Vikan - 03.05.1984, Page 40
1S Fimm mínútur með Willy Breinholst
Og herrann skapaði
silfurskott-
umar
Það eru komnar silfurskottur í
eldhúsið í sumarbústaðnum okk-
ar. Milljónir af silfurskottum. Þær
komu í ljós í rakabletti í eldhús-
skápnum og iðuðu og tifuðu um
allt draumaeldhúsið hennar Marí-
önnu svo hún var farin að óska
þess að hún ætti ekkert eldhús. En
sem betur fer finnast ýmsar leiðir
til aö losna viö skaðræðisskepnur
nú á dögum og þess vegna þarf
maður ekki að búa með silfur-
skottum stundinni lengur en
maður sjálfur vill. Þaö er aö segja
ef maður útvegar sér dós af skor-
dýraeitri. Því miöur uppgötvuöust
silfurskotturnar á sunnudegi og þá
var kaupfélagiö harðlokað, svo ég
neyddist til að athuga hvað ég
væri með í geymslunni. Ég fann
einhvern úðabrúsa og eftir því
sem ég gat best rýnt í máðan og
snjáðan miðann á honum stóð
annaðhvort rósailmur á honum
eða rottueitur. Eitthvað eiturkyns
var þetta alla vega því ég sá grilla
í hauskúpu og mannabein á
miðanum. Ég úðaði þessu á gólfið
í eldhúsinu, meðfram listunum og
skápdyrunum, fyrir framan elda-
vélina og ísskápinn og á ostinn
sem Maríanna hafði gleymt að
ganga frá. AUt fékk sinn skammt.
Silfurskotturnar dreifðu sér um
allt, ráðvilltar. Ein afburðagreind
komst brátt að raun um aö skálin
með sítrónubúðingnum var örugg
og gaf hinum merki um að forða
sér þangaö. Ég lét sem ég hefði
ekki tekið eftir þessu snjallræöi og
fór að strá eitri í gluggakistuna.
Þegar ég sneri mér leiftursnöggt
við skömmu síðar var sérhver
fersentímetri af sítrónubúðingn-
um hulinn silfurskottum. Eld-
snöggt stráði ég banvænum
CROSS-penninn veitir varanlega ánægju og jafnvægi þegar þú skrifar.
MIKIÐ ÚRVAL
cnm
Verslanir: Hallarmúla 2 s:832l I
Laugavegi 84 HaJ'narslrœti 18
Allar nánari upplýsingar:
PENNAVIÐGE RÐIN
Inqólfsstræti 2, sími 13271
40 Vikan 18. tbl.