Vikan - 23.08.1979, Síða 39
I
m
Uiberace.
Hann gæti spilað á píanó
með nefbroddinum.
Linda Lavin hefur fallegar tennur,
sem njóta sín fullkomlega I breiðu töfr-
andi brosi. Það versta er, að í hvert skipti
sem hún opnar munninn, virðist nefið
ætla að leka ofan i hann. Einnig er ein-
hver óútskýranleg kúla fremst á nefinu.
Það litur hreinlega út fyrir að vera
heimatilbúið. En hún bætir það fyllilega
upp með yndislegum augum og þykku
fallegu hári.
En nóg um kvenfólkið. Karlmenn eru
einnig fæddir með þeim ósköpum að
þurfa að þola ljót nef. Þeir menn, sem
voru tilnefndir sérstakir fulltrúar þeirrar |
tegundar nefja voru, Dick Van Dyke,
Andy Williams, Karl Malden, Robin
Williams og píanóleikarinn heimsfrægi,
Liberace.
Nefið á Dick Van Dyke hlaut þann
dóm að vera langt, teygt og þrútið, og
nefbroddurinn flatur. En tennumar eru
beinar og brosið breitt, augun skarpleg
og hárið i fallegum bylgjum, svo nefið
gleymist við nánari athugun.
Eftir því sem Andy Williams eldist því
stærra virðist nefið á honum verða. Það
þjáist af sjúkdómi sem kallaður er of-
vöxtur, og gætir hans aðeins meira
hægra megin en vinstra megin. En hár-
brúskurinn, lífleg augun, svo' ekki sé
talað um sönginn, gerir það að verkum
að engum dettur i hug að láta nefið
angra sig.
Eina orðið sem hægt er að hafa um
nef það, er tilheyrir Karl Malden, er
óviðjafnanlegt! Það er ekki aðeins eitt,
heldur þrjú nef — aðalnefið er efst, en
hin tvö í klessu að framan. En nefið |
hefur hjálpað honum á framabrautinni,
það hefur gert hann ógleymanlegan.
Því er haldið fram að einhvern tíma
hljóti Robin Williams að hafa fengið
högg á nefið, því það sé svo klesst, að
engin önnur skýring komi til greina.
Og að lokum skal minnst á nef hins
heimsfræga píanóleikara, Liberace. Það
er langt, meira að segja óvanalega langt,
og mjókkar eftir því sem neðar dregur.
Þar er líklegast komin skýring á snilli
hans. Hann spilar einnig með nefinu!!
En við fyrirgefum honum ljóta nefið,
því án þess væri hann ekki Liberace!
Hún
vefur myndir úr þara
Hún Salome Fannberg, 28
ára Reykjavíkurmær, fæst við
listsköpun eins og svo margir
aðrir sem hafa getu og að-
stæður til. Hún er þó öðruvísi
en flestallir listamenn af því að
hún vefur myndir sínar úr
þara. Já, hvort sem þið trúið
því eða ekki— hún vefur
myndir úr ÞARA!
— Hvers vegna?
— Ég bjó um tima úti á
landi, segir Salome, nánar til-
tekið í Flatey, besta stað á
jörðinni. Þar er þó ekki mikið
um hannyrðabúðir eða kaupfé-
lög með garn í hillunum, þann-
ig að ég fór bara niður í fjöru
og tíndi þang. Þetta var nú
mest gert af forvitni en þau eru
nú orðin fjögur árin sem ég hef
fengist við þetta og líkar bara
ágætlega. Þó hef ég ekki enn
selt eina einustu þaramynd
hvernig sem á því stendur.
— Þarinn hentar vel til þess-
ara hluta, heldur Salome
áfram, það er hægt að ná fram
ýmsum litum og fer það eftir
því hvenær árs og á hvaða
tíma sólarhrings þarinn og
þangið er tínt. Svo verður að
sjálfsögðu að þurrka efnið áður
en það er notað — það er svo
mikið af pöddum í þessu sem
verður að drepa.
Salome er enginn þöngul-
haus í vefnaði þó hún hafi fyrir
tilviljun og forvitni byrjað að
vefa úr þara og þangi. Hún
stundaði nám i vefnaði suður á
Spáni um 5 ára skeið, átti barn
og óf þrívíddarmyndir m.a. úr
kopar og plasti. En nú er hún
komin heim á skerið aftur,
vinnur á teiknistofu og kennir
lítillega vefnað.
— Framtíðaráform?
— Að halda áfram að vefa
og vinna og svelta ekki...
EJ
þang f ffftm f nágrwml
þwf verður sfftan um-
í myndverk. A innfelldu
myndinni getur »vo afl lita Arangur-
inn.
-
34 tbl. Vikan 39
I