Vikan - 15.05.1980, Síða 30
Draumar
Strauk nidur eftir
fótunum á mér
Kæri draumráðandi.
Mig langar að láta þig ráða
fyrir mig draum sem mig
dreymdi fyrir nokkru.
Mérfannst ég vera að læra
skólanámið úti hjá hlöðunni, á
þeim stað þar sem ég er á
sumrin. Þá kom maður, X.
Hann stóð fyrir aftan mig og
var að horfa á mig. Ég skipti
mér ekkert af honum og þá fór
hann. Rétt á eftir fór ég út í
fjós og þá var X þar. Systir
mín var þar líka og mér fannst
hann vera að hjálpa henni að
tengja segulbandið hennar við
einn básinn. Ég spurði hvort
hún vildi lána mér segulbandið
en hún sagðist þá þurfa að
nota það. Svo fór hún. En ég
fór að læra inni í fjósi. Þá kom
X, labbaði aftur fyrir mig og
stóð þar. Svo fór hann að
strjúka niður eftir fótunum á
mér og mér fannst hann vera
að þurrka drullu af höndunum
á sér. Þá sagði ég: Ógeð ertu,
X. Svo man ég ekki hvað
gerðist fyrr en ég var búin að
snúa mér við. Þá tók hann
utan um mig og ég utan um
hálsinn á honum. Svo beygði
hann sig niður að mér, kyssti
mig og sagði: „Komdu með
mér heim. ” Ég sagði: „Ég get
það ekki. ” Svo fór ég að hugsa
um hvort ég gæti fengið vinnu
í nágrenni við hann því mig
vantaði vinnu. Hvort ég sagði
honum það man ég ekki. Það
skrítnasta við drauminn var að
X var miklu stærri en ég, en
hann er í rauninni ekki stór og
ég ekki lítil.
K.
Fjós í draumi boðar oft gjöf
eða góðar fréttir og flest
í draumnum undirstrikar
jákvæðar hliðar merkingar-
innar. Þarna gæti einnig verið
um að ræða einhvers konar
heppni sem fellur þér í skaut
innan tíðar og breytir talsverðu
til betri vegar. Þess verður
varla langt að bíða að þú
tengist ákveðnum aðila
sterkum böndum en hvort þar
er um að ræða framtíðar-
samband skal ósagt látic.
Maðurinn í draumnum tengist
merkingunni sáralitið og er
hann sjálfur einungis tákn fyrir
ákveðna atburði. Til þess að
ráða í þau atriði vantar draum-
ráðanda vitneskju um nafn
hans og fleiri smáatriði í
draumnum hafa einnig nokkra
þýðingu.
Ur
Öxnadalnum
til Akureyrar
Draumráðandi.
Það var aðfaranótt páska-
dags að mig dreymdi þennan
draum. Mér fannst ég þurfa að
fara suður út af blóðrannsókn
og lagði ég af stað gangandi í
ofsa snjókomu. í Öxnadalnum
fannst mér ég vera komin á
fjóra fœtur og reyndi ég að
krafsa mig þar áfram. Þar
keyrði flutningabíll fram hjá
mér og stansaði ekki en á eftir
honum kom svört vera sem
reyndist vera móðir mín. Bað
hún mig að snúa við því mig
vantaði bréf og tíma til að
komast til læknis. Snerum við
báðar við og var ég þá allt í
einu stödd í kirkjunni á
Akureyri með systur minni.
Þar ætluðum við að fá bréfið,
sem mig vantaði, en það fannst
ekki og ekki nafnið mitt
heldur. Fannst mér ég vera
hálfleið yflr því en ákvað að
láta við svo búið standa.
Fórum við að líta í kringum
okkur og þarna vorum við
systurnar, presturinn og ein
skúringakona. Sá ég þá litla
mynd af tveimur drengjum,
annar var í kerru en hinn hélt í
hana. Bíll var einnig á
myndinni eins og hún hefði
verið tekin á ferð og sagði
konan okkur að bíllinn hefði
keyrt á drengina og þeir hefðu
látist samstundis. Ég sagði þá
eitthvað á þessa leið: En hvað
þeir hafa verið fallegir. Þá fór
allt á hreyfmgu og fannst mér
grátur fylgja þessum látum. Ég
vissi að þarna voru þeir bræður
og fórum við systurnar þá að
tala við þá. Þeir létu vissa hluti
hreyfast, sem átti að þýða já
eða nei. Fannst mér
draumurinn enda þannig.
Nú langar migað biðja þig,
draumráðandi, að svara þessum
draumi fjótt.
Kœr kveðja. SPAK
Framundan eru miklir erfiðleik-
ar og þér finnst um tíma að
engin leið sé fær. Þetta er þó
mikill misskilningur og í þessu
tilviki sem öðrum birtir til um
síðir. Flest tákn í draumnum
benda til þess að erfiðleikarnir
tengist fjölskyldu þinni og verði
fremur langvinnir. Hins vegar
muntu komast yfir þetta og
með timanum hverfa þessir
slæmu atburðir í minninguna.
Miklu skiptir að þú haldir
stillingu þinni meðan á þessu
stendur og minnstu þess að öll
sár gróa um síðir, þótt ef til vill
virðist það ótrúlegt í miðju - j
atvikanna.
«'iTr
____'mwzf —,
30 Vikan 20. tbl.