Vikan - 27.11.1975, Page 60
w cr
, ,Þegar tvær hersveitir eigast við, gera
bogaskytturnar fyrstu atlöguna til þess
að riða fylkingum andstæðinganna.
Þegar bogaskytturnar eru búnar með
allar sínar örvar, grípa þær til örva
andstæðinganna.
Valiant virðir fyrir sér bogastrenginn.
,,Bogi kemur að engum notum, ef
örvarnar passa ekki við strenginn,”
útskýrir hann fyrir Odo.
Valiant útskýrir hugmynd sína fyrir
aðalhernaðarsérfræðingnum. Síðan er
farið að búa allt til bardaga.
íbúar Þessalrigu eru nú farnir að líða fyrir hungur og
þorsta vegna umsátursins.
Svikarinn Dupuy stendur frammi fyrir Bella Grossi: ,,Herra
ég hef sannfært Odo prins um, að hann eigi að gefast
upp. Þeir munu fallast á hvað, sem þér dettur i hug,
því að þeir eru illa undir bardaga búnir.”
Odo er óttasleginn og á báðum áttum.
,,Hver voru síðustu orð föður þíns?”
spyr Valiant. „Berjist,” svarar Odo.
,,Og hvað segir þú?” spyr Valiant enn.
Loks verður maður úr Odo. ,,Við
berjumst! ’ ’ öskrar hann.
Bella Grossi fær svar við spurningu sinni
um uppgjöf: ,,Aldrei hefur óvina-
þjóð stigið fæti inn fyrir borgarmúra
Þessalrigu. Og feitir sjóræningjar munu
ekki gera það heldur.' ’
Næsta vika-ViIltar gæsir sendiboðar.
60 VIKAN 48. TBL.
Bella og menn hans ganga að borgar-
hliðunum og bíða þess, að Þessalrigu-
menn gefist upp.