Vikan - 27.11.1975, Side 61
Allir þeir, sem sáu kvikmyndina
A Touch of Class í Hafnarbíó fyrir
nokkrum mánuðum, minnast áreið-
anlega Georges Sega), en hann fór
einmitt með annað aðalhlutverkið
þar. Á móti honum lék Glenda
Jackson, svo kvikmyndahússgestum
var ekki I kot vísað, meðan A
Touch of Class, eða Vottur af glsesi-
brag eins og myndin var kölluð I
íslenskri þýðingu, varsýnd.
George Segal lék ótrúan eigin-
mann í þessari mynd, en I raun-
veruleikanum hefur hann verið ham-
ingjusamlega kvæntur Marian konu
sinni t ein fimmtán ár, og ekkert
bendir til annars en hjónabandið
endist í fimmtán ár til viðbótar að
minnsta kosti.
Gorge var nýlega spurður að því,
hvað honum fyndist um framhjá-
hald. Hann færðist undan þvt
að svara í fyrstu og sagðist aðeins
veta leikari. ,,Leikari leikur sitt
hlutverk, segir setningarnar, sem
honum eru lagðar í munn, en það er
ekki í hans verkahring að leggja
siðferðilegt mat á hlutverk stn.”
George var ekki látinn komast af
með þetta svar, heldur spurður að
þvt, hvort hann teldi hjónaband geta
staðist þó að annar aðilinn væri
ótrúr.
,,Áreiðanlega”,' svaraði hann.
,,Það er alltaf hægt að bjarga hverju
sem er, en báðir aðilar verða þá
að vilja bjarga því. Til þess þarf
kjark. Auðvitað þarf líka kjark til
þess að slíta hjónabandi, en hitt
krefst enn meiri kjarks. Hjónaband
getur staðist allt mögulegt, ef bæði
hjónin neita að gefast upp fyrir erfið-
leikunum.”
En hvernig ætli heimilislífið hjá
þeim George og Marian sé?
,,Hér áður var ég alltaf spenntur
og æstur í skapi, þegar ég var heima.
Ég gat ekki slakað á heima og haft
ekkert sérstakt fyrir stafni. Mér
fannst ég alltaf þurfa að fara út að
gera eitthvað. Nú hefur mér lærst
að hvtla mig heima, og stðan hefur
mér vegnað miklu betur í kvikmynd-
unum. Á kvöldin, þegar við hjónin
komum heim, förum við bæði inn í
svefnherbergið og syngjum. Börnin
(þau eiga tvö börn, Elizabeth tólf
ára og Polly níu ára) renna á hljóðið,
og svo syngjum við öll saman stund-
arkorn. Á eftir ltður okkur öllum
vel, við erum laus við eril dagsins
og getum notið kvöldsins sameigin-
lega. Kannski þykir öðrum sem við
látum eins og vitleysingar, en þetta
hefur góð áhrif á okkur öllI!
48. TBL. VIKAN 61