Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 17.04.1986, Qupperneq 53

Vikan - 17.04.1986, Qupperneq 53
Rithöfundurinn Charles Bukowski fæddist 16. ágúst 1920 í Vestur-Þýskalandi, nánar til- tekið í krummaskuðinu Andernach. Hann fluttist til Bandaríkjanna tveimur árum síðar (væntanlega í fylgd fullorðinna) og hefur aðal- lega verið búsettur á vesturströndinni. Eftir hann liggja rúmlega 30 bækur; sögur og ljóð. Bukowski hefur tjáð sig tæpitungulaust um þjóðfélag Sáms frænda og hefur það löngum farið fyrir brjóstið á löndum hans. En Vestur- Evrópubúar taka ekki mark á dylgjum þess efnis að hann sé klámskáld og rakinn dóni. Þar hafa hæfileikar Bukowskis til að narrast að menningarkreddum Bandaríkjanna gert hann að metsöluhöfundi. Forseti Bandaríkjanna settist inn í bifreið sína, umkringdur aðstoðar- mönnum. Hann sat í aftursætinu. Það var diminur og drungalegur morgunn. Menn þögðu. Þeir óku af stað og heyra mátti suð dekkjanna á götunni sem enn var blaut af rigningu gær- kvöldsins. Þögnin var meiri en nokkru sinni áður. Þeir óku um stund. Þá sagði forsetinn: Þetta erekki leiðin til flugvallarins. Aðstoðarmennirnir svöruðu ekki. Fríið stóð fyrir dyrum, tvær vikur á einkaheimil- inu. Flugvél hans beið á flugvellinum. Það féllu smáir regndropar. Líklega færi að rigna aftur. Mennirnir voru, að forsetanum með- töldum. klæddir víðum frökkum og báru hatta, því virtist enn þrengra í bílnum. Uti blés napur vindurinn stöðugt. - Bílstjóri, sagði forsetinn, ég held þú sért á rangri leið. Bíistjórinn svaraði ekki. Hinir mennirnir horfðu beint fram. Heyrið, sagði forsetinn. Vill einhver skýra manninum frá réttu leiðinni tii flug- vallarins. Við förum ekki til flugvallarins, sagði aðstoðarmaðurinn á vinstri hönd forsetans. Förum við ekki til flugvailarins? spurði forsetinn. Mennirnir þögnuðu aftur. Úðinn varð að rigningu. Bílstjórinn kveikti á rúðu- þurrkunum. Hvað er þetta? spurði forsetinn. Hvað er að gerast? - Það hefur rignt. svo vikuni skiptir, sagði maðurinn sem sat hjá bílstjóranum. Það gerir mann þunglyndan. Ég hlakka til að komast í sói. - Líka ég, sagði bílstjórinn. - Það er eitthvað að, sagði forsetinn. - Ég krefst þess að vita... - Þú ert ekki lengur í aðstöðu til að krefj- ast einhvers, sagði aðstoðarmaðurinn sem sat hægra megin við forsetann. - Þú átt við. .. ? - Við eigum við, sagði sá sami. - Morð? spurði forsetinn. - Varla, það er gamaldags. - Hvað þá? - Við höfum fyrirmæli um að ræða þetta ekki. Þeir óku í nokkrar klukkustundir. Enn rigndi. Enginn talaði. Núna, sagði maðurinn vinstra megin við forsetann. - Keyrðu annan hring og beygðu síðan inn. Okkur er ekki veitt eftirför. Rign- ingin hefur komið sér vel. Bifreiðin hringsólaði um hverfíð og beygði síðan inn á lítinn malarveg. Hann var forug- ur og stundum spólaði bíilinn, skrikaði til en svo náðu hjólbarðarnir taki og ferðinni var fram haldið. Maður í gulri regnkápu hélt á vasaljósi og beindi þeim inn í tóman bílskúr. Þetta var afskekkt svæði, skógi vaxið. Vinstra megin við bílskúrinn var lítið býli. Maðurinn opnaði bíldyrnar. Farðu út, sögðu þeir við forsetann. Forsetinn fór eftir fyrirmælunum. Mennirnir héldu forsetanum gætilega á milli sín, þó hvergi væri neinn að sjá utan manninn með vasaljósið í gulu regnkápunni. - Ég skil ekki hvers vegna við gátum ekki gert þetta allt hér, sagði maðurinn í gulu kápunni. - Það virðist raunar mun hættu- legra á hinn veginn. Fyrirmæli, sagði einn aðstoðarmann- anna. Þú veist hvernig þetta er. Hann hefur alltaf fylgt eðlisávísun sinni. Hann gerir það enn og nú í jafnvel ríkara mæli. - Það er mjög kalt. Hafið þið tíma til að drekka kaffibolla? Ég er búinn að hella upp á. - Það var fallega gert af þér. Þetta var löng ferð. Ég geri ráð fyrir því að hin bifreið- in sé tilbúin til brottfarar? Að sjálfsögðu. Það hefur verið farið yfir þetta aftur og aftur. Reyndar erum við um tíu mínútum á undan áætlun. Það er ein ástæðan fyrir því að ég stakk upp á kaffi. Þú veist hvernig hann er í sambandi við nákvæmni. - Okei, förum þá inn. Þeir gættu forsetans vandlega þegar þeir gengu inn í húsið. - Sestu þarna, sagði einn mannanna við forsetann. - Þetta er ágætt kaffi, sagði maðurinn í gulu regnkápunni, handmalað. Hann gekk um með könnuna, hellti handa sjálfum sér og settist síðan, ennþá í gulu kápunni en höfuðfatinu hafði hann fleygt á ofninn. - Aha ... þetta er gott, sagði einn erindrek- anna. Sykur og rjóma? spurði annar forsetann. - Allt í lagi, svaraði hann.. . í gamla bílnum var fremur þröngt en ailir komust þeir fyrir, og enn sat forsetinn í. aftursætinu. Gamli bíllinn rann einnig til í drullunni og holunum en komst klakklaust aftur á þjóðveginn. Enn var ekið að mestu í þögn. Þá kveikti einn mannanna sér í sígarettu. - Fari það í grábölvað. Mér er alveg fyrir- munað að hætta reykingunum. - Já, það er erfitt, það er allt og sumt. Hafðu ekki áhyggjur af því. - Ég hef ekki áhyggjur af því. Ég er bara óánægður með sjálfan mig. - Blessaður gleymdu því. Þetta er söguleg- ur dagur. - Ég tek undir það, sagði sá með sígarett- una og saug að sér reyk. .. Þeir lögðu bílnum fyrir framan gamalt gistiheimili. Og enn rigndi. Síðan sátu þeir stundarkorn. - Núna, sagði maðurinn næstur bílstjóran- um. - Komið honum út. Það er óhætt. Eng- innáferli. Þeir gengu með forsetann á milli sín, fyrst gegnum útidyrnar, þá upp þrjár hæðir, ávalit með forsetann á milli sín. Þeir námu staðar og knúðu dyra á 306. Merkið: eitt högg, hlé, þrjú högg, hlé, tvö högg... Hurðinni var hrundið upp og mennirnir ýttu forsetanum í flýti inn fyrir. Síðan var læst og settur slagbrandur fyrir. Þrír menn biðu innan dyra. Tveir þeirra voru á sextugs- aldri. Sá þriðji sat í múnderingu sem saman- stóð af gamalli verkamannaskyrtu, slitnum buxum sem voru of stórar og 10 dollara skóm, slitnum og snjáðum. Hann sat í ruggustól í miðju herbcrginu, kominn á níræðisaídur en brosti og augun voru þessi sömu augu, nefið, hakan og ennið höfðu ekki breyst að ráði. - Velkominn, herra forseti. Ég hef lengi beðið eftir veraldarsögunni, vísindum og þér, og allt hefur komið stundvíslega, í dag. r 16. TBL. VIKAN 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.