Vikan - 12.06.1980, Qupperneq 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
LÍFIÐ ER
MISUÚFT
Ég hafði verið að hlýða á Don
Juan eftir Mosart. Síðustu tónar
þessa yndislega verks klingdu
enn í eyrum mínum þar sem ég
stóð á tröppum Óperunnar og
leið í tveimur orðum sagt mjög
vel. Rek ég þá augun í vel
klæddan, lágvaxinn mann sem
virtist vera að leita að einhverju
í göturæsinu. Það er litið út á
klæðnaðinn að setja —
maðurinn er meira að segja með
hvítan silkihálsklút.
— Hafið þér týnt einhverju?
spurði ég.
— Nei, ég er bara að leita að
prógrammi, svaraði hann, —
hvað var annars verið að sýna
þarna inni?
— Don Juan, sagði ég eins og
öllum ætti að vera kunnugt um
hvað verið væri að sýna í
Óperunni. Ekki vissi þessi vel
klæddi maður mikið um það,
þar sem hann var að leita að
prógrammi. Ég spurði hann
hreint.út hvað ylli.
— Mig vantar fjarvistar-
sönnun! svaraði hann daufum
rómi. Ef þú ert giftur veistu
hvernig þetta er. Það er
bráðnauðsynlegt að komast að
heiman af og til og blaka
vængjunum eilítið innan um vif
og vín. Ekki satt! Ég slepp út ef
ég segist vera að fara í Óperuna.
Konan mín hefur engan áhuga á
því að stunda slíkan stað og
segist vera því fegnust að þurfa
ekki að sitja undir gauli og
skrækjum. Þannig kemst ég út.
— En hvers vegna i Óperuna?
Það er ekki mikið um gleðskap
þar . . . Maðurinn með hvíta
hálsklútinn svaraði spurningu
minni ekki beint.
— í öllu falli eru til staðir hér i
bæ þar sem meira er um að vera
en einmitt hér, svaraði hann og
það brá fyrir glettnisglampa í
augum hans. — En ég verð að
verða mér úti um miða í
Óperuna, annars er allt í voða.
— Þú mátt fá miðann minn,
sagði ég, — og prógrammið líka.
— Þakka þér kærlega fyrir,
þú gerir mér mikinn greiða. Þá
er fjarvistarsönnunin í góðu
lagi!
Hann teygði sig ofan í innri
jakkavasa sinn, dró upp bækling
og sýndi mér mynd af
berrassaðri dansmey á annarri
siðu:
— Ég er veikur fyrir henni
þessari — alveg sjúkur í ’ana.
Það er ekkert rúm fyrir óperu-
skræki þegar við tvö erum
saman.
Þegar maðurinn ætlaði að
stinga óperuprógramminu í
vasann var hann svo óheppinn
að vindhviða tók það og feykti
því í rennusteinana, í gegnum
ristina og ofan í ræsið.
— Æ, þetta var nú verra, sagði
ég. Við hlupum til og lögðumst á
fjóra fætur við ristina og
rýndum ofan í myrkrið.
Maðurinn rétti mér eldpýtna-
stokk og ég tók eftir því að hann
var merktur „Club Sex”. Þetta
var svo sannarlega herramaður
sem kunni að njóta lífsins.
Þarna sá ég prógrammið. — Við
náum því aldrei. Þú verður að
leita þéraðöðru.
Maðurinn var gráti nær af
örvinglan. Hamingjusamt hjóna-
llniturinn 2l.m;irs 20.:i|iríl N.uilið L'l.-.pril 2l.ni:ii
T\íhur;irnir 22.m;ii 21. júni
hr.'hhinn 22. júni 2.4. júli
l.jonið 24. júli 24.11*11*1
>k*\ j;in 24 ;ii*úsl 2.4.sepl.
Heldur er dauflegt yfir
umhverfi þinu þessa
dagana og það veldur
þér bæði eirðarleysi og
leiðindum. Hristu þetta
af þér og reyndu að
framkvæma snarlega
fyrirhugaða áætlun.
Einhver kemur þér á
óvart með óþægilegu
uppátæki og skaltu láta
það sem minnst á þig
fá. Tilfinninganæmi þitt
hefur valdið ýmsum
erfiðleikum og er nú
mál að linni.
Eigingirnin hefur komið
þér í koll og ekki síst
núna, þegar allt var
farið að ganga þér i
hag. Með lipurð ættirðu
að geta komið öllu í
samt lag aftur en verður
að gæta þín í
framtíðinni.
Láttu ekki athugasemdir
frá óvinveittum manni
hafa áhrif á þig. þvi
málstaðurinn er þinn.
Varastu samt að leita
réttar þíns á öllum
sviðum því skjótt
skipast veður í lofti.
Leiðindamál sem valdið
hefur þér hugarangri
sýnist nú úr sögunni og
er það einkum vini eða
kunningja þinum að
þakka. Þetta kemur sér
vel einmitt nú en vissara
að sýna þakklætið.
Svartsýnin hefur þjakað
þig að undanförnu og
að því er virðist að
ástæðulausu. Láttu ekki
skapið bitna á saklaus-
um ættingjunum,
reyndu heldur að gera
þér grein fyrir
ástæðunni.
^tiliiii 24.scp(. 2.\.okJ.
Timi framkvæmdanna
er runninn upp og þú
skalt forðast að láta
áætlanirnar renna út í
sandinn vegna þinnar
eigin leti. Hrintu þessu í
framkvæmd því að hika
er sama og að tapa.
Miklar breytingar eru í
vændum og þér bjóðast
óvænt tækifæri til að
hressa upp á fjárhaginn.
Hugsaðu þig samt vel
um og hafðu rækilega
hugfast að ekki er allt
gull sem glóir.
Ko(<ni;iOtirinn 24.nú\. 2Ulcs
Nýtt fólk verður á vegi
þínum og breytir á
ýmsan máta gömlum
viðhorfum til margra
hluta. Þér hættir til
fljótfærni, sem gæti
orðið skaðleg i
samskiptum við ókunn-
uga.
Slcingcilin 22. dcs. 20. jan.
Stattu ekki á skoðunum
þinum löngu eftir að
öllum er orðið Ijóst að
málið er tapað. Of mikil
ákveðni getur verkað
neikvætt og þér væri
betra að temja þér
umburðarlyndi.
Talnshcrinn 2l.j;in. lú.fchr.
Fjárhagsörðugleikar
gera þér lífið leitt og
framtiðin virðist með
dekkra móti. Ástandið
er þó að mestu
timabundið og með
ákveðni og hörku ættir
þú að komast yfir
erfiðasta hjallann.
Fiskarnir 20.fchr. 20. mars
Dagarnir eru líflegir og
ýmissa atvika vegna eru
breytingar á fleiri en
einu sviði ofarlega á
blaði. Gerðu þér þó ekki
of miklar vonir því þá
er mun hættara við
vonbrigðum.
I
34 Vikan 24-tbl.