Vikan - 31.05.1984, Síða 24
~\5 Heimilið
Hvernig er hægt að upplrfa ÁNÆGJULEGA megrun?
Nú, þegar tími sólbaða og léttra
klæða gengur í garö, hefst grátleg
og örvæntingarfull barátta viö
aukakílóin. Þessi barátta er
sjaldnast ánægjuleg en þó er hægt
aö minnka kvalræðið með ýmsum
aöferöum.
Tveir megrunarmatseðlar eru
hvaö vinsælastir í dag: trefjaiík
fæða er á öðrum matseðlinum og
fitusnauö fæða á hinum. Sérfræð-
ingar VIKUNNAR hafa reynt
báöar þessar aöferðir og komist
að raun um að heppileg blanda af
þessum tveimur matseðlum gefi
hvaö ánægjulegastan og áhrifa-
mestan árangur! Til að tryggja
sem bestan árangur þarf viökom-
andi að sannfæra sjálfan sig um
að trefjarík fæöa, eins og hreint
musli, sé eitt það besta sem völ er
á!
Hreint musli, án sykurs, rúsína,
hneta og kanils, er nú ekki girni-
legur málsverður. En ef þiö bætið
út í þaö stöppuðum banana
(AÐEINS einum þriðja hluta hans,
takk fyiii-!), þíðum jarðarberjum,
niðursneiddum ferskjum og slepp-
iö því aö sulla yfir þaö mjólk og
sykri, þá er þetta öndvegis
megrunarmáltíö og mjög mett-
andi.
Trefjarík fæða
Það er mjög nauðsynlegt að boröa
trefjaríka fæðu þegar þið eruð í
megrun. Þetta er ekki bara tísku-
fyrirbrigði, þið megið treysta því.
Sérfræðingar mæla með 25%
aukningu trefja í megrunarfæði.
Margar heföbundnar megrunar-
aðferðir hafa á bannlista trefja-
mikla fæðu eins og brauð, pasta,
baunir og rótargrænmeti en þaö er
algjör óþarfi. Það er yfirleitt
snjörið ofan á brauðinu og áleggið
sem er meira fitandi en brauðið
sjálft og því er auðveldlega hægt
aö hafa þessar fæðutegundir með
á megrunarmatseöli sem er bæöi
fjölbreyttur og vel skipulagður.
Fitusnauð fæða
Fita og olíur eru miklir orku-
gjafar og ríkar af hitaeiningum!!
Af þeirri ástæðu einni er nauösyn-
legt aö skera niöur fituríkar fæðu-
tegundir, þó sumir mæli á móti
því. Um leiö og þessum fæöu-
tegundum er kastað út af matseöl-
inum megrast fólk af sjálfu sér.
Ennfremur er mælt með lítilli
neyslu þeirra vegna aukinnar
tíðni hjartasjúkdóma sem eru
raktir beint til of mikillar fitu-
neyslu. Sérfræðingar mæla með
lítilli fituneyslu bæði í sambandi
við kjöt og mjólkurvörur. Þaö er
vel hægt að minnka fituneyslu án
þess aö það valdi of sársauka-
fullum breytingum á matar-
venjum auk þess sem þaö er
undirstaða vel heppnaðar
megrunar.
Matseðillinn:
Trefjaríkar fæðutegundir:
Gróft brauð er nauösyn, veriö
bara viss um aö þaö sem þið eruö
aö kaupa sé hundrað prósent gróft
brauö, ekki blandaö með hvítu
hveiti sem er bannvara!
Gróft brauð er hátt skrifað á trefjaríka
megrunarmatseðlinum.
Þaö er til mikið úrval af
tilbúnum trefjaríkum morgun-
verðum í pökkum. Sleppiö þessum
sem eru meö sykri og rúsínum og
veljið frekar þá sem eru járnríkir.
Nú er til úrval af hýðishrís-
grjónum. Þau eru miklu bragö-
meiri og innihalda meiri trefjar en
hvít hrísgrjón og eru auðveldari í
matreiöslu.
Grænmeti og ávextir eru trefja-
ríkar fæðutegundir og hafa fáar
hitaeiningar. Best er að borða þaö
hrátt eöa léttsjóða það með hýðinu
á. Við suðu: ekki skera það í bita
og notið eins lítiö vatn og mögu-
legt er og hafið eldunartímann
eins stuttan og hægt er.
Fitusnauðar fæðutegundir:
Forðist umfram allt feitt kjöt,
djúpsteiktan mat, smjör og smjör-
líki, rjóma, matarolíur, ost, sósur,
majónes, kex, kökur, búöinga og
eftirrétti, súkkulaði og hvers
konar snakk í pokum.
Smávægilegar breytingar við
val á fæðutegundum og eldunar-
aðferöir geta verið lykillinn að vel
heppnaöri megrun. Grillið frekar
en að djúpsteikja. Skerið fituna af
kjötinu áöur en þið steikið það.
Steikiö kjöt á grind svo fitan leki
úr því. Notið jógúrt og krydd í
staðinn fyrir rjóma og majónes.
Reynið að forðast smjör og smjör-
líki eins og hægt er. Leggið meiri
áherslu á magniö af fersku græn-
meti og ávöxtum í málsverðinum
en magniö af kjötinu.
24 Vikan 22. tbl.