og
verið mólkunnug sl. tvö ór.
Hann er 22—23 ára, en ég er 18
óra. Við vorum saman þetta
kvöld, en ég hef ekkert hitt
hann síðan og hef reyndar lít-
inn sem engan áhuga ó kauða,
því hann er trúlofaður og á
barn. En nú er svo komið, að ég
dauðskammast mín fyrir að hafa
komið nálægt drengnum, en ég
veit, að honum finnst þetta allt
í lagi. Mér finnst þetta mér að
kenna og að ég hefði átt að vita,
að þetta mundi koma fyrir, en
það er víst alltaf hægt að sjó
eftir hlutunum eftir á. En kæri
Póstur, það er svo auvirðilegt
að vera með giftum eða trúlof-
uðum strákum, þó þeir hafi ekk-
ert á móti því. Þetta eru allt
strákagrey, sem hafa óvart lent
í því að barna stelpur og síðan
þurft að giftast þeim. Þetta
mundi ég segja, að væru hættu-
legustu gæjarnir, hvað segið þið
um það? (Ath. mér datt ekki í
hug að sofa hjá stráknum, þó
svo hann færi fram á það, ein-
göngu hinnar vegna). Hvernig
er skriftin, og hvað lestu úr
henni? Virðingarfyllst.
Kata.
Ef Pósturinn kann yfirleitt að
iesa út úr bréfum það, sem fólk
meinar, þá er augljóst, að þú
hefur meiri áhuga á stráknum
en þú vilt viðurkenna fyrir sjálfri
þér eða öðrum, og það er það,
sem er vandamálið. En þú skalt
bara reyna að gleyma þessu,
það er búið og gert, og fyrst
þér finnst auvirðilegt að vera
með giftum eða trúlofuðum
strákum (sem Pósturinn er þér
4 VIKAN 21.TBL.