Vikan

Issue

Vikan - 04.03.1976, Page 29

Vikan - 04.03.1976, Page 29
fUANME hvort frænka Ellis Sclton fclli undir einhvcr ákvæði þeirra. Embættismaðurinn sagði hcnni að Compas d’Or væri ágætis gisti- hús. Sjálfur ætlaði hann að dvclja á Cheval Vert, en þar hafði bylt- ingarmaðurinn Danton gist eftir komu sína frá Arcis-Sur-Aube. Því miður væri beðið eftir honum, annars hefði honum verið mikill heiður að því að fylgja mademoi- selle Mallerousse á Compas d’Or, en henni væri fyllilega óhætt að treysta burðarmanninum, hann hefði sjálfur margsinnis notið að stoðar hans. Hann var meira að segja svo hugulsamur að segja henni hversu mikið hún ætti að greiða manninum. Því næst tók hann ofan bifurskinnshúfu, sem hann var mcð á höfðinu, hneigði sig og sagðist vona að þau ættu eftir að hittast áður en langt um liði. Síðan hvarf hann í mann- þröngina og Marianne bjóst til þess aðelta burðarmanninn. ,,Er langt til gistihússins?” ,,Tíu mínútna gangur, mm’selle. Aðeins spölkorn niður Tiquetonnc- götu og þá erum við komin þang- að. En bíðið aðeins á meðan ég spenni regnhlífina, ella verðið þér gegnblaut áður en við komumst á leiðarenda.” Burðarmaðurinn var kraftalegur, rauðhærður náungi, hýr á svipinn og hann lét ekki standa við orðin tóm. Hann spennti út stóra regn- hlíf og leiddi Marianne út á götu. J BENZONI Það voru fáit á ferli. Sennilega lagðist myrkrið og þetta leiðinda- vcður á citt um að halda parísar- búum innan dyra. Stórir olíulamp- ar, scm héngu í vírum er voru strekktir yfir þvera götuna, gáfu frá sér nauma birtu. Þótt Marianne væri full eftirvæntingar, þá varð hún fyrst og fremst að gæta fóta sinna. Þarna voru engar gangstétt- ir og það var erfitt að fóta sig á steinlagðri götunni. Ef lciðsögu- manns hennar hefði ekki notið við og hann vísað henni á planka, scm lágu yfir verstu forarvilpurnar, þá hefði hún áreiðanlega marg- ökklabrotið sig. Þó fóru lokkandi búðargluggarnir ekki með öllu framhjá henni og á meðal vegfar- endanna voru nokkrar fallega klæddar konur og hcrramenn, sem virtust eftir klæðaburðinum að dæma vera velmegandi. En allt í einu rak burðarmaður- inn upp óp og dró Marianne upp að einu búsinu. Það mátti ckki tæpara standa, því að í sömu andrá þeysti skrautbúinn liðsforingi framhjá og var næstum þvl búinn að rlða þau um koll. Marianne sá út undan sér svartan, glæsilegan hest, græna kápu mcð hvítum bryddingum, hvltar buxur úr hjart- arleðri, gljáandi stlgvél og hjálm úr látúni, skreyttan hlébarðaskinni og fjaðraskúf, rauða og gyllta axla- skúfa og hvlta hanska. Þessi sjón var Isenn litrík og heillandi. ,,Hver er þetta?” sagði hún og titraði af geðshræringu. ,,Einn af riddaraliðum keisara- ynjunnar. Þeir eru alltaf að flýta sér.” En er hann sá aðdáunina í augum hennar, bætti hann við. „Myndarlegur náungi? En þeir eru sumir enn skrautlegri. Það cr auð- séð að þér eruð utan af lands- byggðinni, en blðið þangað lil þér sjáið heiðursvörðinn, pólsku spjóts- riddarana eða húsara. Svo ekki sé minnst á marskálkana með allar sínar gullsnúrur og heiðursmerki. Já, litli liðþjálfinn veit hvernig hann á að klæða menn slna.” ,,Litli liðþjálfinn? Hver er það?” Burðarmaðurinn lcit furðu lost- inn á Marianne, lyfti brúnum svo að við sjálft lá, að þær næmu við hársrótina. ,,Nú, keisarinn auðvitað. Hvað- an komið þér eiginlega úr því að þér vitið þetta ekki cinu sinni?” ,,Ur klaustri,” svaraði Marianne um hæl til þess að missa ekki algjörlega andlitið. ,,Þar hittir maður ekki marga riddaraliða eða liðþjálfa, hvorki stóra né smáa.” ,,Nú, þá skil ég þetta bctur.” Þau bevgðu fljótlega inn I Mont- orgucilgötu og Marianne gleymdi voti bráðar riddaraliðanum. 1 þess- ari götu snérist allt um stóran, uppljómaðan veitingastað. Skraut- legirvagnar, dregniraf vel tömdurn hestum með skínandi aktygi, renndu upp að aðaldyrunum og út úr þcim stigu prúðbúnir gcstir. Sumir þeirra voru I einkennis- búningum. 10. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.