Vikan - 03.05.1984, Page 39
Texti: Hörður
háum snúningi var hún frekar
máttlaus á lægri snúningssviöum
og háöi það bílnum nokkuð. Sér-
staklega var þetta sorglegt því aö
fjöörunin er greinilega hönnuö
fyrir mikil átök og með stærri vél
hefði bíllinn orðið fantagóður
sportari og sannkallaður listdans-
ari götunnar. Eg ætla ekki að fjöl-
yrða um það, en náfrændi þessa
bíls, Golf GTI, hlýtur að vera
meiriháttar góður sem slíkur.
PJokkuð sem ekki sést
við fyrsta yfirlit
Aö sögn er nú búið að komast
fyrir hönnunargalla sem fólst í því
að vélin tók inn á sig óhreint loft
og olli því að ventlafóðringarnar
voru yfirleitt búnar eftir 80 þúsund
kílómetra. Ef þetta er rétt ætti
þessi vél að endast talsvert betur
enáður.
Enn ein mikilvæg breyting á
bílnum er sú að fjöðrunin, sem
áður var talin alltof slagstutt,
hefur verið lengd. Það hefur í för
með sér að minni líkur eru á því að
fjöörunin slái saman en áður. Eg
get svo sannarlega staðfest þetta
því að hluti reynsluakstursins var
akstur eins og bíllinn dró á malar-
vegi og aldrei kom þetta fyrir þó
að mikið væri reynt.
öll smíð bílsins ber vott um vand-
virkni og ég hef þá trú aö þessi bíll
sé eins og skapaður fyrir íslenskar
aðstæður, ekki spillir framdrifið
þar. Utsýni er gott að aftan, þar
hjálpar frábær afturrúöuþurrka,
en gluggapóstarnir að framan
eru sannkallaðir slysavaldar því
þar eru óþægilega dauðir punktar.
Nokkur
tæknileg atriði
Vél:
4 strokka, þverliggjandi, vatns-
kæld, 1272 cm3. 55 hestöfl (DIN)
við 5400 snúninga / mínútu,
snúningsseigla: 96Nm við 3300
snúninga / mínútu. Einn ofaná-
liggjandi knastás, drifinn með
tannareim. Rafmagnsknúinn
viftuspaði.
Drif oggírkassi:
Framdrif. 4 gíra alsamhæföur gír-
kassi. Einfaldur, þurr kúplings-
diskur.
Fjöörun og hemlun:
Sjálfstæð gormafjöðrun aö
framan. Heill öxull (biti) með
gormafjöðrun að aftan. Tvö óháð
bremsukerfi, sitt hvorum megin.
Diskahemlar aö framan en sjálf-
stillandi skálar að aftan.
í heild:
Ef ætti að draga saman þaö
helsta í fari þessa bíls myndi ég
segja aö hér væri á ferðinni ein-
faldur, látlaus bíll með ótrúlega
skemmtilega eiginleika í akstri.
Þó skyggir kraftleysi þar á. Pláss
er gott fyrir alla farþega og
skottiö er með því stærsta í
þessum stæröarflokki bíla. Mest-
Yfirbygging:
Sjálfberandi yfirbygging meö
eftirgefanlegum fram- og aftur-
hluta. 3 dyra, 5 manna. Rúmtak
farangursrýmis 410 lítrar, 1360
með framlögðu aftursæti. Hæð:
1,42 metrar. Lengd: 3,99 metrar.
Breidd: 1,67 metrar. Beygju-
hringur: 10,5 metrar. Eigin
þyngd: 845 kíló.
Vélarrúmió er þokkalega nýtt en var hræóilega laust við hlífóarpönnu sem
kæmi til með að bægja frá óþörfum vatnsgusum.
Verð og fleira
Þegar bíllinn var prófaöur
kostaöi hann 338 þúsund. Innifalið
í því er um það bil hálfur tankur af
bensíni en hvorki skráning,
ryðvörn né hlíföarpanna undir vél.
Sambærilegir bílar hvaö verð
snerti voru til dæmis: Laneer 1500
GLX, Nissan Sunny GL, Honda
Civic, Toyota Corolla og Citroen
GSA Pallas. I þessum veröflokki
eru hvað flestir bílar og því er
samkeppnin hörö. Þaö fer því
mikið eftir því hvað kaupandinn
hefur í huga þegar hann ætlar að
kaupa bíl úr þessum stóra hópi.
Annars vegar er þá um að ræða „ó-
evrópska” bíla, en þar virðist
vera meiri búnaður innifalinn í
veröinu. Hins vegar eru það svo
evrópsku bílarnir. Fljótt á litiö
sýnast þeir ekki hafa upp á eins
mikið að bjóða og til dæmis jap-
anskir bílar en á móti kemur aö
þeir evrópsku hafa betra orð á sér
hvað snertir gæði og endingu (aö
minnsta kosti vestur-þýskir).
Þegar allt kemur til alls tel ég aö
þrátt fyrir skort á aukahlutum
(lúxus) séu þokkaleg kaup í
Golfinum, sérstaklega vegna þess
aö mestar líkur eru til að hann
komi til meö að verða hollur eig-
anda sínum um langan tíma.
18. tbl. Vikan 39