Vikan - 22.08.1974, Qupperneq 39
Rósa sneri ekki heim á leið,
þegar Viktor var farinn, heldur
gekk inn i verzlunarhverfið,
áleiðis til stofu læknisins. Hún var
i prýðilegu skapi. Þegar hún var
orðin ein, fann hún enn betur til
þessa sigurs sins yfir Carol. En
það var ekki fyrst og fremst
sigurinn yfir stúlkunni, sem kætti
hana, þvi að hún kunni mikið
fremur vel við Carol, heldur var
það sigurinn yfir efasemdunum,
og staðfestingin á mikilvægi sinu
sem konu. Hún hafði
hendurnar i vösunum og göngu-
lagið var eins og hjá hressilegum
strák. Fingurnir á annarri
hendinni fitluðu við seðla-
hrúguna, sem Larson hafði greitt
henni. Þetta voru hennar pening-
ar og hugsunin um þá hressti
hana við.
Moline læknir sagði: — Ég var
farinn að undrast um þig.
— Fórstu nú enn að gera þér
áhyggjur.
— Nei, sagði hann. — Ég hafði
engan tima til þess. Gamli
maðurinn, sem ég var að segja
þér frá, er nú farinn. Hann verður
jarðaður á morgun. En svo varð
málrómurinn liflegri: — Það er
gott, að þú skulir vera komin
aftur. Hún sá alveg á svipnum, að
hann langaði mest til að taka utan
um hana og draga hana að sér, en
væri hræddur um, að hún mundi
slita sig lausa. — Hvernig gekk
með skinnin?
— Elgur og Viktor náðu i
tuttugu. Ég var að selja honum
Larson þau.
— Sélja þau? En hvernig fer þá
með kápuna?
Hún varð vond að þurfa að auð-
mýkja sig með útskýringum á
þessu. Hún hafði gert það, sem
hún vildi gera, og vildi ekki
standa undir neinum ásökunum
um glæp.
— Ég vil kaupa mér kápu, og
geti ég það ekki, kæri ég mig ekki
neitt um hana.
— En kápa kostar mörg
hundruð dali og þvi höfum við
ekki efni á...
— Dóttir hans Elgs getur
fengið allar þær loðkápur, sem
hún kærir sig um. En ég, kona
helzta manns bæjarins; verð að
snikja til þess að fá eina kápu. Þú
átt ekkert stolt til en það á ég.
— Hlustaðu nú á, Rósa. Þú
getur fengið hvað sem þú vilt og
ég get útvegað þér. En ég hef
bara ekki efni á miklu. Ég vil að
þú fáir þessa kápu, sem þig
langar i. En hvern skilding, sem
mér áskotnast, verð ég að leggja
til hliðar, til þess að greiða niður
þetta hús og svo húsið okkar
heima. Það fellur í gajlddaga i
haust, og ég vil geta greitt eitt-
hvað svolitið meira en vextina
eina.
— Já, þú kjaftar þig alltaf frá
þessu. En ég á dálitla peninga. Nú
var hún orðin bálvond og það að
sjá hann, svona auðmjúkan og
afsakandi, kynti enn undir reiði
hennar. — Ég þarf að fá nýja
kápu. Taukápu. Ég á nóg fyrir
henni Og ég vil fá eitthvað af
fötum. Ég vil komast burt úr
þessum hundsrassi.
— Þú ert nú nýbúin að ferðast.
Ég hélt, að þessi litla ferð mundi
draga eitthvað úr óánægjunni hjá
þér.
— Að þrælast gegn um
skóginn! Kallarðu það að komast
burt? Ganga þangað til ég er
alveg að hniga niður, og það
kallarðu feröalag. Ég vil fara til
Chicago. Og ég vil fá föt,
almennileg föt, svo að mér finnist
ég ekki vera einhver ræfill.
Hann sagði, rétt eins og hann
hefði ekkert heyrt af þvi, sem hún
var að segja: — En þú ert miklu
hressari og kátari núna, Rósa.
Rétt eins og þú hefðir lifað eitt-
hvaö skemmtilegt.
— Ég hef aldrei lifað neitt
skemmtilegt. En nú ætla ég að
gera það. Ég vil fara til Chicago,
fá mér almennileg föt og
skemmta mér dálitið.
— Ég veit það. Ég vildi líka
gjarna, að viö gætum fariö.
— Nei, ekki við. Bara ég. Ég vil
sleppa burt héðan.
Framhald i næsta blaði.
Vogar-
mcrkið
24. sept. —
23. okt.
Þú hefur lengi haft
áhuga á sérstöku
starfi og ætlar að gera
eitthvaö i sambandi
við það. Þú skalt samt
ekki hafa þig of mikið i
frammi, það borgar
sig ekki. Vinur þinn er
sár út i þig, gerðu eitt-
hvað til að kippa þvi i
lag. Helgin verður
bráðskemmtileg.
Dreka-
merkið
24. okt. —
23. nóv.
Sambýlisfólki þinu
finnst þú vera of
kröfuharður og það
veldur leiðindum. Þú
ættir að skoða hug
þinn og kippa þvi i lag.
Þú ættir aö bjóða til
þin góðum vinum á
fimmtudag. Þú færð
bréf um helgina, en
það kemur þér á
óvart og gerir þér
gramt i geði.
Bogmanns-
mcrkið
23. nóv. —
21. des.
Þú skait ails ekki taka
neinar örlagarikar
ákvarðanir þessa
viku, ef þú getur
frestað þvi. Þú skalt
taka varlega tilboði
um vinnu, athuga
fyrst hvort hún hentar
þér. í vikulokin ferðu i
stutt en mjög
skemmtilegt ferðalag.
22. des. —
20. jan.
Þú hefur verið að
velta fyrir þér vanda-
máli undanfarið, en ef
þú gætir betur að,
sérðu að þú hefur haft
á röngu að standa. Ef
þú hagar þér eftir þvi,
þá áttu lika skemmti-
lega daga framundan.
Heillatala 5.
21. jan. —
19. fehr.
Þú hefur vanrækt
bréfaskriftir
undanfarið, en þú
skalt sem fyrst svara
áriðandi bréfi, sem
getur haft áhrif á
framtið þina. Þriðju-
dagur verður þér
heillarikur, mjög
óvænt. Þú ættir að
nota hann vel,
sérstaklega i við-
skiptamálum.
20. febr. —
20. marz
Þig hefur lengi langað
til að kynnast
ákveðnum hópi
manna, en vertu ekki
of ágengur. Góður
vinur ráðleggur þér
heilt og þú skalt fara
að ráðum hans.
Peningamálin veröa
erfið hjá þér þessa
viku.
34, TBL. VIKAN 39