Vikan - 24.05.1973, Page 51
Chicago-flugiö hefst 2. maí. Með því erum við komnir í einni
lotu vestur í miðríki Bandaríkjanna, þaðan, sem liggja gagn-
vegir til helztu íslendingabyggða í Bandaríkjunum og Kanada
og til stórborga svo sem Minneapolis, Los Angeles, San Fran-
cisco, Seattle, og Vancouver.
Nýtt landnám er hér með hafið í flugi Loftleiða. Stærstu ís-
lendingabyggðirnar í Bandaríkjunum og Kanada eru þar með
komnar nær islandi.
Kaupsýslumenn eiga tíðum erindi til Chicago og hinna stóru
iðnaðarborga í næsta nágrenni hennar. Chicago-flug Loftleiða
sparar þeim tíma og peninga. Ferðamenn í skemmti- og kynnis-
ferðum, sem sjá vilja það, sem helzt einkennir hið daglega
líf í Bandaríkjunum, eiga erindi til Miðríkjanna. Far er hin
eiginlega Ameríka, segja sumir.
Flogið verður fimm sinnum í viku milli islands og Chicago
beina leið í allt sumar.