Vikan

Eksemplar

Vikan - 17.04.1986, Side 14

Vikan - 17.04.1986, Side 14
argir hafa sungið fagran óð um Reykjavíkurtjörn og þar á meðal sjálfur borgarstjórinn. Tjörnin er eitt af æðri líffærum borgar- innar og þangað koma allir borg- arbúar oft og mörgum sinnum frá því að þeir eru í vagni og þar til þeir staulast sjálfir með niðja sína þeirra erinda að troða brauði í stríðaldar endur. Þetta hefur löngum verið eini staðurinn þar sem foreldrum hefur hugkvæmst að koma með börnin sín i skemmtigöngu á sunnudögum og stundum lítur Tjörnin út eins og heldur ólystug brauðsúpa með plastpokum og öðru ógeði í útálát. Á köld- um dögum í miðri viku, eins og þegar ljós- myndari Vikunnar var á ferð við Tjömina, synda fuglarnir hálfstefnulaust um og enginn kemur að sjá þá. Allt í einu birtast þó tveir krakkar sem ekki virða lögmál dagatalsins og taka að henda brauðmolum. Líf fuglanna fær í sömu svifum markmið og tilgang og þeir synda allir sem einn í átt til velgjörðarmanna sinna. Þar sem börnin standa muna menn að einu sinni var lítill bakki, eins og bryggja fram í vatnið og þrep niður að. Nú er það allt saman að hrynja og sums staðar aðeins grjóthrúga. Blessuð Tjörnin má sannarlega mun sinn fífil fegri en nú í ár er bæði afmælisár og kosningaár og því aldrei að vita nema ráðin verði bót á. Ein allsherjar matarorgía er í uppsiglingu. Nem- endur Hótel- og veit- ingaskólans munu standa fyrir henni í Laugardalshöll dagana 9.-18. maí undir nafninu Mat- arlist '86. Hátt í fjörutíu fyrirtæki í matvælaiðnaði kynna fram- leiðslu sína, innlendirsem er- lendir matreiðslumeistarar og konditoribakarar sýna listir sínar og okkur óbreyttum verður boðið að bragða á ýmsum nýstárlegum kræsingum. Namminamm... Ljósmyndasafnið er eitt þeirra safna sem láta lítið á sér bera og fáir vita af þrátt fyrir mikið starf og gott. Safn- ið er einkafyrirtæki og geymir merkar heimildir um íslenska menningu og þjóðlíf allt frá upphafi ljósmyndunar hérlendis. Við litum inn á Ljós- myndasafnið i leit að mynd af ákveðnum atburði frá fyrri hluta aldarinnar og fengum skjóta og góða hjálp. Ivar Gissurarson, starfsmaður safnsins, sagði okkur dálítið frá því í leiðinni. „Safnið var formlega stofnað 1981 og þá hafði undirbúningsvinna staðið yfir í rúm- lega ár. Frumkvæðið kom frá áhugamönnum sem gátu ekki horft upp á það lengur að verið væri að farga mjög fágætum ljós- myndasöfnum um land allt. Það var greini- lega meira til af gömlum ljósmyndum en nokkurn hafði grunað og fyrstu tvö árin fóru eingöngu í söfnun mynda. Þá var ég einn starfsmaður og svo ljósmyndari í hálfu starfi. Nú er þetta orðið ansi öflugt, hér hafa unnið allt að sex manns því það er ver- ið að gera átak í skráningu þeirra einkaljós- myndasafna sem hér eru inni og verið að tölvuvæða safnið sem er nauðsyn því hér er um ein milljón „negatífa“. Uppistaðan í Ljósmyndasafninu er einkasöfn látinna ljós- myndara, amatöra og atvinnumanna, en einnig eru hér stakar myndir sem við höfum fengið eða fengið eftirtökur af. Safnið tekur á móti öllum myndum því þó þjóðlífsmyndir þyki meira spennandi í dag þá er hætta á að margt myndi glatast ef við settum fólki einhverjar skorður við því hvað það geti komið með hingað til varðveislu. Safnið stendur sig nokkuð vel fjárhagslega en því miður hljótum við alls enga fyrirgreiðslu frá ríkinu þó um hana hafi verið beðið. Af sýn- ingum okkar í ár má nefna White House Photography á Kjarvalsstöðum um þessar mundir, farandsýningu í Bandaríkjunum sem nefnist Photographic Sketches Iceland at the turn of the century, og svo erum við með ljósmyndahlutann af stóru Reykjavík- ursýningunni sem verður á Kjarvalsstöðum í ágúst, hundruð mynda sem við erum að vinnaínúna.“

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.