Vikan - 04.12.1975, Qupperneq 80
annað en sitt eigið skip. Marianne
hafði afgreitt hann eins og hvern
annan „sjóræningja.” Það var fyrir
ofan hennar skilning, að ríkisarfi
Englands, maður, sem einhvern tíma
yrði konungur sjálfur, skyldi geta
umgengist mann, sem dirfðist að
mæta til brúðkaups í stígvélum. En
þrátt fyrir vanþóknun sína mundi
hún nafn hans. Hann hét Jason
Beaufort. Francis hafði haft orð á
því á sinn venjulega værukæra hátt,
að hann væri kominn af góðri fjöl-
skyldu frá Karólínu, afkomenda
frönsku hugenottanna, sem hefðu
orðið að flýja til hins nýja heims
eftir ónýtingu tilskipunarinnar í
Nantes. Marianne grunaði hins
vegar mann sinn um að taka óeðli-
lega jákvæða afstöðu til allra, sem
voru í náðinni hjá prinsinum.
,,Þrátt fyrir útlitið, þá er þetta
heiðursmaður.
Þctta var lokadómurinn, sem hafði
hrotið af fíngerðum vörum Francis.
En samt var Marianne engan veginn
á sama máli. Þótt framkoma hans
væri í alla staði óaðfinnanleg, þá
andaði einhverju ógnvekjandi frá
honum, sem gerði hana órólega.
Hún hafði snemma vanist hinni
ótömdu ástríðu veiðigleðinnar og
hafði því þann vana að líkja mann-
fólkinu við dýr, sem hún elskaði.
Francis minnti hana á góðhest, en
Jason Beaufort var meira I ætt við
ránfugl. Hann hafði djarfan vanga-
svip fálkans, augun haukfrán, en
I mjóslegnu andliti hans leyndist
einhver hættulegur lífskraftur. Jafn-
vel grannar brúnar hendurnar, sem
komu fram undan hvítu ermalíninu,
minntu á ránfuglsklær, en blá, skær
augu hans gátu slegið hvern sem var
út af laginu. Á meðan á athöfn-
inni stóð hafði Marianne stöðugt
fundið þetta óþægilega augnaráð
hvíla á hálsi sér og öxlum. Þrátt
fyrir eðlislægt hugrekki sitt hafði
hún forðast að mæta því.
En nú, er hann horfði á hana,
brosti hann. Handan við skakkt
bros hans komu í ljós snjóhvltar
tennur. Marianne þrýsti hönd eigin-
manns síns. Hún hataði þetta
ísmeygilega, ágenga bros, sem fékk
hana til þess að blygðast sln, og henni
fannst eins og ameríkaninn gæti
séð stelpulegan llkama hennar og
að fötin væru ekki annað en gegn-
sær hjúpur. Hún meira að segja
titraði, er hann gekk frá glugganum
og kom I áttina til hennar vaggandi
göngulagi sjómannsins. Hún Ieit
undan og þóttist ekki taka eftir
honum.
..Leyfist mér að óska yður innilega
til hamingju?” Letileg rödd amerlk-
anans barst úr ^vo líúlli fiarlægð,
að henni fannst hún finna heltan
andardrátt hans á hálsi sér.
Fyrir siðasakir snéri hún sér við,
en hún lét Francis það eftir að
svara honum. Hvlt hönd hans tók I
hina brúnu hönd Jasonar. ,,Vissulega
kæri vin! Hamingjuóskir góðs vinar
eru mikils virði, og ég veit, að þú
mælir þetta af heilum hug. Getum
við treyst þvl, að þú verðir hér um
kyrrt?”
,,MIn er ánægjan.”
Blá augun hvlldu á strekktu andliti
Marianne . Honum var það greini-
lega fullljóst, að hún hafði óbeit á
honum, og það var engu líkara en
hann hefði gaman af. Þó hafði hann
vit á þvl að halda sér I skefjum.
Hann hneigði sig fyrir hinum ungu
brúðhjónum, um leið og þau snéru
sér að hertoganum af Avary og de
Talleyand-Périgord, er hafði komið
sem fulltrúi Loðvíks 18. til heiðurs
þeirri konu, sem hafði misst báða
foreldra sína, er ógnarstjórnin hafði
komist til valda I Frakklandi.
Þessir tveir menn stóðu dálítið
afslðis og ekki laust við að þeir
væru dramblátir á að líta, eins og
þeir væru að bæta sér upp vonlausa
aðstöðu hins landflóttamanns með
tinguaphune
ÞO getur lært nýtt tungumál á 60 tímum
5jSt-CO 0[USZ.
ícuxtobus
LíNGUAPHONE tungumálanámskeió
á hljómplötum og kassettum
LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt
tungumál á sambærilegan hátt og þú læróir íslenzku.
Þú hlustar, þú skilur og talar síóan. Þú hefur meófædd-
an hæfileika til aó læra aó tala á þennan hátt. A ótrú-
lega skömmum tíma nemur þú nýtt tungumál, þér til
gagns og ánægju. — Þetta er RÉTT og ÞÚ getur
sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu
upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió
ákvöróun, — sertdum vió þér linguaphone námskeió
í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra.
Hljóófærahús Reykjavíkur- Laugav.96 -sími 13656
Plivelli
En í dag þarftu mun meira og Olivetti hefur MUN meira.
Hjá Olivetti á Islandi vinna skrifvélavirkjar - þjálfaóir hjá Olivetti erlendis.
Þeir, ásamt sölumönnum, aóstoóa vióskiptavini vió val á vélum og veita fús-
lega allar ráóleggingar, sem vióskiptavinurinn þarf.
Til þess aó heyra alla söguna, skaltu hafa samband vió Olivetti á Islandi
Vió erum í símaskránni og veróum þar einnig á morgun.
olivelti
SKRIFSTOFUTÆKNI hf. Tryggvagötu - Box 454 - Sími 28511
i ......... ................... /