Vikan - 22.08.1974, Qupperneq 15
JAMESCAAN
Þegar James Caan var sex ára, var hann
næstum drukknaður i Candlewoodvatni.
En hálftfma seinna var hann kominn aft-
ur út á vatnið i báti. Nokkrum árum
seinna bjargaði hann systur sinni úr lifs-
háska. Hann hefur alltaf verið snarráður
og hefur aldrei kunnað að hræðast.
Litill drengur hljóp eins og fæt-
ur toguöu til aö ná i konu, sem ók
á undan sér barnavagni. — Frú
Caan! hrópaöi hann. — Þú verður
aö flýta þér. Jimmy er hjá lækn-
inum og það er ekkert nef á hon-
um lengur!
Konan sleppti 'barnavagninum
og hljóp eins hratt og hún gat á
lækningastofuna. Hún hikaði ekki
eitt andartak á biðstofunni, held-
ur flýtti sér beint inn i stofuna.
Hún nam staðar innan við dyrnar
og starði á lækninn og litla dreng-
inn, sem hann var að saumíTsam-
an i andlitinu. Læknirinn og
drengurinn litu rólegir á hana, og
siðan lauk læknirinn aðgerðinni.
Um leið sagði læknirinn kon-
unni, að einhver hefði kastað
blikkdós i andlitið á drengnum, og
hann hefði meiðzt töluvert.
Leikfélagar hans urðu skelf-
ingu lostnir, þegar þeir sáu blóðið
leka úr andliti hins tiu ára gamla
James Caan, en hann sjálfur var
hinn rólegasti og fór beint til
læknisins. Þegar frú Caan hafði
jafnað sig eftir mestu hræðsluna,
mundi hún eftir barnavagninum
og barninu, sem hún hafði skilið
eftir i honum.
James Caan sýndi það ljóslega
strax á barnsaldri, að hann var
gæddur óvenjulegu snarræði og
rólyndi. Einu sinni bjargaði hann
lifi Barböru systur sinnar, sem
hafði flækzt i snúru. I stað þess að
hlaupa eftir hjálp, sem kannski
hefði komið of seint, losaði hann
hana sjálfur.
Hann virtist alls ekki kunna að
hræöast, en mörgum foreldrum
veitist það hörð raun að ala upp
slik börn. Einu sinni var fjöl- i
skyldan i sumarleyfi við Candle-
woodvatn. Einn daginn var Jam-
es borinn heim til mömmu sinnar
i ullarteppi. Hann hafði verið
kominn að drukknun I vatninu og
var sagt að hvfla sig. Nokkrum
minútum seinna sá móðir hans,
að hann var horfinn. Hún leit út
og sá hann I báti úti á vatninu. Þá
var hann sex ára gamall.
Sólódansari þriggja ára gamall.
Foreldrar Jimmys hafa verið
gift I þrjátiu og fjögur ár. Móðir
hans er grannvaxin og aðlaöandi
ljóshærö kona, en faðir hans er
alvarlegur á svip meö hugsandi
augu. Sonur hans likist honum
meira.
— Jimmy hefur óvenjulega
skapgerð, segir móðir hans.
Hann er góður og gjafmildur.
Kannski hann sé of góðviljaður.
— Ég er mjög ánægður meö
drenginn, segir faöir hans, sem
hefur hætt verzlunarstörfunum,
en hann var kjötheildsali.
Jimmy er elztur systkina sinna,
en þau eru þrjú alls. Systirin Bar-
bara er næst elzt, en Ronny er
yngstur. t fjölskyldunni hefur
alltaf rlkt mikil eindrægni, og
börnunum hefur alltaf veriö inn-
rætt hve mikilvægt það sé, að fjöl-
skyldur haldi saman.
Og Caanfjölskyldan nýtur þess
að vera saman. Nú býr Ronny hjá
Jimmy og vinnur sem aðstoðar-
maður Jeikstjórans, sem Jimmy
leikur oftast hjá. Foreldrar
þeirra dveljast oft i nokkrar vikur
hjá sonum sinum.
— Við ólum þá upp með það
fyrir augum, að við yrðum alltaf
ein fjölskylda, segir faðir
Jimmys, — og þeir leyna okkur
aldrei neinu. Það var sama hvað
gerðist meðan þeir voru yngri,
þeir komu alltaf heim og sögðu
frá þvi. Enda gátu þeir lika alltaf
verið vissir um að fá styrk heima.
011 börnin þrjú fengu kennslu i
tónlist og dansi. Jimmy stóö sig
samt alltaf bezt þeirra. Hann
dansaði sóló á danssýningu, þeg-
ar hann var þriggja ára. Þá þegar
var augljóst, að Jimmy kunni vel
við sig á sviðinu.
Þaö hefur stundum verið sagt
um James Caan, 'að hann hafi
alizt upp i fátækt. Faðir hans and
mælir þessu. — A heimili okkar
hefur aldrei verið fátækt. Stund-
um hefur kannski verið litið um
peninga hjá okkur, en við höfum
aldrei liðið skort.
Sögurnar um að Jimmy hafi al-
izt upp I fátækt eiga kannski ræt-
ur sinar að rekja til þess, að
fyrstu hlutverkin, sem Jimmy
fékk, voru hlutverk götustráka.
Fæddur leikari.
Foreldrarnir vilja gjarna tala
um tónlistarhæfileika sonar sins.
Hann hefur góða söngrödd og
leikur á mörg hljóðfæri — gitar,
saxófón, pianó og harmóniku.
Gitarinn hefur hann með sér hvert
sem hann fer. Jimmy er greind-
ur, en hefur ekki mikinn áhuga á
skólamenntun. A skólaárum sin-
um eyddi hann tlmanum frekar
við að spila körfubolta, baseball
og rugby en við aö lesa lexiurnar
sinar. Hann virtist vera gæddur
alls konar hæfileikum. Meðal
þess, sem vakti athygli I fari
Jimmys, var framúrskarandi
hæfni hans til aö tala sig út úr érf-
iðum kringumstæðum. Faðir
hans hafði svolitlar áhyggjur af
þessu. Hann geröi sér ekki ljóst,
að sonur hans var fæddur leikari.
Jimmy var vinsæll bæöi af
drengjum og stúlkum. Fyrsta
vinkona hans var frænka hans,
sem hét Ellen. Þau Voru reyndar
óaðskiljanleg frá þvi þau voru
börn. En Jimmy átti eftir að
koma auga á fleiri stúlkur, og
hann kom alltaf með þær heim til
fjölskyldunnar.
Fjölskylda Jimmys hvatti hann
aldrei tií þess aö verða leikari.
Sextán ára gamall hóf hann nám
við Michigan State University, en
eftir tveggja ára r^m þar gerði
hann sér ljóst, að námið þar var
ekkert fyrir hann. Hann ætlaöi að
verða leikari. Þegar hann setti
loks kjark i sig og ræddi um þetta
viö foreldra sina, sagðist faöir
hans aldrei hafa heyrt annað eins
og að hann vildi heldur, að hann
yröi múrari eða trésmiður en
leikari.
En Jimmy var ákveðinn.
— Ljúktu að minnsta kosti
menntaskólanáminu, ráðlagði
faöir hans honum.
— Nei, ég ætla að hætta i skól-
anum, sagði Jimmy ákveðinn.
Þeir héldu áfram að ræöa þetta,
unz faðir hans samþykkti fyrir-
ætlanir sonar sina.
— Allt I lagi, sagði hann, — en
ef þú verður ekki tekinn inn I leik-
listarskólann, ætlarðu þá að fara
aftur I menntaskólann.
Jimmy hét þvi. Og faðir hans
varð ekki sérlega hrifinn, þegar
hann var tekinn inn I skólann. En
fjölskylda Jimmys þurfti ekki að
kosta hann til náms. Hann vann
fyrir sér, meðan hann var að
læra, með alls konar vinnu.
Hann kom i fyrsta skipti fram i
sjónvarpi I The Nurses. A eftir
þeirri mynd kom Naked City,
Play of the Weeks og fleiri. 1
fyrstu fékk hann bara smáhlut-
verk, en hann hafði vinnu hvað
sem öðru leið.
Einn daginn kom Jimmy heim
til foreldra sinna og gerði þau al-
varlega hissa.
— Ég þarf aö segja ykkur svo-
litiö, sagði hann. — Ég gifti mig I
gærkvöldi.
— Nú, sé þaö búið og gert, get
ég ekki gert neitt nema óskað þér
til hamingju, sagöi faðir hans.
Foreldrar Jimmys þekktu
stúlkuna, sem hann hafði kvænzt.
Hún hét Dee Jay og var leikkona.
Hjónabandið entist I fjögur og
hálft ár. Hún er enn i miklu vin-
fengi vib foreldra Jimmys þrátt
fyrir skilnaðinn.
En meðan þau voru gift fóru
þau til Hollywood til að freista
gæfunnar. Þar fór Jimmy aö
berjast til frama i kvikmynda-
heiminum. Fyrsta stóra hlut-
verkið fékk hann árið 1963 — þá
lék hann glæpaforingja. 1 þeirri
mynd lék engin minni en Olivia
De Havilland á móti honum.
"Siían lék hann i milli tiu og
tuttugu myndum, áöur en hann
vakti heimsathygli I Brians Song
og Guðföðurnum.
Þráttfyrir velgengnina I kvik-
myndaheiminum hefur Jimmy
ekki látið draga sig inn i glitrandi
samkvæmislif kvikmyndafólks-
ins. Hann stundar Iþróttir eftir
sem áöur og er sérstaklega hrif-
inn af hestum. Hann hefur heldur
ekki misst áhuga sinn á konum.
Núverandi vinkona hans er play-
boykanina, sem heitir Connie
Kerski, og foreldrar hans segja,
að hún sé afbragðs stúlka. Þeir
hafa alltaf orðið hrifnir af stúlk-
unum, sem Jimmy hefur kynnt
fyrir þeim.
Móðir Jimmys hefur safnað öll-
um blaðaúrklippum um son sinn,
sem hún hefur komizt yfir. Hún á
hundruð úrklippa og enginn vafi
leikur á þvi, að hún er stolt af syni
sinum.
Baráttan til frama.
Það kann að lita svo út, að
James Caan treysti á guð og lukk-
una I öllu, bæði daglegu lifi og
hvað varöar framtiðina. En bar-
áttan upp á toppinn hefur verið
afar hörð. Samt sem áður hugsar
hann ekki um morgundaginn.
Hann hefur sjálfur sagt, aö hann
ætli að lifa i sólskininu þangað til
fari að rigna.
James Caan er sannur atvinnu-
maður i leiklistinni og vinnur hlut
verkin mjög vel, áöur en mynda-
tökur hefjast. Svo biður hann
stutta bæn um að allt fari vel.
Það er kannski b-;í að þakka,
hvað hann tekur starf sitt alvar-
lega, að frægðin hefur ekki stigið
honum til höfuðs. Hann tekur
frægöina ekki sérstaklega alvar-
lega. Þó að honum færi aö vegna
verr I kvikmyndaheiminum, er
engin hætta á þvi að hann skriði i
felur.
Hjónabandshamingjan varði
ekki lengi. — Opinberlega, segir
hann, — stóö hjónabandið I f jögur
og hálft ár, en i rauninni var þvi
lokið eftir viku.
Frá þessu hjónabandi á hann
sjö ára gamla dóttur.
James Caan hefur alltaf litiö
svo á, að allir eigi að reyna aö
hafa eins mikið út úr lifinu og þeir
geta. Þvl hefur hann farið eftir
alla ævi, bæði á björtum og dökk-
um stundum llfsins. Hann telur,
að lifiö sé ekki mikils viröi, ef fólk
hafi ekki hæfileikann til þess að
njóta þess.
*
34.TBL. VIKAN 15