Vikan - 12.06.1980, Qupperneq 24
Ár trésins í Vikunni
EINFÖLD GRÖÐURSETNING; hent-
ug þar sem náttúrlegu umhverfi
hefur ekki verið breytt. Fyrst er rist
ofan ein torfa, hola höggvin með
haka eða álika verkfæri.
Gróðursetning
trjáa og runna
Gróðursetning. Við skulum hafa það
hugfast, þegar við förum að gróðursetja
tré, að það eru tvö meginverkefni sem
rótin hefur, þ.e. að halda plöntunni
fastri og að fá vatn og næringu úr
jörðinni. Eins og áður er getið skeður
vatns- og næringarupptaka plantnanna i
gegnum ræturnar og þær þola þvi illa sól
og vind. Þess vegna er nauðsynlegt að
skyggja ræturnar og láta þær vera sem
stystan tíma berar, með því er hægt að
drepa tréð á örskömmum tíma. Þegar
plöntur koma á gróðursetningarstað er
rétt að fara yfir pöntunarlistann og
kanna hvort plönturnar hafa verið rétt
afgreiddar. Siðan þarf að staðsetja
plönturnar. Ef ekki er hægt að gróður-
setja plönturnar strax er nauðsynlegt að
jarðslá þeim þar til þeim er fenginn
réttur staður. Þetta þarf að vera skugg-
sæll staður og möguleiki á góðri vökvun.
Þannig er hægt að geyma plönturnar
nokkurn tíma.
Barrótarplöntur. Fyrst þarf að grafa
góðar holur eða rásir fyrir piönturnar
þannig að rætur trjánna bögglist ekki, ef
rætur eru mjög langar er betra að klippa
af rót en beygja hana. Jarðvegur þarf að
vera góður, loftmikill og áburðarrikur.
Greiða þarf vel úr rótum trjánna og láta
góða og vel frjóa mold að þeim, þjappa
vel að með höndum, ekki með fótum því
skór geta skemmt rætur. Þegar planta
hefur verið gróðursett má hún ekki
standa dýpra en hún stóð í græðireit.
Eftir að plantan hefur verið gróðursett
er mikil nauðsyn að vökva vel. Vökva
skal það vel að piantan standi i vatni
fyrst, til þess að rætur trjánna og
runnanna nái góðu sambandi við jörð.
Plöntunni komiö fyrir. Mold ýtt að.
anna og jafnframt að skera i hnausinn
lóðrétt á hlið og kross í botn til þess að
koma í veg fyrir að ræturnar vaxi í
hringi. Aspir og víðiplöntur má gróður
setja dýpra en aðrar plöntur vegna þess
að þær eiga auðvelt með að mynda nýjar
rætur og er í lagi þó að jarðvegurinn fari allt
að 10 cm uppá stofn og jafnvel meira, l.d. á
stórum öspum. Nokkru eftir gróðursetning-
una er gott að gefa plöntunum
uppleystan áburð eða tilbúinn áburð,
t.d. túnáburð fyrst i júni og siðan þrem
vikum seinna. Þegar gróðursett eru
stærri tré, t.d. um 2ja metra plöntur, er
ráðlegt að gróðursetja þær við staur.
Staurinn er fyrst rekinn niður i holuna,
og þarf hann að vera um tveggja metra
langur, síðan er plantan gróðursett við
hliðina á honum og tréð siðan bundið
við staurinn með mjúku efni sem ekki
særir börkinn á trénu.
XJngar og nýgróðursettar barrplöntur
þola illa næðing. Þess vegna er hyggilegt
að byggja skjól fyrir þær, sérstaklega
fyrir aðalvindátt. Slíkt skjól getur verið
úr ýmsu efni og fer eftir efnum og
ástæðum. Skjólgrindur úr timbri, strigi
sem festur er á trégrind er myndar
nokkurs konar tjald og t.d. loðnunót sem
strengd er á gaddavir, það siðastnefnda á
fyrst og fremst við þegar gróðursett er i
stærri svæði, þar sem næðingur er
mikill.
Að lokum nokkur minnisatriði:
Veljið góð og heilbrigð tré.
Veljið góðan stað fyrir þau.
Gefið áhurð. helst tvisvar yfir vaxtar-
tímann.
Vökvið tréí þurrkatíð.
Skýlið trjám fyrstu árin.
Sýnið plöntunum umhyggju með
góðri hirðu, svo sem úðun við skor-
dýrum, grisjun og snyrtingu.
4 ára sitkagreniplanta ar heppileg í
þessa holu.
Agætt er að koma torfunni fyrir öfugri, til að skorða plöntuna.
Hnausplöntur. Við plöntun á hnaus-
plöntum þarf að gæta vel að því að
holan fyrir plöntuna sé nægilega stór, að
nægilegt pláss sé fyrir áburð og mold
meðfram hnausnum og auðvelt sé að
þjappa að hnausnum, svo að ekki
myndist holrúm milli hnauss og moldar.
Utan um hnausplöntur er oft strigi og er
hann oft látinn vera við gróðursetningu
trjánna en betra er að fjarlægja umbúðir
af plöntunum. Best er að pjappa að
plöntunum með höndunum.
Pottaplöntur. Eins og áður var sagt eiga
rætur pottaplantna að hafa fyllt út i
pottinn þegar plantan er seld. Þess vegna
er mikil hætta á að pottaplöntur þorni
og er mikil nauðsyn að gegnbleyta potta
plöntur áður en þær eru teknar úr potti
og gróðursettar því annars getur verið
erfitt að koma vatni að rótum. Gróður-
setningin sjálf er framkvæmd eins og
áður er getið um hnausplöntur. Ef potta-
plöntur hafa verið of lengi i potti er
nauðsynlegt að greiða úr rótum plantn-
Verðá
algengustu
trjáplöntum
Furu- og greniplöntur: 3-4 ára
kosta 4-500 kr., 10 ára metraháar
plöntur kosta 10-15.000 kr.
Víðiplöntur: 2 ára kosta 3-500 kr.,
3 4 ára kosta 6-700 kr.
Rifs: 3-4 ára kostar 2-3000 kr.,
eftir gæðum.
Íslenskt birki: 2 ára kostar 4-500
kr., 10 ára (2 m á hæð) kostar 6-
8000 kr.
ösp: 2 ára plöntur kosta 6-700 kr.,
7-8 ára kosta 6000 kr.
Reynir: 2 ára kostar 4-500 kr., 10
ára planta kostar 6-8000 kr.
24 Vlkan 24. tbl.