Vikan - 22.08.1974, Page 16
— Jeff, mér þykir þaö mjög
leiöinlegt... sagði Marie Felcott
afsakandi, — en ég er hrædd um,
aö ég geti ekki komiö I kvöld.
— Af hverju ekki? sagði Jeff
Howard og strauk sér óánægöur
um háriö. Hann var ritari i
iþróttafélaginu og ábyrgur fyrir
dansæfingunum á föstudags-
kvöldum. Marie var alltaf vön að
hjálpa honum við aö smyrja
brauöiö og hita kaffið. Og svo
geröi hún sér litið fyrir, hringdi
og sagðist ekki geta komið I
kvöld.
— Þú ert þó ekki lasin, Marie?
— Nei, það er bara af þvi að
ég... ég þarf aö gera svolitið ann-
að I kvöld.
■ — Hvað þá?
Þaö var þögn svolitla stund, en
svo sagði hún lágt.
— Æ, þarna kemur mamma
niður stigann.. ég held hún þurfi
að hringja.
— Hún hefur áreiðanlega tima
til þess að biða i fáeinar minútur,
sagði Jeff. — Marie, þú veröur að
segja mér hvaö þú ætlar að gera i
kvöld. Þú getur ekki svikið mig
svona.
— Mér þykir það mjög leitt,
Jeff, en kannski einhver önnur
geti tekiö að sér að sjá um kaffið.
Letty Masters, til dæmis?
Af hverju stakk hún upp á
Letty? hugsaði hann. Var það af
þvi að hann hafði dansað svo mik-
ið viö hana siðast?
— Biddu við, Marie...
— Nú verð ég að hætta, Jeff. Ég
vona, að þetta gangi vel. Vertu
sæll.
Hún lagði tólið á og Jeff staröi
undrandi fram fyrir sig. Hvaö var
eiginlega að henni? Hann flýtti
sér i klúbbinn til þess að undirbúa
dansæfinguna, en hann gat ekki
hætt að hugsa um Marie.
Hvert ætlaði hún að fara i
kvöld? Og þaö sem meira máli
skipti — með hverjum ætlaði hún
að fara?
Hann reyndi að muna viö
hverja hún hafði dansað á siðustu
dansæfingu. Þeir voru áreiðan-
lega ekki margir, þvi að hún hafði
haft meira en nóg að gera við
kaffið og brauðið.
Og auk þess, sagði hann við
sjálfan sig, voru þau Marie bara
góðir vinir. Hann haföi engan rétt
til þess að vera að skipta sér af
þvi með hverjum hún fór út.
En hugsunin um hana hvarf
ekki frá honum og hann var enn
aö hugsa um hana, þegar hljóm-
sveitin byrjaði aö spila og pörin
þyrptust út á gólfið.
Letty Masters kom til hans, ör-
ugg með sjálfa sig.
— Halló, Jeff! kallaði hún glað-
lega. — Heyriröu hvað þeir eru að
spila? Sjeik! Það er eftirlætis-
dansinn minn. Komdu! Otá gólfið
með þig!
Hann hristi höfuðið. — Þvi mið-
ur hef ég ekki tima til að dansa.
Ég verð að sjá einn um veiting-
arnar.
— Ég hélt, að Marie Felcott
gerði það alltaf.
— Já, en... hann yppti öxlum. —
Hún þurfti að fara annað I kvöld.
— Þvieréghissaá. Ég á við, aö
hún er alltaf svo þegjandaleg.
Hver skyldi hafa boðið henni út?
— Ég veit það ekki, sagöi Jeff
kuldalega. — En ég þarf að fá ein-
hvern til þess að hjálpa mér.
— Talaðu við einhverja þeirra,
sem alltaf sitja. Letty kastaði
ljósu hárinu til. — Ég er komin
hingaö til að dansa, ekki til þess
að bera kaffi og brauð i fólkið.
Andstyggilegt af Marie Felcott aö
svikja þig svona.
Hann þagði og hugsaöi um
Marie. Hún var alltaf svo róleg og
dugleg og var fús til þess aö eyða
fristundum sinum við að hjálpa
honum i klúbbnum.
Kannski hann hefði ekki átt að
lita á það sem svona sjálfsagðan
hlut, hugsaði Jeff. Og nú hafði
hún greinilega hitt einhvern ann-
an og það var hans eigin sök, að
hann hafði misst hana.
Klúbburinn var aðaláhugamál
hans og hann rak hann næstum
upp á eigin spýtur. Hann sá um aö
skipuleggja Iþróttakeppnir og úti-
legur og hafði komiö dansæfing-
unum á til þess að fá peninga til
starfseminnar. Hann bjó næstum
i klúbbnum og nú datt honum allt
i einu I hug, að kannski hefði
Marie ekki haft neitt á móti þvi að
hann byði henni út við og viö.
En það hafði alltaf liíið svo út,
að hún heföi gaman af þvi að vera
honum til aöstoðar og I rauninni
haföi hann aldrei hugsað um hana
nema sem stúlku, sem alltaf var
boöin og búin til þess aö rétta hon-
um hjálparhönd, þegar hann
þarfnaðist þess.
Hún var lagleg — þvi var ekki
að neita — en honum hafði aldrei
dottið i hug að segja það við hana.
Hann hafði bara alltaf reiknað
meö þvl, að hún væri til staöar,
þegar hann hefði not fyrir hana.
En núna, þegar hann var að
reyna aö smyrja brauðið eins og
Marie geröi það, áttaði hann sig á
þvl, að kannski sæju hana fleiri
ungir menn en hann. Hún var ung
og grönn og hafði skinandi
kastaniubrúnt hár og blá augu,
sem leiftruðu, þegar hún brosti.
— Af hverju ertu svona fúll á
svipinn? sagði striönisleg rödd.
Það var Letty, sem kom inn i eld-
húsið. — Er það út af Marie?
Hann kinkaði kolli. — Já, ég
sakna hennar.
— En þú getur verið viss um, að
hún saknar þin ekki, sagði Letty.
— Hættu að hugsa um hana og
reyndu að skemmta þér!
En af einhverri ástæðu gat
hann ekki skemmt sér. Það var
hræðilegt að hugsa sér Marie með
einhverjum öðrum.
Ef hann fengi bara tækifæri til
þess aö sýna henni, að honum stóð
svo sannarlega ekki á sama um
hana.
Það rigndi, þegar hann gekk
heim á leið. Hann minntist allra
föstudagskvöldanna, þegar hann
hafði fylgt Marie heim eftir að
hún hafði hjálpaö honum við að
taka til eftir dansæfingarnar.
Nú var þvi lokið. í framtíðinni
myndi hún hafa skemmtilegri
hluti til að eyða timanum við.
Hann bretti upp frakkakragan-
um og gekk gegnum bæinn, fór
framhjá kvikmyndahúsinu og
niöur að leikhúsinu.
Sýningunni var löngu lokið, en
meðfram veggnum stóð hópur
unglinga, sem reyndi að skýla sér
fyrir rigningunni.
Það var greinilegt, að þau stóðu
I biöröð til þess að ná I miða á
popptónleikana annað kvöld, en
þaö átti ekki að opna miðasöluna
fyrr en klukkan tiu morguninn
eftir.
Hann furðaði sig á þolinmæði
þeirra, en sjálfur hafði hann eng-
an áhuga á popptónleikum. Hon-
um hefði aldrei dottið I hug að
eyöa heilli nótt i það að biða eftir
miðum á tónleika einhverrar
popphljómsveitar.
Hann ætlaði að ganga beint
framhjá hópnum, en nam staðar,
þegar hann kom auga á stúlku,
sem hann kannaðist viö. Hann leit
við og horfði á hana — grann-
vaxna stúlku með heklaða húfu og
Iregnkápu.
Hún hafði lokuð augun og hall-
aði sér upp að veggnum. Þaö var
eins og hún væri sofandi.
— Marie, hvislaði hann.
Hvað i ósköpunum var hún að
gera i þessari biðröð? Hann sá
engan ungan mann nærri henni,
bara nokkra unglinga, sem hún
var greinilega ekki með.
Haföi Marie eytt öllu kvöldinu
þarna?
Honum létti svolitið. 1 fimm
langar klukkustundir haföi hann
liðið sálarkvalir og Imyndað sér,
að hún væri einhvers staðar með
öðrum, en svo gekk hann fram á
hana, þar sem hún stóð og beið
eftir þvi að fá miða á tónleika hjá
popphljómsveit.
Nú skildi hann af hverju hún
haföi ekki viljað segja honum
hvað hún ætlaði að gera um
kvöldiö. Hún var hrædd um, að
hann myndi hlæja að henni.
Hann gekk til hennar. — Halló,
Marie, sagði hann lágt. —
Skemmtiröu þér vel?
Hún opnaði augun. Hún þurrk-
aði regnið framan úr sér og svo
brosti hún til hans.
— Ó, það ert þú, Jeff? En gam-
an aö sjá þig. Hvernig gekk i
klúbbnum?
— Þaö er þér vist nokkuð sama
um, sagði hann afundinn.
— Þú metur popptónlist greini-
lega öllu meira en mig.
— Það er óréttlátt af þér að
segja þetta, Jeff...
— Jæja? Hvers vegna i ósköp-
unum ætlarðu þá að standa hérna
i alia nótt til þess að fá miða á
tónleikana? Ég hélt þú værir
skynsamari en svo, Marie.
— Þú... þú skilur þetta ekki.
— Nei, það geturðu verið viss
um, aö ég geri ekki. En ef þú ert
svona hrifin af þessum siðhærðu
angurgöpum, þá skaltu bara elta
þá á tónleikaferðinni. Vertu ekki
að hugsa meira um klúbbinn.
— Jeff Howard, viltu hlusta á
mig! Fölt andlitið roönaði af
reiði.
— Ég sé, að þú ert móögaður af
þvi að ég skuli ekki vera eins og
klukka eins og ég er vön. Klukka,
sem vaskar upp fyrir þig!
— Það var ekki þess vegna,
sagði hann afsakandi. — Ég hélt,
að þú værir úti með einhverjum
öbrum og... ég var alveg að tapa
mér af afbrýöisemi.
— Er það satt, Jeff? hvíslaði
hún hissa. — Er það virkilega
satt?
— Já, sagöi hann. — Og nú hef-
uröu fengiö það, sem þú vildir. Ég
skal viöurkenna, að ég hef litið á
það sem sjálfsagðan hlut, að þú
hjálpaöir til I klúbbnum, en ég
hélt þó ekki, að þú gætir komið
svona andstyggilega íram.
— Jeff, viltu leyfa mér að út-
skýra þetta? Ég...
— Það er alveg óþarfi. Þér leið-
ist I klúbbnum og mér reyndar
lika. Nú drögum við strik yfir
hann og gleymum honum. Góða
skemmtun annað kvöld.
Hann stakk höndunum i vasana
og hélt áfram heim á leiö, reiður
og vonsvikinn. Nú skyldi hann
gleyma þvi, að hann heföi nokk-
urn tima kynnzt stúlku, sem hét
Marie Felcott.
Auðvitað gat Maríe farið,hvert sem hún
vildi fyrir honum. Þau voru bara góðir
vinir.
16 VIKAN 34. TBL.