Vikan - 12.06.1980, Side 19
hvað hægt er að kalla þetta. Kannski
sölu og skipulagningu. Aðstoðarmaður
auglýsingastjóra, býst ég við. Byrjunar-
laun 24 þúsundáári.
— Og hvenær get ég byrjað?
— Strax.
— Við hvem á ég að tala?
— Engan.
— Svona nú, Jim.
— Það er ég sem ræð þessu.
— Jim —
— Þú verður aðalaðstoðarmaður
minn, Ted. Viltu það?
— Já, ég vil það.
— Þá er það ákveðið. Þú ert ráðinn.
Sé þig klukkan 9.30 á mánudaginn.
Hann lagði á og tók undir sig heljar-
stökk. Hann rak upp striðsöskur og
stökk um alla íbúðina. Billy kom hlaup-
andi út úr herberginu sínu þar sent hann
hafði verið að byggja verksmiðju úr
kubbum.
— Hvaðerað, pabbi?
— Ég er búinn að fá vinnu. litli minn.
Hann gamli pabbi þinn er kominn inn úr
kuldanum!
— Það er gott, sagði Billy mildilega.
— Ég sagði að þú mundir fá vinnu.
— Já, víst gerðirðu það.
Og hann tók Billy i fangið og lyfti
honum hátt upp í loftið.
— Pabbi þinn sér um hlutina. Hvort
hann gerir! Það verður allt í lagi með
okkur.
Og þetta skal aldrei gerast aftur, sonur
minn. Ég vil aldrei framar þurfa að
ganga í gegnum aðra eins lifsreynslu.
ÞRETTÁNDI KAPLI
Karlmannatískublaðið var i
auglýsingahillum, fallegt blað með
mörgum litmyndum. Fyrirtækið var
hluti af suður-ameriskri samsteypu sem
átti stór ítök i fataiðnaðinum og forstjór-
arnir vildu reka timarit sem styrkti sölu-
aðstöðu þeirra á karlmannafatnaði. Ted
vann við sölukynningar og tókst strax
að ná nokkrum góðum samningum. Það
var þægileg tilfinning að vera þannig
minntur á að hann var góður í sínu
starfi.
Hann greiddi bróður sinum 3000
dalina til baka og sendi honum bók sem
hann fann á fornbókasölu: Hver er hvað
í fótbolta? frá árinu 1944. Hann lét miða
fylgja þar sem hann skrifaði: Hvað í
ósköpunum varð um St. Louis Browns?
Þegar kom að kveðjunni minntist hann
þeirra venjulega kveðjuorða sem hann
hafði hingað til sent bróður sínum:
Bestu kveðjur. . . sé þig einhvern tíma.
En i þetta skipti veittist honum auðvelt
aðskrifa: Ástarkveðjur, Ted.
Að ráði Thelmu lét hann skrá Billy i
sumarbúðir. Kim hafði dvalið þar
sumarið áður, seinasta sumarið sem þau
Thelma og Charlie voru gift.
— Charlie er orðinn ansi naumur með
peninga, sagði hún. — Ég held að hann
kysi helst að við sætum inni i íbúðinni
ailt sumarið og skrúfuðum fyrir kæli-
kerfið.
Ted sótti foreldrafund fyrir fimm ára
börnin dag einn í hádeginu. Þetta
reyndist vera mömmufundur — hann
var eini karlmaðurinn á meðal þeirra.
Hann sat þarna hjá konunum og hitti
umsjónarmenn Billys, pilt og stúlku er
voru i menntaskóla en litu út í augum
Teds sem 14 ára. Ted skrifaði athuga-
semdirnar hjá sér. Allt sem
tilheyrði Billy varð að vera merkt
honum, hann varð að hafa með sér
tvenna strigaskó og nóg af fatnaði til
skiptanna. Hann fann að konurnar
veittu honum athygli. Um hvaðeruð þið
að hugsa, góðurnar? Að ég sé ekkju-
maður? Eða atvinnulaus á framfæri
eiginkonu minnar? Ég er viss um að þið
munduð aldrei giska á það rétta. Yfir-
maður búðanna lýsti einum degi i
búðunum og sú lýsing olli Ted
nokkrum áhyggjum. Sundlaug? Var það
ekki hættulegt? Heill dagur? Yrði Billy
ekki einmana? Hann Billy hans mundi
taka áætlunarvagn út úr borginni í
umsjá ókunnugra til ókunnugs staðar.
Og að hausti mundi Billy hefja skóla-
göngu, alvöruskólagöngu. Með öllum
sinum skyldum og lögboðnu fridögum.
Kerfið tæki við honum. Litla frumstæða
dýrið hans var orðið stofnanaeign, þar
yrði hann að miklu leyti alinn upp, nýtt,
lítið andlit i rás kynslóðanna. Billy átti
að fara í sumarbúðir og svo i skóla og
Ted kveið aðskilnaði þeirra.
Ted beið ásamt Ettu með Billy á
morgnana eftir búðavagninum en Billy
var þegar orðinn feiminn við að kyssa
föður sinn í kveðjuskyni frammi fyrir
hinum börnunum. OgTed fannst handa
band allt of fullorðinslegt — það var allt
of snemmt. Svo að hann leysti málið
meðað klappa Billy á bakið.
Heimurinn tekur á sig nákvæmari
mynd í augum fimm ára barna og vekur
hjá þeim ótal spurningar. Billy var þar
engin undantekning.
— Pabbi, hvar er mamma?
— Mamma þín er i Kaliforníu.
— Er húngift aftur?
— Gift aftur? Nei, ekki að því er ég
best veit. Hver kenndi þér þetta orð?
— Karla í sumarbúðunum. Foreldrar
hennar eru skildir en mamma hennar er
giftaftur.
—Já, slikt gerist oft. Fólk giftist aftur
einhverjum öðrum.
—Ætlar þú að vera giftur aftur?
—Ég veit þaðekki.
—Ætlar þú að vera giftur aftur Phyllis?
Phyllis? Lögfræðingurinn. Hann var
næstum búinn að gleyma henni.
—Nei, Billy.
—Pabbi?
—Já, Billy?
—Ætlarðu að vera giftur aftur mömmu?
—Nei, Billy. Pabbi og mamma giftast
aldrei aftur.
Jim O’Connor sagði Ted að taka sér
tveggja vikna sumarfrí og sagðist ætlast
til að hann færi eitthvað.
—Kannski.
—Ted, þú hefur unnið eins og þræll. Er
engin persóna í lífi þínu til að segja þér
að þér sé hvíld nauðsynleg?
I
Við kynnum
fæði
og
klæði
íslenskir veisluréttir, islenskur tískufatnaður, íslenskur
listiðnaður og íslenskur DANSLEIKUR
öll föstudagskvöld yfir sumarmánuðina
Heitir og kaldir lambakjötsréttir — kynningarverð —
Framreiddir ki. 20.00-21.00
Karon samtökin sýna tískufatnað frá Álafossi og
Iðnaðardeild Sambandsins
Kynningaraðilar:
Álafoss
Iðnaðard. Sambandsins
Búvörud. Sambandsins
Mjólkursamsalan
Stéttarsamband bænda
Osta- og smjörsalan
Sláturfélag Suðurlands
Sú/nasa/ur
HLJOMTÆKI / B/L/NN
MIKIÐ URVAL
ÍSETNINGAR Á STAÐNUM —
SAMOÆGURS
■ MX'.T
HLJOMUR
Skipholti 9 s. 10278
24. tbl. Vlkan 19