Vikan - 22.08.1974, Side 37
— Nei, ekki almennilega, sagði
hann.
Hún stakk hendinni inn á hann,
undir skyrtunni, svo að fingurnir
snertu hlýtt brjóstið á honum
Carol horfði i eldinn. — Hvað
það snertir að eiga hérna heima,
þá ætti ég hægt með það. Ég likist
honum pabba á þvi sviði. Eini
munurinn er sá, að hann leitaði til
skóganna til þess að losna við
lifið. Ef ég verð hér kyrr, er það
ekki af þvi að mér finnist lifið of
erfitt til að lifa þvi, heldur vegna
þess, að hér er ég ánægð með allt.
Hann Vikki segir mér — hér leit
hún til hans en svo fljótt af honum
aftur —að i Hollenzka dalnum þar
sem'nann á'néima, geti þ'eir ekki
haldið i barnakennara lengur en
árið. Mér hefur dottið i hug að
sækja um stöðu þar. Ég hefði
gaman af þvi og yrði auk þess að
einhverju gagni. Og þegar við
pabbi fórum i bæinn, komum við i
stofuna hjá Moline lækni, og hann
sagði okkur, að hann hefði von um
að geta komið upp dálitlum
spitala. Og bærinn hefði fulla þörf
á þvi.
Rósa svaraöi, hálfreið: — Það
.verður ekkert úr þvi. Bara kjaft-
æði.
Elgur sagði: — Já, vist er það
kjaftæði. Hann var einusinni með
stórar ráðagerðir, en þeim var
bara ruglað fyrir honum. Hollust-
an við Rósu varð þyngri á metun-
um en hollustan við fólkið.
— Vertu ekki að kenna mér um
það, sagði Rósa. — Ekki gerði ég
hann svona.
— Þú hefur gert þér smáheim
úr honum. Qg þú gerir honum lifiö
óbærilegt af þvi aö heimurinn
þinner of smár.
Rósa hló og svaraði: — Hann er
nú að smástækka. Hún dró hönd-
ina undan skyrtunni á Viktor og
tók að fitla við eyrað á honum. —
Jæja, Vikki, það er orðið langt
siðan við höfum verið ein okkar
liðs. Við skulum fara og labba
svolitið. Ég hef nokkuð að tala um
við þig. Viktor hreifði sig ekki.
Höndin á henni hélt áfram aö
gæla við hann og strauk um
kinnina á honum. — Ég þarf að
tala við þig strax. Komdu! Hún
togaði ofurlitið i hárið á honum.
Hann stóð upp um leið og hún.
Hún gat séð, að hann var bæði
tregur og i vandræðum. — Hvað
er á seiði!
— Ég ætla að segja þér nokkuð,
sem þig hefur lengi langað til að
vita
Hún hélt i höndina á honum og
leiddi hann burt frá eldinum.
Þegar hún kom að saman vafða
teppinu sinu, beygði hún sig niður
og tók það upp. — Ef það skyldi
kólna, sagði hún, svo hátt að hin
mættu heyra.
Elgur og Carol horfðu á þau
hverfa út i myrkrið. Þegar ekkert
heyrðist til þeirra og ekki annað
en snarkið i eldinum öðru hverju,
sagði Carol: — Til hvers er hún að
þessu. Hvað eru þau að fara!
— Hún varð að gera þetta. Þú
kipptir undan henni stoðunum
með þvi að taka hann Viktor frá
henni.
— En hvað er eiginlega á seiði
og hvert ætla þau?
— Hann Viktor er I þann veginn
aö missa sveindóminn. Carol
stóð upp. — Fari þetta alltsaman
fjandans til!
— Róleg, Carol. Ef þetta er
svona, þá er það bara svona. Allt
fer eins og það á að fara.
— En honum Viktor þykir
ekkert vænt um hana. Hann er
hræddur við hana. Hann heldur,
að hann verði að gera hvað sem
hún skipar honum. Og ég vil ekki
láta þetta verða.
— Hann þarf að læra að ákveða
sig sjálfur.
— Ég er að segja þér, að hann
langar ekkert til aö komast yfir
hana.
Allt i einu greip hún riffilinn
sinn og fór að skjóta af honum
upp i loftið, þangað til siðasta
tóma skothylkið féll til jarðar.
Bergmálið að skothvellunum
barstdauft til baka. Elgur sagði:
— Ef þú getur kallaö hann til baka
með þessari skothrið, er þetta
ekki sérlega alvarlegt.
— Ég vildi bara gefa honum
átyllu til að fara frá henni.
— Þú þekkir hana Rósu. Hún
getur verið býsna þrá.
Það kom ekkert svar utan úr
myrkrinu. Elgur sagði: — Og ég
hélt lika, að hún væri isköld.
Carol sparkaði hálfbrunnum
bút inn i miðjan eldinn og neistun-
um rigndi niður. Hún settist hjá
föður sinum.
— Pabbi, ég hef aldrei vitað,
hvað mér þykir vænt um hann
Viktor fyrr en nú. En fjandinn
hafi það. Það er skammarlegt af
henni að gera mér þetta
Hún verður að bjarga stolti
sinu. Það er það, serri heldur
henni lifandi. Ef þér á annað borö
þykir vænt um hann, breytir þetta
engu.
— Jú, vist breytir það miklu.
Þaö kemur hann, eftir að önnur
hefur fleygt honum frá sér. Þú
heldur sjálfsagt, aö þetta sé bara
stolt, en stoltið er nú einn hluti
ástarinnar.
— Elskarðu hann þá? spurði
Elgur.
— Ég veit ekki, en ég held það
nú samt.
— En ef þú nú giftist honum.
Mundirðu þá fara burt með hann!
— Nei, hann yrði hvergi heima
hjá sér nema hérna.
— Ef hann verður hér kyrr, þá
veiztu hvernig lif þetta verður.
Hann á nokkrar ekrur af mösur-
skógi sjálfur. Það þýðir sama
sem að ryðja landið. Þrældómur
ár eftir ár og siðan rækta jörðina.
Heilt ævistarf.
— Ég er ekkert hrædd við það.
Ég treysti mér vel i það, ef ég
elska hann. Ég er ekkert
metorðagjörn. Ég vil eiga börn —
mörg börn. Ég teklifiö eins og það
kemur fyrir. Rósa er með orm i
hjartanu, en það er ég ekki.
— Ég þekki nú ekki tilfinningar
ungrar stúlku. En láttu ekki hana
Rósu koma neinum ormi inn i
hjartað i þér. Þessi
reynsla....hann verður að full-
orðnastskilurðu. Það kann allt að
vera fyrir beztu.
— Það getur það ekki orðið, ef
það gerir mig alveg eyðilagða.
— Við skulum fara að sofa.
34. TBL. VIKAN 37