Vikan - 31.05.1984, Qupperneq 29
Skylab-geimfarió er bútaó nióur
og gestir safnsins geta farió inn í
vistarverur geimfaranna og skoð-
að sig um.
SPfiŒ MUS6UM
- stærsta stofnun sinnar tegundar í heimi
Texti og Ijósmyndir: Hrafnhildur
Skylab er til dæmis alltaf löng. Þar geta
gestir gengið inn í geimfarið og skoðað þær
aðstæður sem geimfarar verða að búa við á
ferðum sínum um himinhvolfið. Það er ekki
hægt aö segja aö íburöur sé þar mikill! Menn
hafa rétt olnbogarými þegar þeir eru við
vinnu og ekki batnar það þegar þeir svífa inn í
draumaheiminn í orðsins fyllstu merkingu.
Þá er betra að passa aö renna rennilásninn á
svefnpokanum vel upp aö höku því annars er
hætta á að menn svífi hreinlega úr honum!
Matarföng eru öll í dósum og í borðunum
eru holur sem dósirnar eru skorðaðar í. Og
sturtan, þaö var merkilegt apparat, stór
plastpoki. . . með rennilás auövitaö. Inn í
hann var leidd slanga sem sá um afganginn.
Þaö var ekki laust við að menn fehgju inni-
lokunarkennd þann stutta tíma sem staldrað
var við inni í þessum þrönga farkosti. Og mik-
il voru viöbrigðin að koma aftur út í stóran
salinn á ný. Lofthæðin þar virðist í fyrstu
gífurleg en hún er þó ekki svo mikil að
geimfarið, sem er staösett á miðju gólfi,
komist þar fyrir. Því stendur trjónan á því
upp úr þakinu á safninu.
En það er fleira í þessu safni en geim-
vísindasagan þó yfirleitt fari svo að menn
staldri lengst við þann hluta safnsins. Flugvél
Charles A. Lindbergh, SPIRITOF ST.LOUIS,
er þama varðveitt, en á henni flaug hann sitt
fræga flug frá New York til Parisar 20,—21.
maí 1927. I einum sal eru gevmd málverk og
önnur listaverk sem sýna hugmyndir manna
um flug og geimferðir. Og þar má sjá undar-
legt fyrirbrigði, marglitt sem snýst á alla
enda og kanta. Efst á þessu víravirki má
greina mannsmynd sem rær allt hvað af tekur
með tennisspöðum, líklega til að koma furðu-
verkinu á loft! Undir þessu er spiluð tónlist
sem einna helst minnir á spilakassatónlist.
Það var aðeins eitt sem maður saknaði eftir
að hafa gengið um sali í þessu merka safni og
tekið þátt í þróunarsögu flugsins með svo
margvíslegum hætti. Það var að fá ekki aö
fara inn í þyngdarlaust herbergi og spreyta
sig á því að athafna sig undir sömu kringum-
stæðum og geimfararrúr verða að gera á ferð-
um sínum um hiödularfulla himinhvolf.
Alan Shepard var fyrsti Bandaríkjamaóurinn sem fór
út í geiminn, árið 1961. Í glugganum má sjá brúðu í
likámsstærð svo Ijóst er að svigrúmið var ekki mikið
fyrir geimfarann.
— I
22. tbl. Vikan 29