Vikan

Eksemplar

Vikan - 17.04.1986, Side 6

Vikan - 17.04.1986, Side 6
sig og setja hárið í réttar skorður. Kukl hafði ekki spilað í Hollandi síðan á „Pandóru“hátíðinni 1983 en þá höfðu þau fengið mjög góðar viðtökur. Og ekki voru þær af verri sortinni þetta kvöld. Allt frá því að Sigtryggur taldi í fyrsta lagið og þangað til tónar síðasta uppklappslagsins dóu út voru áhorfendur heillaðir. Og þeir dönsuðu. Meginlandsbúar virðast nefnilega skynja ein- hverja takta í tónlist Kukls sem íslenskir geta ekki gripið. Að vísu kom í ljós eftir tónleikana að meðal dansandi fjöldans höfðu leynst nokkrir islendingar. Þegar lokið var við að róta hljóð- færum og öðru af sviðinu var svo sest að léttu sumbli með sam- löndunum í búningsherberginu. Þá fór Björk heim á hótel og síðan hver af öðrum. Og við sváfum í rúmum. Og dreymdi hjól og skauta. Daginn eftir var vaknað um hádegi og snæddur morgunverð- ur. Quentin er popparahótel eins og áður hefur verið greint frá og þar er afgreiddur morgunmatur til klukkan tvö! Þannig eru popparahótel., ú var brunað af stað til bæjarins Apeldoorn þar sem spilað skyldi um kvöldið. Þetta er iðnað- ; arbær sem er meira og minna í eigu Philips en sú fígúra átti þó ekki staðinn þar sem Kuklið spilaði. Sá var í höndum pönkæskunnar og nefndist Gigant. Það sem helst bar til tíðinda á þeim tónleikum var að Einar Örn söng nokkur laganna á barnum þar sem hluti gestanna hafði verið svo ósvífinn að hreiðra um sig. Um nóttina var sofið á Hotel-Pension ASTRA. Þar gleymdi ég guil- hring sem bévaður hótelstjórinn er ekki ennþá búinn að senda mér. Svo var það Berlín .. . ÞOKAN Á AUSTUR-EVRÓPU- HRAÐBRAJJTINNI Við héldum beint í austur. Þetta var sunnudaginn 23. febrú- ar og næstu tónleikar voru ekki fyrr en daginn eftir. Það var ágæt tilbreyting að þurfa ekki að keyra eins og vitlaus og þegar við komum inn í V-Þýskaland þóttumst við vera í íslenskum helgarbíltúr. Þess vegna stopp- uðum við í einhverri „valhöll" og átum svakalega góðar epla- kökur með rjóma og drukkum heitt súkkulaði með Biggi át kartöflusalat og úti voru sk.uar af fjölskyldum að skauta á ein- hverju „þingvallavatni". En áfram í austur! Það fór léttur fiðringur um hópinn þegar aust- ur-þýsku landamærin nálguðust því þeir sem þar vinna eru þekkt- ir að því að vera mjög vinnuglað- ir. En viti menn! Kuklmóbíl var vinkað í gegn af viðeigandi virð- ingu. Það verður að segjast að vegabréfasafn okkar var óvenju gott. Stærðfræðingur, rafvirki, skáld, Mass-communicator, bóka- útgefandi, tónlistarmaður og liinir ómissandi nemar. Hvaða þjóð býður svona hóp ekki vel- kominn? ið keyrðum sem leið lá eftir hraðbrautinni til Berlínar, hinni svoköll- uðu transit-leið. Ut af henni má alls ekki fara nema til að taka elds- neyti eða versla í Inter- shop. Intershop eru svona „kaup- félög" þar sem hægt er að kaupa alls kyns munaðarvörur eins og mikkamús-úr, gallabuxur, danska skinku, ilmvötn og fleira sem neyslubrjálaður Vestur- landabúinn getur ekki verið án þessa klukkutíma sem það tekur að aka transit-leiðina. Meðfram leiðinni er varla nokkur byggð, aðeins skógar og stöku hernað- armannvirki. Það tók að kvölda og fullt tunglið kom upp yfir trén. Þegar við vorum kornin fast að vesturhluta Berlínar var orðið aldimmt og við tókum vit.lausa beygju. í þrjá tíma þvældumst við um lítil þorp og bæi suður af borginni og í ofanálag skreið ógurleg þoka um vegina, sann- kölluð gerningaþoka, en við viss- um af Vestur-Berlín einhvers staðar skammt handan hennar. Og þangað komumst við svo að lokum án þess að vera kvalin af austur-þýsku pólitíi. Þokunni létti og galdrarnir létu undan íslensku „kuklinu" sem rann inn í borgina eins og vindmylla í feita vinnukonu. STJÓRNLEYSI OG HRUN EÐA ANNA í NEÐANJARÐAR- BORGINNI Eg efast um að ég geti nokkru bætt við það sem skrifað hefur verið um Vestur-Berlín, þetta virki utan um endalaus sýnis- horn af vestrænum veruleika. Og allt í háspenntum gír. Kukl er vinsælt i Berlín. Þá þrjá daga, sem við dvöldum þar, æstu Ber- línarbúar hver annan -upp með því að spila plöturnar þeirra í útvarpinu. Fyrstu tónleikarnir voru á stað sem heitir .K.o.b. og er í húsi sem var tekið yfir af hópi manna sem býr þar og rekur kvikmyndaklúbb og krá. Kukl hafði spilað þar áður og gistum við þar tvær fyrstu næturnar, öll í kös í kolakyntu herbergi sem hefði verið í lagi ef það hefði verið sumar. Gulli mældi „hit- ann“ í herberginu fyrstu nóttina og var hann 5 gráður, í plús sem betur fer. Já, þetta er rokk og ról. En kob-ararnir ráða nú ekki veðri og vindum. Tónleikarnir í K.o.b. voru vægast sagt stórkost- legir og þeir langbestu sem ég hafði heyrt með Kuklinu fram } að því. Það sem skipti mestu var að þau slöppuðu vel af gagnvart áhorfendum og svo að hljóð- blöndungurinn Mel gerði ótrú- lega góða hluti fyrir tónlist þeirra. Þýskir áhorfendur eru mjög kröfuharðir og kalla ekki allt ömmu sína í pönkmálunum. En til að gefa mynd af því hvern- ig Kuklið fór í þá þetta kvöld vitna ég í grein í Berliner szene: „Um nóttina og morguninn eftir dreymdi mig Kukl ennþá, þessa frumlegu, ástríðufullu og óvið- jafnanlegu hljómsveit frá íslandi. Flutningur hennar er látlaust

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.