Vikan - 03.05.1984, Síða 56
í næstu VIKU
Una Collins - í einum hvelli
Una Collins búningahönnuður er íslendingum að góðu kunn, svo oft hefur
hún séð um búningagerð fyrir íslensk leikhúsverk og þar að auki kvikmynd-
ina Atómstöðina sem kann að verða sýnd í Cannes á nœstunni. En hver er
þessi kona? Því fáum við að kynnast í hressilegu Vikuviðtali — í nœstu Viku.
Skrifstofuveldið
Frakkar efndu á síðasta ári til hönnunarsamkeppni um skrifstofuhús-
gögn. í nœstu Viku kynnum við sýninguna ,,L’Empire du Bureau” sem
haldin er íþessu tilefni á Skreytilistasafninu í París.
Stjörnuleitin stendur enn
Við höldum áfram að kynna leitina að stjörnunum tveim, Hollywood-
stjörnunni og Sólarstjörnu Urvals — og nú er fulltrúi ungu kynslóðarinnar
líka með í málinu. I nœstu Viku kynnum við tvœr stúlkur í viðbót.
Tölvublað fyrir byrjendur
Við göngum ekki svo langt að halda því fram að í nœstu Viku sé að finna
lykilinn að skilningi á því hvernig tölvur starfa. En þeir sem œtla að kynna
sér tölvur og notkun þeirra œttu skilyrðislaust að ná sér í nœstu Viku afþví
að þar eru grundvallaratriðin skýrð.
Við segjum einnig frá helstu gerðum af leikjatölvum og tölvuleikjum. Og ef
lesandinn vill vita meira getum við helstu tölvuskólanna og tölvubóka á
íslensku. En fyrst er að ná sér í nœstu Viku. . . .
Rölt um flóamarkað í Amsterdam
Vonandi heldur enginn lengur að flóamarkaður sé markaður fyrir flœr,
þótt kannski geti þcer stöku sinnum fylgt með í kaupunum ef illa tekst til.
Nei, flóamarkaður er markaður þar sem hœgt er að kaupa allt milli himins
og jarðar, líklegt sem ólíklegt, frá fölskum tönnum upp í fín föt og allt þar á
milli.
Vikan átti leið um Amsterdam á dögunum og brá sér þar meðal annars á
flóamarkað — en meira um það í nœstu Viku.
Sumarfötin í ár eru heimasaumuð!
Það er mjög áberandi í sumartískunni í ár hvað öll snið eru einföld. Og þá
er um að gera að nota tœkifœrið og sauma sér fallega sumardressið sem
birtist í nœstu Viku. Sniðið er einfalt og ítarlegar leiðbeiningar fylgja svo að
jafnvel byrjendur í saumaskap geta orðið einu dressinu ríkari á örskömmum
tíma.