Vikan - 17.04.1986, Blaðsíða 44
EFTIRILLUGA JÖKULSSON
-Xsrt k
“*/ráVj
borgum
Vatnsm
og misk
uðum
greftri
Vja-
r
l
lynnm
eppn-
gull-
Eitt vinsælasta dægurlagið á
Islandi undanfarna mánuði hefur
verið Gull af plötu Gunnars Þórð-
arsonar, Borgarbragur. Ekki er
víst að unglingarnir, sem hringja
til rásar tvö og vilja fá að heyra
Eirík Hauksson syngja þetta lag,
átti sig á því hvað býr að baki því.
Þó vita sennilega flestir að snemma
á öldinni þóttust menn finna gull
í Vatnsmýrinni í Reykjavík og í
þessari grein verður fjallað um
þennan óvænta atburð og þann
heldur mislukkaða gullgröft sem
fylgdi í kjölfarið.
„Gullæðið" hófst þegar blaðið
Reykjavík kom út að morgni laug-
ardagsins 1. apríl 1905. Þar stóð
skýrum stöfum:
„Gull fannst síðdegis í gær við
boranirnar uppi í Öskjuhlíð, 118 fet
djúpt í jörðu. Menn uggðu fyrst að
þetta kynni að vera látún. En við
ítarlegri rannsóknir er nú fullpróf-
að, að það er skírt gull. Gullið er
ekki sandur þarna, heldur í smá-
hnullungum sem jarðnafarinn hef-
ur skafið. Hve mikið það kann að
vera verður reynslan að skera úr,
en á því er ekki vafi að hér er gull
fundiðí jörðu.“
Þessi frétt Reykjavíkur vakti að
sjálfsögðu mikla athygli og spurð-
ist fljótt út um allan bæ. Þrátt fyrir
dagsetninguna trúðu menn fregn-
inni enda tíðkaðist þá ekki að blöð
birtu lesendum sínum lygimál hinn
fyrsta dag aprílmánaðar eins og nú
er. Ritstjóri Revkjavíkurinnar var