Vikan - 05.12.1985, Blaðsíða 30
kom fram í Hippodrome að viðstödd-
um tvö þúsund og sjö hundruð manns,
aðeins. Þetta voru bestu hljómleikar
hljómsveitarinnar fram að þeim tíma og
áhorfendurnir kunnu svo sannarlega að
meta konsertinn. Þeir létu vel í sér
heyra enda ólíkt Bretum að sitja og
halda kjafti ef þeim líkar eitthvaö, hvort
sem það er fótbolti eða músik.
Meðan á dvöl hljómsveitarinnar í
London stóð notuðu þeir félagarnir tím-
ann til aö heimsækja hin ýmsu plötufyr-
irtæki, stór og smá, og voru móttök-
urnar þannig að ekki var ástæða til ann-
ars en bjartsýni og bjartsýni er eitt sem
ekki vantar hjá meðlimum Rikshaw,
reyndar er bjartsýni lifsnauðsyn í þess-
um bransa.
Þegar heim var komið var haldið
áfram að æfa og ný lög samin. i sumar
og haust kom Rikshaw nokkrum sinn-
um fram i Hollywood við góðar undir-
tektir. Það var auðheyrt að hljómsveit-
inni fór fram i hvert skipti og er hún nú
oröin með eindæmum pottþétt á tón-
leikum.
Rikshaw er aðaláhugamál allra með-
lima hljómsveitarinnar, reyndar er ekki
hægt lengur að tala um áhugamál,
hljómlistin er oröin þeirra aðalstarf og
fer orðið allur vökutimi þeirra í að sinna
hinum ýmsu þáttum er snerta hljóm-
sveitina á einn eða annan hátt og eitt er
víst að þetta er engin smávinna þvi aö i
raun er hljómsveit ekkert annað en fyr-
irtæki þar sem útsjónarsemi og ómæld
vinna er undirstaöa góðs gengis.
Og hvað er það svo sem stendur á
bak við Rikshaw? Jú, nafnið Koolie
productions stendur á auglýsingaplak-
ötum sveitarinnar og þegar maöur spyr
strákana fyrir hvað það standi svara
þeir alvarlegir, með glampa i augunum
og sallarólegir: ,,Koolie er kallinn sem
dregur hlaupavagninn." — Nú, já, en
er þetta umboösfyrirtæki ykkar eða
nafn á óþekktum velunnara eða hvaö?
No comment. Meira fæst ekki uþp um
Koolie prd. og verður þetta aö nægja i bili.
Sigurður
Gröndal.
Sigurður
Hannesson.
Hann er
hættur.
Platan
Þegar liða tók á sumariö héldu strák-
arnir i hljóðver til að taka upp grunna að
fjórum lögum sem setja átti á plast þeg-
ar lengra liði á árið. Upptökurnar fóru
fram í Stúdíó Mjöt og Grettisgati undir
stjórn Jóns Gústafssonar, Tómasar
Tómassonar og Kjartans Kjartansson-
ar. Upptökurnar fóru aöallega fram á
nóttunni og er upp var staöiö voru
menn ánægðir meö útkomuna og töldu
sig hafa náð þvi sem til stóð.
I lok september hélt svo hljómsveitin
út til að leggja síöustu hönd á lögin,
bæta inn söngnum og snurfusa. Þessi
vinna fór fram í Paradise Studio og The
Point Studio sem bæöi eru í London og
eru af fullkomnustu gerö. Við stjórnvöl-
inn var maður að nafni Danny Hyde
sem þykir mjög fær á sínu sviði. Press-
un og allur frágangur plötunnar fer
sömuleiðis fram í Englandi.
Vídeó
I dag er videóiö oröið ófrávikjanlegur
hluti popptónlistarinnar og þar er Rik-
shaw engin undantekning. Gerð hefur
veriö mynd viö eitt lagið á nýju plötunni
og hefur það væntanlega veriö sýnt
þegar þið lesið þetta. Það var Karl Ósk-
arsson kvikmyndatökumaður sem
gerði myndina með Rikshaw en hann
átti einmitt heiöurinn af vídeói Bone
Symphony sem var alveg feikigott.
Rikshaw hefur verið boðið að spila í
Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Eng-
landi og eru þau mál i athugun enda er
þetta meira en að segja það, svona
feröalag krefst mikillar skipulagningar
og er ákaflega kostnaöarsamt og flókið
mál.
I hugum fjölda fólks er lif poppara eitt
stórt húllum hæ þar sem menn spila á
kvöldin, eru i partíum alla nóttina, sofa
á daginn og vímugjafarnir eru hrærðir
út í súrmjólkina. Svo er nú ekki með
Rikshawstrákana, þeir eru algjörlega á
móti eiturlyfjum og neyta þeirra ekki
enda þarf maður ekki annaö en að lita á
þá til að sjá að þeir eru lausir við allt
slikt, heilbrigðin og lifsánægjan beinlin-
is skín af þeim. Það er tíska í dag að
vera hraustlegur, snyrtilegur og vimu-
laus og Rikshaw er í takt við tímann.
Og hvernig tónlist spilar svo Rik-
shaw? Það er nú það. Mér hefur reynst
ákaflega erfitt aö setja tónlistina i ein-
hvern ákveöinn bás. Þeir hafa náð
ákveðnu sándi sem ég vil meina aö sé
þeirra eigið en ef þarf að líkja þeim við
einhverja held ég að það sé best að
segja aö þeir séu allt frá bresku hljóm-
sveitinni Japan (blessuð sé minning
hennar) til hinna írsku vina vorra U2.
Umfram allt held ég aö óhætt sé að
segja aö Rikshaw spili gæðapopp af
bestu gerð sem er boölegt hvar sem er.
Óhætt er aö mæla með bæði nýju plöt-
unni og ekki síður að sjá Rikshaw
,,live" og ættu unnendur lifandi tónlist-
ar ekki að láta þaðfram hjá sér fara.
Þá er eiginlega ekkert annað eftir en
að óska Rikshaw til hamingju með nýju
plötuna, þakka þeim félögum fyrir
skemmtunina og vona að þeir haldi
húmornum hvernig sem gengur í hinum
hraða og hrjóstuga poppbransa. Gangi
ykkur vel.
30 Vikan 49. tbl,