Vikan

Útgáva

Vikan - 17.04.1986, Síða 44

Vikan - 17.04.1986, Síða 44
EFTIRILLUGA JÖKULSSON -Xsrt k “*/ráVj borgum Vatnsm og misk uðum greftri Vja- r l lynnm eppn- gull- Eitt vinsælasta dægurlagið á Islandi undanfarna mánuði hefur verið Gull af plötu Gunnars Þórð- arsonar, Borgarbragur. Ekki er víst að unglingarnir, sem hringja til rásar tvö og vilja fá að heyra Eirík Hauksson syngja þetta lag, átti sig á því hvað býr að baki því. Þó vita sennilega flestir að snemma á öldinni þóttust menn finna gull í Vatnsmýrinni í Reykjavík og í þessari grein verður fjallað um þennan óvænta atburð og þann heldur mislukkaða gullgröft sem fylgdi í kjölfarið. „Gullæðið" hófst þegar blaðið Reykjavík kom út að morgni laug- ardagsins 1. apríl 1905. Þar stóð skýrum stöfum: „Gull fannst síðdegis í gær við boranirnar uppi í Öskjuhlíð, 118 fet djúpt í jörðu. Menn uggðu fyrst að þetta kynni að vera látún. En við ítarlegri rannsóknir er nú fullpróf- að, að það er skírt gull. Gullið er ekki sandur þarna, heldur í smá- hnullungum sem jarðnafarinn hef- ur skafið. Hve mikið það kann að vera verður reynslan að skera úr, en á því er ekki vafi að hér er gull fundiðí jörðu.“ Þessi frétt Reykjavíkur vakti að sjálfsögðu mikla athygli og spurð- ist fljótt út um allan bæ. Þrátt fyrir dagsetninguna trúðu menn fregn- inni enda tíðkaðist þá ekki að blöð birtu lesendum sínum lygimál hinn fyrsta dag aprílmánaðar eins og nú er. Ritstjóri Revkjavíkurinnar var

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.