Vikan - 12.06.1980, Qupperneq 23
Plantan sett í holuna, húsdýra- Þjappað.
áburður á botni, sem ekki má snerta
ræturnar.
Og þama er komin í moki reisuleg
islensk birkihrísla, þessi er 34 ára
gömul.
BARRÓTARPLANTA. Þetta er glans-
mispill, 34 ára planta, tekin beint
upp úr beði. Þá er engin mold á
rótum.
Plöntunni er stíllt svona upp.
Húsdýraáburður er settur undir en
gæta verður þess að hann snertí
ekki ræturnar.
Moldinni ýtt að, þjappað.
greind og með vel þroskuð endabrum.
Lágvaxnir runnar, s.s. einir, þurfa að
vera með hnaus eða i potti. Furur eru
með stólparót og eru viðkvæmar fyrir
flutningi milli staða. Best er að gróður-
setja furur úr pottum og ekki mjög
stórar, helst ekki stærri en 50 cm að
hæð.
Limgerðisplöntur. Rótarkcrfi plantn-
anna þarf að vera vel þroskað og vel
greinótt. Aldur plantna verður að vera
tilgreindur. Plöntur I limgerði skulu
helst ekki vera yngri en tveggja ára, víði-
plöntur skulu vera vel niðurklipptar og
hafa minnst þrjár greinar.
Hversem plantar tré plantar von.
Reisir hulin rót sinn ítra son.
Rísa barr og lauf, hin grænu vé,
svo skal hugar hátt
horf í sólar átt
meta moldar þátt.
Granni sproti — gott er oss að þrá
greina þinna dýrð sem framtíð á.
Ég vil geta hér nokkurra atriða sem
rétt er að hafa í huga þegar verið er að
velja tré og runna til gróðursetningar í
garða.
Einstök tré í opin svœði og einkagarða.
t.d. íslenskt birki, reynir. hlynur, álmur og
alaskaösp.
Rótin þarf að vera kröftug og
vel greind. Stofninn á að vera vel
þroskaður og geta borið krónu trésins
Þjappað meö því að stíga þétt
hringinn i kríng.
vel. Króna trésins þarf að vera jafn-
greind og samsvara sér vel og hafa
leiðandi topp. Slík tré þurfa að hafa
verið dreifsett tvisvar i græðireit.
Minni skrauttré og runnar, t.d.
úlfareynir, heggur, sirenur o.fl. stærri
runnar, þurfa að vera kröftug og vel
greind. Stofn eða stofnar skulu vera án
sára og vel þroskaðir og gott hlutfal!
milli krónu og stofna trjánna.
Barrtré. Þau skulu vera kröftug, vel
24. tbl. Vikan 23