Vikan - 24.05.1973, Qupperneq 44
MIDAPRENTUN
LátiÖ prenta alls konar aðgöngumiöa, kontrol-
númer, afgreiðslumiða og fleira á rúllupappír.
Eina prentsmiðjan á landinu, sem prentar
slíka miða. Höfum einnig fyrirliggjandi og
útvegum með stuttum fyrirvara ýmiss konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILNIR hf
Síðumúla 12 - Sími 35320
Elskhuga eftir eigin
geðþótta.
Það var fyrst, þegar guðstrú
fornaldar kom með sínar kröf-
ur um skírlífi, sem svolítið
brakaði í undirstöðum jafnrétt-
isins. En án þess að Ababa viti
það sjálf, þá togast Herrann og
drottningin af Saba ennþá á í
hugskoti hennar.
Hinn koptiski kristindómur
Eþiopiumanna er furðulegasta
blanda: Það má segja að þrír
hlutar séu kristni, tveir hlutar
gyðingatrú, smáskvetta af mú-
hameðstrú, annað eins af gam-
alli guðatrú Egypta og að lok-
um þó nokkur skammtur af
frumstæðri andatrú, sem kom-
in er frá flækingum af negra-
kynflokkum. Og drottningin af
Saba hefur látið konum af sín-
um kynstofni þetta frjálsræði í
arf, ekki eingöngu í fjárhags-
og viðskiptamálum, heldur iika
í kynferðismálum. Þær eru
jafnréttháar körlum á því sviði.
Þótt kristnin hafi komið á
einni hefð, sem hvergi má
kvika frá, sem sagt að það er
skýlaus krafa að unga stúlkan
sé hrein mey, þegar hún geng-
ur í hjónaband í fyrsta sinn.
Og nú var Ababa gift, hún
hafði greitt sína tíund til guðs.
Uppfrá því gat hún tekið sér
svo marga elákhuga, sem hana
lysti, ef hún aðeins gerði það í
leyni.
Fyrst í stað var unga konan
hlédræg og feimin og hún komst
fljótt að því að eina breyting-
in á högum hennar var að hún
hafði farið frá eldhúsi móður
sinnar í eldhús tengdamóður-
innar. Einn dagur af öðrum
leið, eins og perlur á bandi.
Aböbu leiddist og hún átti erf-
itt með að semja sig að siðum
tengdafólksins og lúta yfir-
gangi tengdamóðurinnar. Það
var fyrst eftir tveggja ára
hjónaband, þegar þau Georgis
fluttu í eigin kofa og urðu
sjálfstæð, að hún blómstraði
og fór að njóta samvistanna við
eiginmann sinn.
En eitt var það, sem kvaldi
hana: mánuðirnir liðu. hver af
öðrum og hún varð ekki barns-
hafandi. Stúlkum í Eþiopiu
finnst þær ekki vera fullgildar
eiginkonur, fyrr en þær hafá
fætt eieinmanni sínum barn.
En Ababa eignaðist ekki barn
og það varð henni mikil sorg.
Eiginmaður hennar var furðu
lostinn og tengdafólkið sat sig
ekki úr færi að sletta í hana
háðsglósum, en það stoðaði auð-
vitað lítið. Það leit líka út fyr-
ir að Georgis væri miður sín
vegna barnleysisins.
Eins og allir karlmenn bæj-
arins, fór Georgis oft í heim-
sókn í vændishús staðarins,
það var ekki nema rétt og
sjálfsagt og enginn hafði neitt
við það að athuga. Svo fór
hann að drekka og kom sjald-
an heim, svo Ababa sá ekki
eiginmanninn of oft og svo
kom að því að hann eyddi mikl-
um peningum í vín og spil og
það fór alveg með fjárhaginn.
Ef hann nennti að skokka heim
undir morgun, lagðist hann al-
drei til hvíldar, fyrr en hann
var búinn að lemja konu sína.
Um það leyti fór Ababa að
láta sig dreyma um myndar-
lega manninn, sem hún hafði
séð á kirkjutorginu forðum við
mas'kalhátíðina. Hún fór að
spyrjast fyrir um hann og komst
að því að hann hét Yaqob.
Hann var um fertugt og kvænt-
ur maður. Hann var umferðar-
sali, þess vegna sást hann svo
sjaldan í heimaþorpinu.
Og þótt undarlegt megi virð-
ast hitti Ababa hann aldrei,
þótt hún hefði nokkrum sinn-
um heyrt að hann hefði verið
á ferð í þorpinu. En í hvert
sinn, sem maður hennar hafði
lamið hana og ausið yfir hana
svívirðingum, lá hún grátandi
og reyndi að sofna og þá
dreymdi hana oft um hávaxna
manninn frá kirkjutorginu.
Eftir því sem tíminn leið, fékk
hún meiri andstyggð á drykkju-
rútnum, manni sínum og reyndi
að halda sig sem mest fjarri
honum.
Hún fékk sér líka elskhuga,
eiginlega frekar af þrjózku og
þeir urðu fleiri. En það varð
hún að gera með varúð, vegna
þess að Ababa var raunveru-
lega hrædd við eiginmanninn,
sem varð æ erfiðari.
Þannig gekk þetta í heilt ár
og Ababa var orðin sextán ára.
Um það leyti varð maðurinn
hennar sjúkur, og prestarnir í
Eþiopiu halda því fram að al-
varlegir sjúkdómar séu illum
öndum að kenna, svo að þess
vegna var sóttur prestur, til að
reka út þann ófögnuð. Hann
skvetti vígðu vatni á sjúkling-
inn, en allt kom fyrir ekki.
Georgis var veikur, en hann
vildi ekki deyja og gat ekki dá-
ið. Þá tók Ababa mikla ákvörð-
un, hún sótti um skilnað.
Þá fyrst vissi Ababa hvers
vegna hún hafði ekki verið
gift í kirkju. Hin kristna kirkja
hefur föst tök á hugarfari
bænda í Eþiopiu og þeir þekkja
bæði sjálfa sig og eðli eigin-
kvenna sinna. Og allir vita, að
ef kirkjuleg vígsla fer fram,
44 VIKAN 21.TBL.