Vikan - 23.08.1979, Qupperneq 36
Ilmur sem ekki gleymist
Uppáhaldsilmvatnið hennar
mömmu og ömmu er nú á ný
afar vinsælt — sömuleiðis gömlu'
hlúndurnar og blúndukragarnir.
Að vísu eru aðeins fá ilmvötn frá
fyrri tímum sem hafa haldið velli,
en þó eru að minnsta kosti 10
klassísk ilmvötn, sem öll eru um
30—50 ára gömul, enn í há-
vegum höfð og notuð af millj-
ónum kvenna um alla veröld.
Hér er smá fróðleikur um þau:
Chanel nr. 5
Chanel nr. 5 var búið til af
Gabrielle Chanel, þekkt undir
heitinu Coco Chanel, árið 1920.
Eftir margar heimsóknir í ilm-
vatnsbæinn Grasse í Suður-
Frakklandi bað hún Ernst
Beaux, einn frægasta ilmvatns-
framleiðanda þess tíma, að búa
til ilmvatn. Fyrir hana voru
bornar nokkrar prufur í röð og
hún valdi nr. 5. Chanel nr. 5
varð strax frægt og ekki minna
frægt þrjátíu árum síðar, þegar
Marilyn Monroe viðhafði þau
frægu orð á blaðamannafundi
að hún svæfi aðeins í Chanel nr.
5.
Miss Dior
Miss Dior er fyrsta ilmvatnið frá
tískuhúsinu Christian Dior. Það
kom á markaðinn 1947 um leið
og hin mikla tískubylgja „New
Look”. Miss Dior var ekki að-
eins blómailmur, það þýddi líka
nýr lífsstíll, ungur og kvenlegur..
Miss Dior inniheldur m.æ-gard-
iniaogjasmín.
Je reviens
Je reviens (það þýðir: Ég sný
aftur) er frá franska tískuhúsinu
Worth, sem hóf starfsemi sína
árið 1858. Það var stofnað af
Bretanum Charles Frederic
Worth. Sonur hans, Jean
Philippe Worth, hóf ilmvatns-
framleiðsluna. Árið 1932 kom
Je reviens á markaðinn, það
hafði sætan en frískan blóma-
ilm.
Blue Grass
Elizabeth Arden, stofnandi hins
heimsþekkta fyrirtækis í New
York, skírði sjálf uppáhaldsilm-
inn sinn Blue Grass. Á ferðalagi
sínu um Suður-Frakkland 1
kringum 1930 kom hún í ilm-
vatnsbæinn Grasse. Kvöld
nokkurt stóð hún úti á svölum
hótelsins, sem hún bjó á og
horfði út yfir bæinn, kyrrlátan
og dimman. Þá varð henni að
orði: „Hversu blá Grasse er í
kvöld”. Blue Grass kom á mark-
aðinn 1934 og er samansett af
rósum, jasmín og lavender
ásamt villtum blómum.
Kaffikorgur
kemur að gagni
Pottaplönturnar hafa bara gott
af dálitlum kaffikorgi. Einnig er
hann talinn góður til að hreinsa
með, hafi maður fengið máln-
ingu. tiöru eða olíu á hendurnar.
*
tj
• Ridgeway
& Jones
36 Vikan 34. tbl.