Vikan - 31.05.1984, Blaðsíða 48
Pósturinn
AIRMAIL
PAR AVION
Michael Lán
Jackson til skóladvalar
Ilœ, hœ, kœri Póstur.
Ég hef áhuga á ad vita
eitthvað um Michael Jack-
sou. Er hann giftur og á
hann hörn? Hvar á hann
heima? Á liann aðdáenda-
klúbb og hvar er hann? Er
nokkur aðdáendaklúbbur
hans á íslandi? Er hœgl að
fá plakat af honum í Vik-
unni?
Með fgrirfram þökk.
Aðdáandi.
Þaö birtast reglulega bréf til
Póstsins þar sem beðið er um upp-
lýsingar um Michael Jackson og
nú er svo komið aö Pósturinn situr
uppi með ein sex bréf þar sem
spurningarnar eru þær sömu.
Því miöur veit Pósturinn ekki
mikiö um Michael Jackson annaö
en þaö sem af og til birtist í blöö-
um og tímaritum um piltinn. Hann
mun þó enn vera ógiftur og barn-
laus og býr í New York. Heimilis-
fangiö hans hefur Pósturinn ekki
enda er ekki algengt að heimilis-
föng svona þekktra manna séu
birt á prenti. Hins vegar hefur
hann aö sjálfsögðu aðdáendaklúbb
og þangað ættir þú og þiö hin aö
skrifa og fá þær upplýsingar sem
ykkur vantar. Þið munið auövitaö
að skrifa á ensku og senda umslag
meö nafni ykkar og heimilisfangi
meö og svo alþjóðlegt svarmerki
sem þiö getið keypt á pósthúsum.
Og utanáskriftin er:
Michael Jackson
c/o Weisner-DeMann
Entertainment Inc.
9200 Sunset Blv. Penthouse 15
Los Angeles
CA 90069, California.
Ekki veit Pósturinn til þess aö
Michael eigi sér aödáendaklúbb
hér á Fróni en þaö ætti aö vera
auðvelt að hóa saman fólki í klúbb
fyrir piltinn. Plaköt eru ekki á
dagskrá í Vikunni í bili en aftur á
móti er aldrei aö vita nema popp-
sérfræðingurinn okkar, hann
Höröur, komi með nýjustu fréttir
af Michael og hans málum ásamt
litmynd einhvern daginn.
Kœri Póstur.
Ég œtla bara að koma mér
að efninu í von um góð og
skgnsamleg svör eins og
vanalega. Þannig er mál
með vexti að ég er í skóla og
hef áhuga á að halda því
áfram, en ég er bara 17 ára
svo ég fœ ekki mikið kaup í
sumar og skólinn er mjög
dgr. Ég þarf líka að borga
fœði og húsnœði nœsta
vetur. Er einhver stofnun til
sem lánar skólanemum pen-
inga til tveggja til fimm ára?
Vonandi getur þú hjálpað
mér því ég verð vitlaus ef ég
á að búa heima einn vetur
enn. Ég fœ nefnilega aldrei
frið til að lœra fgrir sgstur
minni sem er aðeins eldri en
ég.
Með von um skjót svör.
Takk, takk. GG.
Það er dálítiö erfitt fyrir Póst-
inn aö gefa þér afgerandi svör í
þessu máli vegna þess aö hann
vert ekki í hvaða skólanám þú
hefur hugsaö þér aö fara né hvert.
Fyrir þá sem búa úti á landi eru til
svokallaðir dreifbýlisstyrkir sem
nemendur geta sótt um ef þeir
þurfa aö sækja nám til dæmis til
Reykjavíkur. Þetta er aöeins hægt
að fá ef nemandinn getur ekki sótt
sambærilegt nám á heimaslóöum
og er þetta gert til aö jafna
aðstöðu nemenda um land allt.
Ekki eru það nú samt miklir
peningar sem um er aö ræða, eitt-
hvaö í kringum 10 eöa 11 þúsund
krónur yfir veturinn. Það er engan
veginn hægt aö líta á þessa
peninga sem eitthvað til að lifa af
en hins vegar er þetta smáuppbót
en ekki er hægt aö sækja um þessa
peninga ef þú átt kost á náminu í
heimabyggöinni. Sá sem býr í
Reykjavík og vill komast aö
heiman í skóla út á land á því ekki
rétt á aö fá þennan styrk.
Þegar komið er lengra í námi,
þaö er aö segja þegar þú kemur í
framhaldsnám, er til stofnun sem
nefnist Lánasjóður íslenskra
námsmanna og þangað geta allir
leitað um lán. Þessi stofnun er til
húsa aö Laugavegi 77 í Reykjavík
og ættir þú aö hafa samband viö
hana og fá upplýsingar. Þetta á þó
aöeins við þegar komið er aö
framhaldsnámi. Síminn hjá Lána-
sjóðnum er 25011. Ekki veit
Pósturinn til þess að aðrar
stofnanir láni námsmönnum sér-
staklega.
Ef þetta fer nú þannig aö þú
kemst ekki í burtu í skóla (Póstur-
inn á erfitt meö aö svara þessu
ööruvísi vegna þess hversu óljós
þessi mál eru honum) ættir þú aö
reyna aö tala um þessi mál viö
systur þína. Þaö er alveg ófært aö
þú þurfir aö flýja heimiliö vegna
þess aö hún lætur þig ekki í friði.
Þiö ættuö ef mögulegt er að reyna
aö komast aö einhverju samkomu-
lagi meöhlutina.
Hann hendir
mér í burtu
Hœ, hœ, elsku Póstur.
Ég hef aldrei skrifað þér,
en af hverju ekki að taka út
ritvélina og vélrita þér? Ég
er að drepast úr ástarsorg út
af strák sem heitir. . . Jœja,
ég œtla nú ekki að segja þér
það en við skulum kalla
hann Z. Þannig er að við
erum stundum saman í
partíum en þegar við erum í
skólanum kallar hann mig
pöddu. Vinir hans segja að
hann vilji bara vera með mér
stundum og það skil ég vel.
En að láta svona við mig,
það skil ég ekki. Af hverju
lœtur hann svona? Ég veit
að hann er hrifinn af stelpu
því þannig vill til að hún er
frœnka mín. Hann hefur
hins vegar engan séns í
hana. Hún er í 7. bekk en við
erum í 6. bekk. Út af hverju
hendir hann mér í burtu?
Eða hendir hann mér í
burtu ? Hvað þarf maður að
vera gamall til að komast í
módelsamtök?
Bless, bless.
Marilgn Monroe
I fyrsta lagi áttu alls ekki aö
skilja að Z vilji bara stundum vera
meö þér og í öðru lagi áttu alls
ekki vera að láta þaö eftir honum
aö hlaupa til hans þegar hann vill
þegar hann svo í ofanálag kallar
þig pöddu á eftir. Þetta er alveg út
í hött. Ef vinir hans segja þar aö
auki að hann vilji aðeins vera meö
þér þegar honum sýnist er þetta
ekki samband sem er þess viröi að
halda því áfram. Af hverju hendir
hann þér í burtu? Kannski heldur
hann aö hann sé ofsa gæi af því aö
hann getur verið meö þér þegar
hann vill og síðan hreytt í þig
asnalegum oröum á eftir. Hann er
líka unglingur í 6. bekk sem er
ekki kominn meö nægilegan
þroska fyrir svona sambönd. Þiö
eruð ung, aöeins í 6. bekk, og eigið
lífið framundan og þurfið ekkert
aö flýta ykkur í þessum málum. Z
er ef til vill líka dálítiö feiminn
eftir aö hafa verið meö þér í part-
íunum og hagar sér því svona í
skólanum á eftir. Nei, þú ert ung
og það er áreiöanlega fullt af
sætum strákum í kringum þig til
aö veröa skotin í. Þú skalt hafa
samband við Módelsamtökin og fá
þar upplýsingar um þessi mál því
þar sýna bæði börn og fullorönir.
Úrval
KJÖRINN
FÉLAGI
48 Vikan 22. tbl.