Vikan


Vikan - 23.08.1979, Side 25

Vikan - 23.08.1979, Side 25
— vill fann hann einhvers staðar á bak við fyrir hræðslu og sektartilfinningu. En hann vildi ekki hugsa um það. Það var bara eðlilegt að þau ræddu saman og spyrðust fyrir um hagi hvors annars. Það var jú hrein tilviljun að þau skildu hittast og varla væri skylt að finna til sektar yfir slíkri tilviljun? — Ég er ánægður yfir því að hafa hitt þig aftur, sagði hann skyndilega. Maria hafði lagt Björn á gólfið, í miðj- an haug af marglitum kubbum af öllum stærðum og gerðum. Hún settist viðeld- húsborðið með minnisbók og talaði við sjálfa sig meðan hún skrifaði. — Númer eitt á listanum: Bókasafnið. Númer tvö: Bankinn. Hún ætlaði til tilbreytingar að leggja inn peninga, ekki taka út. Þau höfðu selt ungu pari gömlu þvottavélina í gegnum auglýsingu. María átti von á að fá nýju þvottavélina í seinni hluta vikunnar. Hún brosti með sjálfri sér. en það var angurvært bros. Nú var ný þvottavél mikill viðburður í lifi hennar. Þannig hafði það ekki alltaf verið. Fyrir nokkrum árum hafði hún verið á kafi úti á vinnumarkaðinum. Hún hafði ferðast mikið og hitt margt fólk í gegnum starf sitt, sem var að skipulcggja sýningar og keppnir. Þá hafði hún lifað spennandi lífi. 34. tbl. Vikan 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.