Vikan - 22.08.1974, Page 29
un, ef ég sé aö ég hef
haft rangt fyrir mér.
40. Ég er geöug(ur) kona
(maöur).
41. Happasælar tilviljan-
ir hafa litlu máli skipt i
llfi mínu.
42. Mér þykir gaman aö
fara á fætur á morgn-
ana.
'43. Mér veitist erfitt aö
notfæra mér annaö
, fólk.
44. Lif mitt er fullkomiö.
45. Ég sé um mig.
46. Annaö fólk er afundiö
, , viö mig.
47. Ég haga mér aö eigin
geöþótta.
48. Ég hef sjaldan iörast
geröa minna.
49. Flestir, sem ég þekki,
eru verra fólk en ég.
50. Þegar ég lendi i vand-
ræöum, hjálpa vinir
minir mér.
Meira en 160 punktar:
Þú værir hreinasta plága á um-
hverfi- þinu, ef þú værir eins ör-
ugg(ur) með þig og þú heldur.
Sannleikurinn er sá, aö viö úr-
lausn prófsins hefuröu metið þig
sjálfsöruggari en þú i raun og
veru ert. Punktafjöldinn bendir
til þess, að þú sért nýlega orð-
in(n) ástfangin(n), eöa hafir
unniö stóra vinninginn i happ-
drættinu. Ef svo er — þá hjart-
anlega til hamingju! En þrátt
fyrir þaö kæmi ekki aö sök, að
þú hættir aö lita svona stórt á
þig og gæfir meiri gaum aö
kjörum og vandamálum ann-
arra.
130 til 159 punktar:
Þú ert mjög bjartsýn(n) að
eölisfari, en þó stenduröu alltaf
báöum fótum á jöröinni. Þú hef-
ur rika sjálfsvitund, ert svolitiö
roggin(n) og mjög starfsglöö
(glaöur). Þér fellur fátt eins illa
og að láta aöra skipa þér fyrir
verkum og ert viss um eigin
hæfni til aö ráöa þér sjálf(ur).
öörum veitist erfitt að hafa gott
af þér og hafirðu einu sinni gert
skyssu, legguröu þig alla(n)
fram viö aö bæta úr henni.
100 til 129 punktar:
Þú ert ágætlega ánægð(ur) meö
sjálfa(n) þig og starf þitt, en þér
hættir til aö leiöa óþægilega
hlutb hjá þér i staö þess aö
spyrna gegn þeim. Þú ert raun-
sæ(r), en þú lætur þó áreynsl-
una af að losna úr erfiöum
kringumstæðum vaxa þér um of
i augum. Reyndu að hafa meiri
áhrif á gang lifsins i staö þess aö
vera áhorfandi.
70 til 99 punktar:
Þú hefur ekki of mikið sjálfsálit
og það veiztu lika vel sjálf(ur).
Kannski hefuröu orðiö fyrir ein-
hverju áfalli og þaö er reyndar
sennilegasta skýringin á þvi
hvaö niöurstaöa þessa prófs er
óhagstæö þér. Þú ert þreytt(ur)
og leiö(ur) á lifinu og finnst þaö
engan tilgang hafa. Reyndu að
ihuga kringumstæöurnar. Hve-
nær varstu siðast ánægö(ur)?
Hvaö olli þeirri ánægjutilfinn-
ingu? Horföu á sjálfa(n) þig og
reyndu aö horfast i augu viö erf-
iöleikana. Og svo skaltu reyna
aö taka þig á og rifa þig upp úr
þessu vonleysi.
Minna en 70 punktar:
Þú þarft á hjálp að halda! Þú
getur þaö tæpast upp á eigin
spýtur — aö minnsta kosti ekki
sem stendur. Ef þú getur ekki
leitað á náðir neinna vina,
þarftu á læknishjálD aö halda.
j
34. TBL. VIKAN 29