Vikan - 28.06.1979, Síða 12
Lrtil stúlka i stóru skipi. Sigríður
EHn, dóttir greinarhöfundar, ein af
ótal mörgum hótelgestum á síðasta
ári.
Sýnishorn af rfýrðinni um borð.
Kvikmyndin um Poseidonslysið var
tekin um borð í Mariu. k
Daimler 1935, einkabifreið hennar
hátignar, Maríu drottningar.
tólf þiljum Maríu finnst allur
munaður, sem hugurinn stendur
til. Glæsilegar káetur rúma vel
um tvö þúsund farþega á
Atlantshafsleiðum. Til að ferja
þann fjölda frá skipshlið þarf 65
stóra járnbrautarvagna. Það
yrði seinlegt verk að tíunda þá
þjónustu, sem farþegum stendur
til boða. Frystigeymslur eldhúss-
ins metta til dæmis auðveldlega
þarfir 15.000 vísitölufjölskyldna.
Þeir, sem notið hafa, segja, að
för með slíkum farkosti líði seint
úr minni.
Eigandinn
Cunard fjölskyldan flutti um
miðja sautjándu öld frá Wales í
Bretlandi til Fíladelfíu vestan
hafs. Síðar tók einn ættboginn
sig upp og hélt norður til Halifax
í Kanada. Þar óx Samúel
Cunard úr grasi og dreymdi
stóra drauma um farþega, skip
og lystisiglingar.
En Samúel Cunard var ekki
spámaður í sínu föðurlandi,
heldur máttu dagdraumar hans
þola háð og spott í kunningja-
hópi. Því axlaði hann brátt
skinnin og hélt árið 1838 til
Bretlands að freista gæfunnar.
Nokkrum árum seinna hljóp
fyrsta skipið hans af stokkunum
og hét Britannia. Þar með
hófust fastar siglingar Cunard
skipa yfir Atlantshafið með bet-
ur megandi farþega i vellysting-
um pragtuglega.
Líklega hefði Samúel Cunard
brugðið illa í brún á sínum tíma,
hefði hann órað fyrir, að öld
seinna gæti Britannia gamla
rúmast vel í einum reykháfi
nýju Maríu.
Styrjöldin
Þótt María væri gerð fyrir
farþegasiglingar á friðartímum,
lagði hún sinn hlut af mörkum í
seinni heimsstyrjöld. Breski
herinn tók hana fljótlega til
handargagns og breytti til
herflutninga. Skipið ferjaði
hermenn til ýmissa vígstöðva og
þeirra á meðal kærkominn
liðsauka í baráttunni við
Rommel í Afriku. Síðar flutti
hún bandariska hermenn til
Evrópu og þýska stríðsfanga
vestur um haf. Á ófriðartímum
flutti skipið um 15.000 manns í
hverri ferð, og Sir Winston
Churchill gat þess eitt sinn, að
Marían hefði vafalaust flýtt
fyrir endalokum stríðsins.
Samtals flutti hún um 800.000
12 Víkan 26. tbl.