Vikan - 31.05.1984, Side 8
Fjölhæfur
fjórhjóladrifinn
fjölskyldubíll
Til aö sjó er Toyota Tercel 4WD
svolítið skondinn bíll. Einhver oröaöi
þaö svo aö þarna heföi fjögurra dyra
fólksbíll veriö geröur aö stationbíl meö
því aö sjóða kassa aftan á hann. Satt
aö segja þótti mér bíllinn ekki fallegur
þegar ég sá hann fyrst en hann venst
vel og þegar maöur kynnist eiginleik-
um hans og notagildi fer manni brátt
aö þykja gripurinn hinn laglegasti.
Þaö er gott rúm í honum til ýmiss
konar flutninga. Eins og hann kemur
fyrir er spjald yfir skottinu aftan viö
aftursætisbökin í svipaöri hæö og efri
hluti þeirra. Undir þessu spjaldi er
rúm sem hver fólksbíll væri fullsæmd-
ur af. Undir gólfinu er varadekkiö
geymt en í lokaðri hirslu til hliöar er
tjakkurinn og felgulykillinn. Ofan viö
spjaldiö, uppi í hornunum, eru lúgur til
aö komast aö því aö endurnýja perur í
afturljósunum. Og svo er ekkert
auöveldara en kippa spjaldinu burtu
og þá er rýmisins vegna hægt aö hlaöa
bílinn alveg upp í topp; lofthæðin frá
gólfi er þá 121,5 sm.
Síöan er hægt að leggja sætisbökin
fram, annaöhvort alveg eöa hálft bakiö
í einu, ef um er aö ræöa færri farþega
en fyrirferöarmeiri flutning. Og ef viö
viljum halda lengra áfram til aö finna
okkur flutningspláss á Tercelnum hef
ég séð þá meö dráttarkúlu fyrir kerru,
tjaldvagn eöa húsvagn, og toppgrind
þar aö auki, og þá fer nánast aö vera
spurning hvenær litla greyinu er ofboö-
iö í tilætlunarsemi um flutningsgetu,
því menn mega ekki gleyma því aö þótt
margur sé knár þótt hann sé smár er
Toyota Tercel 4WD fyrst og fremst
fjölhæfur fjölskyldubíll meö fjórhjóla-
drifi — hvorki jeppi né trukkur!
Afturhlerinn opnast upp, vel upp, og
þægilegt aö athafna sig undir honum
án þess aö bogra. Hann opnast líka al-
veg niöur aö gólfi svo þar veröur engin
brík eins og tíökast hjá þeim sumum,
og þaö er kostur sem þeir kunna aö
meta sem hafa mátt búa viö bríkina.
Á afturhleranum er aö sjálfsögöu
afturglugginn, stór og góöur, meö hita-
þráöum, þurrku aö utan og rúöu-
sprautu. Þaö kemur sér vel því eins og
flestir stationbílar, sem eru þverir aft-
an fyrú', eys hann talsvert upp á sig í
bleytu og afturglugginn væri fljótur aö
byrgjast ef ekki kæmu til þurrkan og
sprautan. Sennilega væri til mikilla
bóta upp á þetta atriði aö gera aö búa
bílinn vindskeiö á afturbrún, eins og
gert hefur veriö gegnum tíöina viö
marga stationbíla.
Þegar á heildina er litið er þetta
kjörgripur hinn mesti til allra al-
mennra nota og raunar nokkuö meira
— eins og einhver heppinn Vikuáskrif-
andi fær aö reyna eftir 19. júlí í ár, en
þann dag veröur dregið um Toyota
Tercel 4WD í afmælisgetraun
Vikunnar.
8 Vikan 22. tbl.