Vikan - 22.08.1974, Page 35
SKÓGINN
Framhalds
saga
9 hluti
Hugsanir hennar voru allar i upp-
námi, en mest gætti þar þó
hræðslu. Þvi að hugsunin um
Latimer og Carol fannst henni
eins og einhver ósigur. Hún lá
þarna og harmaði það, að heim-
urinn handan við skóginn skyldi
geyma konur, sem voru álika
veraldarvanar og töfrandi og
Carol — konur, sem auk þess
höfðu mikla fegurð til að bera. Og
henni hafði mistekist að halda i ó-
breyttan sveitastrák. Nú fannst
henni þessi uppreist Viktors
standa milli sin og umheimsins —
halda henni frá Latimer. Þvi að ef
henni mistækist með Viktor, fengi
hún sömu útreiö hjá Latimer.
Viktor var ómerkilegur og einskis
virði, enda þótt hann hefði hjálp-
að henni til að þola nokkur drep-
leiðinleg ár. En hvað sem hann nú
kynni að vera, þá yrði hún að ná i
hann aftur, ekki með fyrirskipun-
um og ónotum, heldur fá hann til
að meta hana meir en Carol, eða
nokkra aðra konu i heiminum.
Hún heyrði hann koma aftur og
rétti úr sér. Viktor kom gegn um
kjarrið, inn i litla rjóðrið og setti
vatnsilátin niður og tók að
kveikja upp. Þá stóö hún'upp og
gekk til hans. Þegar hann rétti sig
upp, iðaði hún fyrir framan hann
og brosti inn i ljósblá augun hans.
— Ég hef saknað þin svo mikið,
Vikki. Hún lagði hendurnar á axl-
ir hans. — Þú þarft ekki að láta
eins og þú hatir mig.
— Ég hata þig ekki, Rósa.
Hvernig geturðu sagt þetta?
Varirnar skulfu og hálsinn og
kinnarnar voru kafrjóðar. Hún
spennti greipar um hnakkann á
honum.
— Ég verð hér kyrr eftir að
Carol er farin. Þvi máttu ekki
gleyma. Hún dró höfuöið á honum
fastar að sér og bauð honum
varirnar. Og þá fann hún, sigri-
hrósandi, að varir hans snertu
hennar varir, að hann skalf allur
og armur hans vafðist hikandi um
hana.
Hún hvislaði: — Þú hefur ekki
gleymt...Hún hló meö sjálfri sér
og nú var stoltiö hennar komið á
sinn rétta stað. Þaö hafði verið
bjánaskapur að vera að efast.
Hún lagði höndina mjúklega á
kinnina á honum. — Það er gott
að láta þig halda á sér. Hvers-
vegna höfum við ekki gert þetta
oftar,4iér áður?
----Af þvi að þig langaði ekkert
til þess, sagði hann blátt áfram.
— Mig langaði til þess. En ég
var bara hrædd um, að það væri
rangt. — En svo er mér farið að
þykja vænna um þig.
Hann myndaði sig til að kyssa
hana aftur, en hún hörfaði undan.
Ef þú ert ennþá að
velta fyrir þér vetrarferð
til Kanarfeyjanna
væri réttast
að láta Úrval
taka frá sæti
Brottför: lengd: komudagur:
31. október 3 vikur 22. nóvember
21. nóvember 3 vikur 13. desember
12. desember 2 vikur 27. desember
19. desember 3 vikur 10. janúar
26. desember. 3 vikur 17. janúar
9. janúar 2 vikur 24. janúar
16. janúar 4 vikur 14. febrúar
23. janúar 2 vikur 7. febrúar
straxi
Brottför: lengd:
6. febrúar 3 vikur
13. febrúar 3 vikur
27. febrúar 3 vikur
6. marz 3 vikur
20. marz 2 vikur
27. marz 3 vikur
17. apríl 2 vikur
1. maí 3 vikur
komudagur:
28. febrúar
7. marz
20. marz
28. marz
4. apríl
18. apríl. .
2. maí
23. maí
FERÐASKR/FSTOFAN IESSZ>
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
Hringið, komi&skrifið
Vinsamlega endurnýjió eldri pantanir.
34. TBL. VIKAN 35