Vikan


Vikan - 03.05.1984, Page 25

Vikan - 03.05.1984, Page 25
u Eldhús Vikunnar Umsjón: Jón Ásgeir Kanína með plómum Sígaunarnir eru sestir að. Þessi dularfullu þjóðarbrot, sem flökkuðu um Evrópu í litríkum búningum, búandi í húsvögnum og leikandi létta, fjöruga tónlist, halda nú orðið kyrru fyrir í álfunni. Það er aðallega sunnan til í Balkanlöndum og við Miðjarðar- hafið að sígaunarómantíkin lifir enn. Mataruppskriftir sígauna lifa líka góðu lífi. Þeir veiddu dýr og söfnuðu kryddjurtum, grænmeti og ávöxtum sér til matar. Þessir flakkarar áttu einnig í vöruskiptum við þorpsbúa á viðkomustöðum sínum — í skiptum fyrir tágakörfur, hnífaskerpingar og bjarnardans létu íbúar staðarins af hendi egg, spekk, fugla og kanínur. Við grípum niður i bók eftir dr. P. M. Bliiher um „Meistarastykki úr matreiðslu og drykkjargerð" þar sem sagt er frá uppskriftum úr hinu alþjóð- lega farandeldhúsi. Án þess að staldra við „maurasúpu með kartöflum og steinselju", „reykt refakjöt með slý- salati" eða „hamstursteik með pipar- sósu" vindum við okkur beint í kanínupottréttinn. Matreiðslan tekur tvo og hálfan tíma og máltíðin ætti að duga fyrir 4-6 manns. 10 steinlausar, þroskaðar, bláar plómur 50 grömm stórar rúsínur 2 sentílitrar brennivín safi úr einni sítrónu 1 kanína, um 1500 grömm, hlutuð í sundur salt svartur, nýmalaður pipar 3 matskeiðar smjör 3 matskeiðar ólífuolía 10 litlir, flysjaðir laukar 1 matskeið hveiti 1 thymian-sproti (eða 1 teskeið þurrkað thymian) 1 teskeið sykur 1 matskeið rauðvínsedik 1. Þvoið plómurnar og rúsínurnar og látið þær liggja í þrjá tíma í skál með brennivíni og sítrónusafa. Hrærið í af og til. 2. Þvoið kanínubitana, þerrið þá og núið með salti og pipar. Hitið smjörið og olíuna í potti, leggið kanínubitana í hann og brúnið þá vel á alla kanta. Veiðið bitana upp úr og geymiöþáádiski. 3. Gullinbrúnið laukana í feitinni, veiðið þá upp úr henni og geymið á diski. Hrærið hveitinu saman við feitina og sjóðið upp sósu með hálfum lítra af heitu vatni. Handþeytið sósuna. 4. Hellið kanínubitunum og vökvanum af þeim aftur í sósuna, sáldriö thymian yfir og lokiö pottinum vandlega. Látið krauma í pottinum við vægan hita í klukkutíma. Bætið lauknum og plómu- og rúsínu-blöndunni út í og látiö krauma áfram í aðra klukkustund. 5. Komiö kanínubitunum, ásamt laukum, rúsínum og plómum, fyrir á diski og geymiö á heitum staö. Bragðbætið sósuna með sykri og ediki. Hellið henni svo yfir kjötiö og berið fram þegar í stað. Með þessu má bera fram kartöflumús og grænt salat. Og þeir sem aðhyllast hófsemi drekka þurrt rauðvín með. 18. tbl. Víkan 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.