Vikan

Eksemplar

Vikan - 17.04.1986, Side 19

Vikan - 17.04.1986, Side 19
 Sumir en ekkiallir vita ad Ragga Gísla býr vió Tjarnargötu i Reykjavík. Hitt vitafœrriað þeir eru alls ekki aó Itringja i Itana þegarþeir slá á þráóinn til Ragn- hildar Gíslu Gisladóttur (Ragn- liilciur G. Gisladóttir ísíma- skránni) sembýr viö Tjarnarbraut í Hafnarfirdi. ( Tjarnarbr í síma- skrá). „Jú.jú, égj'œ ióulega sím- tölin hennar, nú sídast í gœr, “ sagði elskuleg rödd eldri konu þegar Vikunnar menn slógu á þráðinn. Gestsson flutti til Reykjavíkur fékk ég stöku sinnum víxiltilkynningar ætlaðar honum. Það var svo sem ekkert við það að athuga og getur meira að segja verið að það hafi verið gagnkvæmt. Þegar hann komst síðan til valda og áhrifa innan Alþýðubandalagsins fékk ég tvívegis boð um að sitja veislu í rússneska sendiráðinu í tilefni af afmæli byltingarinnar þar eystra á sínum tíma. Eg sótti nú ekki þessi boð en sendi boðskortin á póst- húsið í von um að hinn rétti Svavar ætti þess kost að sækja gleðskap- inn. Eitt sinn sendi Skattstofan mér harðort bréf um að telja ekki fram eftirvinnu vegna einhvers nefndarfundar í borgarstjórn. Eg benti þeim ágætu mönnum á Skatt- stofunni á að ég væri ekki í borgar- stjórn, það væri annar Svavar og málið um þessi hugsanlegu skatt- svik min féll niður. Ég geri reyndar ráð fyrir að Svavar borgarfulltrúi hafi talið sitt fram. Annars er í raun og veru stórfurðulegt hvernig opinber stofnun getur ruglast á tveimur mönnum þó að þeir heiti sömu nöfnum þegar þess er gætt að aldursmunurinn er allveruleg- ur, fæðingardagar ekki hinir sömu og nafnnúmer önnur. Þegar Svavar Gestsson var ritstjóri Þjóðviljans varð ég stöku sinnum fyrir ónæði en jafnsaklausu og í fyrri tilvikum. Að loknu löngu verkfalli hjá Dags- brún hringdi einn af eldri félögun- um í mig og hellti úr skálum reiði sinnar vegna einhvers sem stóð í Þjóðviljanum. Það var alveg sama þó að ég segði honum að ég væri alls ekki ritstjórinn, jú, hann hélt það nú, hann hafði fundið nafnið mitt í símaskránni." En Svavar Gestsson er ekki í skránni? „Nei, formaður Alþýðubanda- lagsins er nefnilega ekki skráður i símaskrána og þetta hefur valdið vandræðum. Mitt nafn er þar: Svavar Gests framkvændastjóri, og fullir menn klukkan þrjú aðfara- nótt föstudagsins langa eru ekkert að setja spurningarmerki við það en það kom einmitt fyrir um síð- ustu páska að sjómaður austan af fjörðum ætlaði að hringja í Svavar alþingismann." Þetta hlýtur að vera óþægilegt? „Ég er með rofa á símanum og slekk einfaldlega á honum þegar ég geng til hvílu en hafði gleymt honum í þetta sinn. Ég fékk mér þennan rofa ekki til að forðast óþægindi af þessu tagi heldur til að hafa frið fyrir drukknu fólki sem klukkan fjögur um nótt þarf að segja mér besta brandarann sem það hefur heyrt um ævina yfirleitt brandara sem ég sagði í útvarps- þætti tveimur eða þremur dögum áður - þeir eru bestir.“ Gunnlaugur Briem, trommuleikari í Mezzoforte, er ekki sjálfur í síma- skránni, að minnsta kosti ekki þessari sem kennd er við árið 1985. Það eru aftur á móti fjórir nafnar hans og hefur því líklega verið úr vöndu að ráða fyrir bresku um- boðsmennina sem þurftu að ná tali af trommaranum á dögunum - og það kannski með stóra samning- inn. Hvað sem áður hafði verið reynt þá slógu þeir á þráðinn til Gunnlaugs Briem á Bergstaða- stræti en sá er í vinnutíma til húsa á skrifstofu Síldarverksmiðja ríkis- ins í Austurstræti. „Já, það var hringt til mín eitt kvöldið og spurt um Gunnlaug Briem. Ég sagðist vera maðurinn en þegar tónlistarmálin bar á góma náði ég að koma í veg fyrir frekari samræður. Þeir hafa líklega tekið sénsinn á einhverjum Gunnlaugum í íslensku símaskránni, jafnvel í þeirri von að hægt væri að miðla þeim áfram. Ég gat því miður ekk- ert hjálpað þeim á þeirri stundu en mig dauðlangaði hins vegar að taka málin að mér og tromma dálít- ið,“ segir Gunnlaugur og hlær. „Það hefur annars nokkuð oft verið hringt í mig út af Mezzoforte- málum en venjulega hef ég afgreitt það með hraði og vísað áfram en þetta símtal fannst mér dálítið for- vitnilegt. Ég hef svo líka verið tekinn fyrir annan Gunnlaug Bri- em en sá fæst við skrautritun og er eftirsóttur á því sviði, auk þess kunnáttumaður um letur og letur- gerðir. Hann býr erlendis og fyrst þegar spurt var um hann vissi ég hreinlega ekki að þessi maður væri til en komst svo að því hvers son hann var og gat hjálpað fólki áfram með þeirri vitneskju. Ég hef þó orðið fyrir mestu ónæði í sambandi við símhringingar til Gunnlaugs J. Briem sem er þó í símaskránni. Hann hefur starfað þónokkuð að íþróttamálum og býr í Mosfells- sveit og ég hef stundum sagt í gamni að ég ætti eiginlega að fá einhvers konar medalíu fyrir að vísa á hann í sambandi við þessi mál.“ En þið, þessir Gunnlaugar, eruð allir skyldir, er það ekki? „Jú, við erum það en pabbi minn var einbirni svo það var ekki mikið um Gunnlauga þaðan en afi minn, Gunnlaugur, átti hins vegar ellefu systkini og eru afkomendur þeirra dreifðir út um allt.“ 16. TBL. VIKAN 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.