Vikan - 24.05.1973, Qupperneq 37
Heimsfrægð hlaut Picasso, er
mynd hans „Guernica” var sýnd
á heimssýningunni i Paris árið
1937. Myndin er himinhrópandi
mótmæli gegn striðsrekstri.
Orsök hennar var harmleikur,
sem átti sér stað i bænum,
Guernica á norðurströnd Spánar.
Nazistar voru komnir til valda i
Þýzkalandi og voru staðráðnir i
að leggja undir sig heiminn.
Unnið var kappsamlega að smiði
vopna, sem hentug þóttu til
fjöldamorða. Flugvolar voru
búnar hriðskotabyssum og
sprengjum. Herforingjar sátu á
virðulegum fundum og ræddu um
það, hvernig beita mætti þessum
nýju vopnum með sem beztum
árangri. Þeir veltu fyrir sér, hver
viðbrögð venjulegra borgara
yrðu við árás úr lofti. Hér var um
nýjung að ræða og þvi ekki hægt
að svara spurningunni nema með
tilraun. Spánn varð fyrir valinu
vegna rikjandi ástands þar. Og
fórnardýr tilraunastarfsemi
nazistanna urðu saklausir ibúar
bæjarins Guernica. Þýzkar
orn’stuflugvélar steyptu sér yfir
bæinn. Kúlnahriðin var eins og
haglél. Fólkið hrundi niður á
götunum. Hvergi var griðastað að
finna, þvi að i kjölfar orrustu-
vélanna komu flugvélar hlaðnar
stórvirkum sprengjum.
Arásirnar endurtóku sig i kerfis-
bundinni röð, unz nær öllum
ibúum Guernica hafði verið eytt á
svipstundu. Tilrauninni var lokið.
Hún hafði heppnazt fullkomlega.
Andstæður einkenndu lif
Picassos. Hann varð snemma
milljónamæringur og lifði i vel-
lystingum, en var kommúnisti
alla ævi. Þó gagnrýndi hann
franska kommúnistaflokkinn
harðlega, þegar innrásin i
Ungverjaland var gerð.
Konur komu og fóru i lifi hans.
Frá 1911 til 1955 var hann kvæntur
rússnesku ballettdansmærinni
Olgu Chochlowa og áttu þau einn
son. Hann yfirgaf hana reyndar
árið 1935, þegar ástmey hans,
Theresa Walter, ól honum dóttur.
Eftir striðið bjó hann i áratug
meö málaranum Francois Gilot,
sem var fjörutiu árum yngri en
hann. Þau áttu tvö börn, Claude
og Paloma. Arið 1961 kvæntist
Picasso 1 annað sinn eftirlifandi
konu sinni, Jacqueline Roque. Þá
var hann áttræður, en hún aðeins
35 ára.
Hverjum augum leit Picasso
sjálfur list sina? 1 grein, sem
hann skrifaði og ber yfirskriftina
„Það sem lifiö hefur kennt mér”,
segir hann meðal annars:
„Allir reyna að skilja list.
Hvers vegna reynir enginn að
skilja fuglasöng? Hvers vegna
elskum við nóttina, blómin og alla
fegurðina umhverfis okkur, án
þess að hafa löngun til að
skilgreina leyndardóma hennar?
En þegar um listaverk er að
Þetta er eina vélin á
markaðnum með tvö-
földum flutningi, kostirn-
ir koma bezt í Ijós þegar
þarf að sauma köflótt,
röndótt eöa hál efni
KENNSLA
Allir skraut- og nytja-
saumar eru innbyggðir i
vélina — á tökkunum eru
myndir af saumunum og
þér ýtiö bara á takka til
að fá réttan saum.
Með aðeins einni skifu —'*
alhliða stilliskífunni—*
stillið þér sporlengd, spor-/
breidd, sporlegu
hnappagöt. Einfaldara
getur það ekki verið.
Kennsla í meðferð vélanna er að
| sjálfsögðu innifalin í verðinu. Þar að auki fylgir vandað-
* ur leiöarvísir á islenzku.
|ÞJÖNUSTA
I 44 ár höfum við flutt inn PFAFF
Verzlunin
* saumavélar og höfum því ekki efni á öðru en reyna að
i veita sem bezta viðgerða- og varahlutaþjónustu.
★ vV ★ W ★ vV ★ vV ★ ★ vV ★ v'? ★ vV ★ vV ★ W ★ vV ★ v"? ★ W ★ W ★ W ★ W ★ vV ★ W ★ vV ★ W ★■&★■&★★ W ★ ★ W ★ iV ★ ?V ★ vV ★ vV ★ vV ★ vV ★ vV ★ .
Skólavörðustíg 1-3
Sú fullkomnasta