Vikan - 24.05.1973, Page 25
„Mér finnst Sally
mjög spennandi persóna
aft glima við.”
Ilelga æfir sig
á vióluna og Edda
leikur undir.
þú lékst i „Plógi og stjörnum?”
— Nei, i raun og veru ekki. Sally
myndi til dæmis aldrei viður-
kenna aðhún væri gleðikona. Hún
er fyrst og fremst söngkona, sem
ætlar sér mikinn feril og leggur
allt i sölurnar fyrir það. bess
vegna sefur hún hjá þeim
mönnum, sem hún heldur að geti
hjálpað henni á framabrautinni.
En svo kynnist hún Cliff, sem er
kominn til Berlinar til aö skrifa
skáldsögu. Hún verður ástfangin
af honum, og þau fara að búa
saman. Sally tekur miklum
breytingum á þessu timabili,
hættir að leika hlutverk heims-
konunnar, og þá kemur i ljós, að
hún er einlægur og barnalegur
stelpukrakki. Einmitt þessar
breytingar gefa tækifæri til fjöl-
breyttari túlkunar, og mér finnst
Sally mjög spennandi persóna að
glima við.
— Hvar lærðirðu leiklist, Edda ?
— Ég var i þrjú ár i Leiklistar-
skóla Leikfélags Reykjavikur.
— Varstu ánægð með þá
menntun, sem þú fékkst i
skólanum?
— Skólinn var náttúrlega ófull-
kominn miðað við það sem gerist
erlendis. betta var eingöngu
kvöldskóli og flestir unnu fulla
vinnu þar að auki.
— Datt þér aldrei i hug að fara i
framhaldsnám erlendis að loknu
námi hérna heima?
— Jú, mér datt það i hug. Ég
var meira að segja búin að sækja
um skólavist i Bretlandi, en þá
fékk ég hlutverk hjá Grimu, sem
var það freistandi, að ég timdi
ekki að sleppa þvi. Svo komu
fleiri hlutvérk og ekkert varð úr
utanlandsferð.
— Er eitthvað hæft i þvi, að
leikstjórar hafi gleymt þvi fólki,
sem farið hefur til leiknáms
annars staðar?
— Sú hætta er sjálfsagt fyrir
hendi. Og i og með hafði ég það i
huga, þegar ég tók hlutverkið
fram yfir utanlandsförina. Ég
held lika, að það sé mjög gott að
starfa svolitið heima áður en
farið er utan.
— Er ekki bagalegt fyrir leik-
listina, að enginn opinber leik-
skóli skuli vera starfandi á
landinu?
— Jú, það er alveg afleitt. bað
er jafnvel farið að bera á þvi nú
þegar, að það vanti yngstu kyn-
slóðina i leikhúsin.
— Hvað heldurðu um tilrauna-
skólann, sem nokkrir áhugasamir
ungir menn standa fyrir og hafa
rekið á eigin spýtur i vetur?
— bað er tvimælalaust mjög
góð tilraun. bessir krakkar hafa
veriö sérstaklega duglegir. betta
er jákvætt starf, sem þau eru að
vinna og mér finnst þau gera sér
skemmtilegar hugmyndir um
hvaða tökum leiklistarnám skuli
tekið.
— Gæti svona skóli starfað
samhliða opinberum skóla?
— Ég held að það ætti að vera
óþarfi, það væri i raun og veru
nóg að hafa einn skóla. bað
stendur til að stofna Rikisleik-
listarskóla og mér finnst alveg
sjálfsagt að hafa þessa krakka og
kennara þeirra með i ráðum við
skipulagningu hans.
— Mjög margir skólar stefna að
þvi, að stúdentspróf verði gert að
inntökuskilyrði i þá. Telurðu að
það væri æskilegt i væntanlegum
Rikisleiklistarskóla ?
— Alls ekki. Auðvitað þarf fólk
að hafa einhverja undirbúnings-
menntun, en ekki endilega
stúdentspróf.
— Hættirðu sjálf i menntaskóla
vegna leiklistarinnar?
— Ja, svona i og með. Ég var
búinn að fá áhuga á leiklistinni og
hafði hugsað mér að fara i
skólann og eins var ég orðin leið á
menntaskólanum.
— bú varst i tónlistarskólanum
á þessum árum?
— Já, ég lærði á pianó og spila
ennþá svolitið, sérstaklega hef ég
haft gaman af þvi að æfa með
systur minni sem spilar á viólu.
Ég hef spilað nokkrum sinnum
með henni á prófum i skólanum
og þá er ég miklu taugaóstyrkari
en hún.
— bú hefur dvalið erlendis i
vetur?
— Já, ég hef verið i Manchester
siðan um áramót.
— Hefurðu kynnzt eitthvað
leikhúslifi þar?
— Já, litillega. Ég var svolitið
óheppin, þvi að leikhúslifið var
frekar dauft þar seinnipartinn i
vetur. Annars er mjög góður
leikflokkur i Manchester, sem
heitir „Theatre 69” en hann hefur
einmitt verið á ferðalagi, svo að
ég hef ekki séð sýningar hjá
honum ennþá. En ég komst i
skóla um leið og ég kom út, leik-
listardeildina við háskólann. Mér
fannst það mjög skemmtilegt,
einkum vegna þess, að það var
svo ólikt þvi leiklistarnámi, sem
ég hafði verið i áður. bar er ekki
verið að þjálfa upp leikara, miklu
fremur leikstjóra, gagnrýnendur
og jafnvel kennara i leik-
húsfræðum. A vegum þessarar
háskóladeildar er skemmtiiegt
litið leikhús og þar eru oft afar
góðar sýningar, sem annaðhvort
háskóladeildin eða þá leiklistar-
skólinn i borginni standa fyrir. Ég
Framhald á bls. 35
4
«
«
21. TBL. VIKAN 25