Vikan - 17.04.1986, Blaðsíða 35
Þau hjónin eru bæði ákaflega
mikið fyrir líkamsrækt, fara oft
í íþróttahúsið og nota tækja-
salinn þar og sundlaugina.
Margs konar íþróttaiðkanir
fara fram í húsinu alveg til 12 á
kvöldin en á daginn þurfa skól-
arnir að hafa afnot af húsinu
en það stendur til bóta því verið
er að byggja nýtt íþróttahús.
„Æ, þarftu að taka mynd af mér
þegar ég er að gera þá æfmgu
sem mér fmnst leiðinlegust,"
segir Kate en það er stutt í
brosið.
Roger starfar fyrir ílughermn
og er liðsforingi af lægstu gráðu:
„Líklega lægst setti liðsforing-
inn á Vellinum,“ segir hann og
hlær. Þó hefur hann verið í
hernum í meira en 15 ár en
starfaði áður sem óbreyttur
hermaður og hafði með árunum
unnið sig upp eftir tignarstigan-
um og var kominn með margar
rendur á einkennisbúninginn.
Þá ákvað hann að fara í skóla
til að verða foringi og þurfti þá
að byrja frá grunni. „Það var
Þau eru samhent, hjónin, að því
er best verður séð. Reyndar
segist Kate hafa heyrt talað um
í Bandan'kjunum áður en hún
gifti sig að nú væri orðin bylting
og allir eiginmenn ynnu heimil-
isstörfm jafnt á við konuna, en
hún sagðist hafa verið svikin
og hún tryði því ekki lengur að
slíkir eiginmenn væru til. Roger
segir að hún þurfi ekkert að
vera að kvarta því það sé hann
sem vinni dag og nótt á meðan
hún slæpist og hafi það gott.
Þess á milli fara þau hjónin
mikið í gönguferðir, sérstaklega
niður að sjó og í sumar ætla þau
að keyra mikið um landið.
óneitanlega dálítið skrítið að
þurfa allt í einu að fara að taka
við skipunum frá kornungum
og pínulitlum stráklingum,“
segir þessi hávaxni, rólegi mað-
ur og brosir þó. Allir foringjar
í hernum þurfa að hafa að
minnsta kosti fyrstu háskóla-
gráðu og bæta enn frekar við
menntunina til að ná hæstu
tign. Hérna er Roger á vinnu-
staðnum og verið er að setja
F-15 orrustuþotu inn í ramm-
gert flugskýli.
Kate er með B.A. próf í enskum
bókmenntum en hefur enga
sérstaka löngun til að fara að
vinna úti og segir að sér líði
mjög vel sem heimavinnandi
húsmóðir. Aftur á móti eru allt-
af einhverjar velviljaðar sálir
sem eru að reyna að finna fyrir
hana vinnu við hæfi og skilja
ekki hvað barnlaus kona getur
verið að hanga heima. „Það
getur vel verið að ég fari að
kenna börnum að synda, það hef
ég gert áður og líkað mjög vel.“
I Viking Arcade er míni-mark-
aður og Kate þurfti að kaupa
mjólk en gat svo ekki staðist
að athuga hvort einhverjar
nýjar bækur væru komnar í
bókabúðina því hún sagðist lesa
mjögmikið.
Roger er yfirmaður hjá
viðhaldsdeild orrustuflugsveit-
arinnar. Hann ber ábyrgð á því
að allt gangi fyrir sig eins og til
er ætlast og að hver maður sé á
sínum stað, jafnframt þarf hann
að geta hlaupið í skarðið fyrir
hvern manna sinna ef á þarf að
halda. Flugskýlin eru tiltölu-
lega nýbyggð og var mikill
ágreiningur um byggingu
þeirra. Þau eru sérstaklega
styrkt og er ætlað að vernda
flugvélarnar ef gerð yrði árás.
Lokið hefur verið við smíði 9
skýla og kostuðu þau 25 milljón-
ir dollara, en hver vél kostar
aftur á móti 23 milljónir dollara.
Á Vellinum eru 18 slíkar vélar
í notkun og flugsveitin hefur
tvær til vara. Þetta eru vélarnar
sem ætlað er að mæta hugsan-
legri óvinavél sem lengst frá
landinu. Á friðartímum fylgjast
þær með öllu óþekktu í flug-
landhelgi, annars ber þeim að
verja lofthelgina.
Roger og samstarfsmenn hans,
sem hann segir að séu sérstak-
lega góðir menn, verða að dúða
sig mjög vel áður en þeir fara í
vinnuna því vinnustaðurinn er
yfirleitt úti undir berum himni,
á algerum berangri og rokrass-
gati, eða í flugskýlunum sem eru
lítið hlýrri. Þeir eru að sjálf-
sögðu í ullarnærfötum næst sér
og síðan í hverri hlýrri flíkinni
utan yfir aðra. Vaktirnar geta
verið lengri en 14 tímar, jafnt
að nóttu sem degi, og öll þekkj-
um við veðráttuna. Kate fann
upp góða aðferð til að halda
hita á höndunum. Roger fer
fyrst í venjulega uppþvotta-
gúmmíhanska, síðan ullar-
hanska og að lokum stóra úr
leðri. „Þannig get ég haldið hita
á höndunum í allt að sex tíma
samfleytt og unnið fíngerða
vinnu með gúmmíhönskunum.
Eina vesenið er þegar maður
þarf að fara á klósettið ..
Við vorum bara í venjulegum
jökkum og berhent og var orðið
mjög kalt þannig að við kvödd-
um þessa indælu sambýlismenn
okkar íslendinga og flýttum
okkur heim í kvöldmatinn.
mm