Vikan - 22.08.1974, Page 2
leini Adams og var
allan hátt. En hún
i lifi Adams. Áund-
stkona hans, og hún
Evu.
Eva var gerð úr rifl
honum undirgefin á]
var ekki fyrsta konaí
an henni var Lilith
var alger andstæða
EVASAT
EIN AÐ
Allir vita hvernig það gerðist. Guð tók rif-
bein úr Adam og skóp úr þvi konu. Og Adam
sagði: „Þetta er loks bein af minum beinum
og hold af minu holdi: hún skal kárlynja kall-
ast, af þvi að hún er af karlmanni tekin.” Og
hana þekkjum viö — Evu bibliunnar — frem-
ur vitgranna og þolinmóða. Þannig hefur
hún verið fram á þennan dag. Formóðir allra
Evudætra, sem Adam rikti yfir.
Þessi undirgefna vera hefur til þessa dags
nánast verið kvenmynd eiliföarinnar — alltaf
til þénustu reiðubúin án allra launa. Stúlkur
áttu að lita á pilta sem sér æðri verur og sýna
af sér sanna undirgefni eins og Eva gerði. En
hvaða kona vill vera eins og Eva nú á tim-
um?
En allar konur, sem ekki vilja fara að
dæmi Evu, geta sótt sér fyrirmynd i bibliuna.
Þvi að guð hafði ekki einungis Evu i huga(
heldur einnig aðra konu. Hann skóp tvær
kvengerðir — við hlið Evu getur að finna
viljasterka og sjálfstæða konu, sem fór sinu
fram.
Biblian segir á tveimur stöðum frá sköpun
konunnar. Auk frásögunnar um rifbeinssköp-
unina (1. Mósebók 2.22.) er eldri frásaga um
það hvernig guð skapaði konuna. (1. Móse-
bók. 1.27.)
Þá sagði herrann: „Vér viljum gjöra menn
eftir vorri mynd, lika oss, og þeir skulu
drotna yfir fiskum sjávarins og yfir fuglum
loftsins og yfir fénaðinum og yfir villidýrunum
og yfir öllum skriðkvikindunum, sem skriða
á jörðunni.” Og Guð skapaði manninn eftir
sinni mynd... hann skapaði þau karl og konu.
Og Guð blessaði þau, og Guð sagði við þau:
„Verið frjósöm, margfaldist og uppfylli!
jöröina og gjörið hana ykkur undirgefna....’
Þá skapaði guð Lilith.
Adam var litt ánægður með þá skipan
mála. Hann leit á sig sem yfirvald og Lilith
átti að lúta vilja hans, en það gerði hún ekki.
„Ég er jafnrétthá þér,” sagöi hún, „þvi að
guð skapaði okkur um leið og úr sama efni.”
ADAM
Adam hlustaði ekki á hana og vildi rikja yf-
ir henni. Þar sem Lilith vissi sig vera i fullum
rétti, gat hún ekki auðmýkt sig og látið rikja
yfir sér, svo að hún yfirgaf manninn og settist
ein að viö Rauðahafið. Þar á hörðum klettun-
um við Akabaflóa hafðist hún siðan við og
veitti elgfróðum bliöu sina og lofaðist vindin-
um um nætur.
En biblian getur ekki um hana frekar.
Enda varð að gleyma þessari hættulegu veru
og bannfæra hana, þvi að engin kona mátti
fyrir nokkurn mun láta sér koma til hugar að
fara að dæmi hennar. 1 heilagri ritningu má
að visu lesa um næturgrýluna i Jesaja 34. 14.:
,,... það mun verða sjakalabæli og strúts-
fuglagerði. Urðarkettir og sjakalar skulu
koma þar saman, og skógartröll mæla sér
þar mót: næturgrýlan ein skal hvilast þar og
finna sér þar hæli”.
Fyrsta ástkona Adams, sem var á allan
hátt jafnoki hans, var þannig hrakin i útlegð
og talin vera af hinu illa. Aðeins Eva átti að
finna náð sem kvenfyrirmynd kynslóðanna.
Þvi að Eva lét karlmanninn ráða yfir sér án
þess að sýna hina minnstu mótspyrnu.
En ekkert gat gengið af Lilith dauðri,
hversu oft sem dauðadómur var annars
kveðinn upp yfir henni af lærðum og leikum.
Nú er Lilith komin út úr myrkviðnum og
farin að láta kveða að sér fyrir alvöru. Ný-
lega héldu nokkrir ungir leikarar leiksýningu
i Central Park i New York og tjáðu þar
sköpunina. Leikararnir þyrptust saman i
þéttan hóp, létu öllum illum látum — og út úr
þyrpingunni kom Lilith, mjög falleg, og
horfði i sólina. Einn leikaranna hóf upp raust
sina: „Lilith elskar náttúruna, jörðina, ást-
ina.” Og kórinn tók undir: „Engar konur eins
og Evu framar. Við viljum finna Lilith aftur,
vinu okkar, sem er jafnrétthá okkur og jafn-
oki okkar”.
Og þá brosti Lilith.
*
EKKI
2 VIKAN 34. TBL.