Vikan - 15.05.1980, Page 21
I
Fimmti hluti
borðaði hann? Hver sá um fötin hans?
Hann reyndi að svara spurningum
þeirra en þau hlustuðu ekki á svörin.
Þau héldu áfram að leita um íbúðina.
Sleikipinnar? Svo þú átt sleikipinna,
sagði lyfsalinn. — Veistu ekki að sykur
er hættulegur heilsunni? Sleikipinnar
skemma tennurnar.
Ted huggaði sig við að þau bjuggu í
Boston. Þau vildu fá Ettu til að koma á
fridegi sinum til að geta spurt hana
spjörunum úr. Hann neitaði. Þau vildu
fá að taka Billy með sér í dýragarðinn.
Hann sagði að það væri allt í lagi en bað
þau um að minnast ekki á Jóhönnu við
Billy, þar sem það gæti komið honum úr
jafnvægi. Nú mundu þau aftur eftir Jó-
hönnu.
— Við gáfum henni gott líf. Ég veit
ekki hvað þú gerðir, sagði Harriet
hvasst.
— Kannski er það einmitt mergurinn
málsins, sagði Ted. — Kannski var hún
ekki annað en dekurkrakki. Og þegar tók
að bjáta á hegðaði hún sér í samræmi
við það.
— Vogaðu þér ekki að tala svona um
dóttur mína, æpti Sam.
— Uss, þarnið, sagði Harriet i að-
vörunartón.
Þau föðmuðu og kysstu hinn ráðvillta
Billy og síðan sendi Ted þau í dýra-
garðinn. Sjálfur fór hann í næsta kvik-
myndahús og horfði á vestra. Aðal-
Rannsóknarnefndin fór án þess að
kveðja Ted með handabandi. Foreldrar
Jóhönnu höfðu komist að niðurstöðu.
Þau fundu Ted sekan um að hafa eyði-
lagt dóttur þeirra.
Vikur liðu og fólk fór að gera sér grein
fyrir að Jóhanna Kramer hafði í raun og
veru yfirgefið eiginmann sinn. Og hver
og einn lagði þann skilning í það sem
honum þótti hentugastur. Larry leit á
það sem tækifæri til að útvega Ted drátt.
Ted sagði honum að hann hefði engan
áhuga á að skemmta sér, hugur hans
væri bundinn við aðra hluti.
— Hver var að tala um hug þinn?
spurði Larry.
Ef hann gat fengið vin sinn Ted til að
eltast við stelpur hafði hann líka réttlætt
sín eigin hlaup á eftir stelpum. Þá var
ekkert örvæntingarfullt við það, eins og
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir
Avery Corman
Copyright 1979byAvery Corman.
kostur myndarinnar var sá að hún kom
honum ekkert við. Þau komu seint
heim, Billy var allur útklístraður eftir
sleikipinna og pizzublettir í skyrtunni
hans. Barnið hafði sigrað lyfsalann, 2
gegn 0. Þau ætluðu að dvelja einn dag i
viðbót í New York til að geta verið með
barnabarninu sínu en vildu heldur gista
á hóteli þótt Ted bvði þeim í kurteisis-
skyni upp á sófann sinn.
Harriet og Sam voru aftur mætt klukk-
an átta næsta morgun. tilbúin til að
hlaupa fjóra hringi í kringum borgina ef
með þyrfti. Billy vildi fara aftur í dýra-
garðinn og þau lögðu af stað til að vekja
dýrin. Þau komu aftur síðdegis.
— Við verðum vist að hottast af stað,
sagði Harriet við dótturson sinn.
Hott, hott til Boston, hott, hott til
Loní. ef þú gætir ei að þér, detturðu oni.
Barnagæla sem Jóhanna var vön að fara
með fyrir Billy og Ted mundi allt í einu
eftir. Hún hafði hirt föt sín en skilið eftir
sig hergmál.
— Jæja, ef þið fréttið af Jóhönnu,
sagði hann — þá segið henni...
Hann vissi eiginlega ekki hvað þau
áttu aðsegja henni.
— Aðokkur líði vel.
— Líður ykkur vel? sagði Harriet. —
Heldurðu að ykkur komi til með að líða
sumar vinkonur hans héldu fram. Ekki
ef Ted Kramer var líka á harðaspretti.
Foreldrar Teds voru algjörlega á önd-
verðum meiði. Fyrir þau var aðalatriðið
að Ted fengi sér aðra eiginkonu. Þeim
var alveg nákvæmlega sama hvort
hann fengi drátt eðaekki.
— Já.enviðerumennekkiskilin.
— Eftir hverju ertu að bíða? spurði
móðir hans.
Málið átti nú að koma fyrir skilnaðar-
rétt. Ted leitaði ráða hjá vini sínum,
Dan, sem var lögfræðingur, og hann
sendi hann til annars lögfræðings sem
var sérfræðingur í skilnaðarmálum.
Tafarlaus skilnaður og tafarlaust brúð-
kaup með annarri konu var það eina
sem gat bjargað orðstír hans á Miami
hjá Dóru og Harold.
— Fólk getur skilið skilnað, sagði
móðir hans. — Ég hef þegar sagt öllum
að þú sért skilinn.
— Ég held að New York ríki mundi
aldrei viðurkenna þann skilnað.
— Þetta er ekkert fyndið. Ég á alveg
fullt i fangi með að afsaka þig. Ég verð
að segja að drengurinn sé bara hjá þér i
bili á meðan dræsan á í ævintýri með
öðrum.
Hann talaði við bróður sinn. Mílurnar
á milli þeirra voru ekki bara landfræði-
legar. Ralph bauð honum fjárhagsað-
stoð. Eftir að hafa þannig boðið honum
það eina sem honum gat hugkvæmst
sendi hann konu sína, Sandy.í símann.
Hún sagði að sér hefði hvort sem er
aldrei geðjast að Jóhönnu. Hún sagðist
líka mundu hafa tekið Billy um tima ef
hennar börnværu ekki svo miklu eldri
Éftir að öllum kurteisisreglum hafði
þannig verið fylgt kvöddust þau og það
liðu mánuðir þar til þau töluðu saman á
ný.
Thelma sá Jóhönnu sem einhvern
refsiengil á slæm hjónabönd. Hún leit
inn í kaffi og sagði Ted að brottför
Jóhönnu hefði orðið til þess að ýta
ýmsum hlutum upp á yfirborðið.
— Charlie sagði mér að hann héldi
fram hjá. Hann bað mig að fyrirgefa sér,
hvað ég og gerði. Ég hef líka farið fram á
skilnað.
Charlie kom næsta kvöld.
— Thelma segir að ég sé frjáls að því
að giftast klínikdömunni minni. Og
hvern langar til að kvænast klinikdöm-
unni sinni?
Hann fór eftir að hafa innbyrt nokkra
drykki og sagði í kveðjuskyni:
— Það er þér að kenna að ég er ekki
lengur hamingjusamlega kvæntur
maður.
Viðbrögð foreldra Jóhönnu voru þau
að halda áfrarn að senda hrúgur af leik
20. tbl. Vikan 21