Vikan - 05.12.1985, Blaðsíða 43
Jólasveina-
stelpur
Efni: Bómullarefni, rautt filt,
isaumsgarn, snæri og polyester-
vatt, tvinni, rauður vaxlitur.
Takið upp sniðin. Teiknið þau á
efnið og klippið út. Munið að reikna
með um það bil 1/2 cm saumfari á
kjólnum. Kjóllinn er saumaður
saman á röngunni, op skilið eftir
fyrir vatt. Klippið raufar upp i efnið
alls staðar þar sem eru bogadregn-
ar linur. Snúið kjólnum við og
troðið vatti inn i (ekki mjög miklu),
saumið fyrir opið. Stingið svo upp
og niður með litlum sporum rétt
innan við saumfarið allan hringinn.
Saumið i andlitið. Húfan saumuð
saman, andlitið sett inn undir og
hárið saumað með. Svolítið vatt
sett inn i húfuna og undir andlitið.
Hendur og fætur saumað á og
saumað í eins og sýnt er á teikning-
unni. Upphengi sett í húfuna. Setjið
smálit i kinnarnar með vaxlit.
Kransar og kertastjaki úr trölladeigi
Uppskrift að trölladeigi: 2 hlutar salt, 2 hlutar hveiti og 1 hluti vatn.
Notið deigið strax og bakið við vægan hita í 1 — 1 1/2 klst. Látið kólna vel áður en það er
málað. Málað erá með módellitum, rauðum og grænum.
Deigið er hnoðað og rúllað í lengjur, þær siðan fléttaðar i hring. Berin: Búnar eru til litlar kúlur
og stungin göt i þau með prjóni. Bleytið örlitið með vatni til að festa berin á ef þau vilja tolla
illa.
Kertastjaki: Hnoðuð er kúla sem siðan er þrýst svolítið ofan á. Gat fyrir kertið er mótað með
þeirri stærð af kerti sem nota á. Gatið er haft örlitið víðara en kertið.
Nafnspjöld
Efni: Kartonpappir, rauður, túss-
litur, föndurlitir, lim og trölladeig.
Deigið á að nota strax, það má
fletja út eða hnoða og móta eftir
vild og baka við vægan hita i um 1 —
11/2 klst. Látið kólna vel.
Klippið út spjald i stærðinni 6x10
cm. Brjótið það svo í tvennt.
Bökuðu mynstrin lituð og látin
þorna vel, síðan eru þau límd á
spjöldin.