Vikan


Vikan - 17.04.1986, Page 58

Vikan - 17.04.1986, Page 58
Höfuðbúnaðurinn verður líka að fara vel. Hér VIKAN HEIMSÆKIR BRÚÐARKJÓLALEIGU KATRÍNAR J a „bruoinni tilvonandi og ekki er annad ad sjá EFTIR JÚHÖNNU S. SIGÞÚRSDÓTTUR - en allirgeti verið áncegðir LJÚSMYNDIR TÓKRAGNAR TH. meðútkomuna. Þessi virðulegi kjóll uppfyllir öll pau skilyrði sem kirkjubrúðkaup krefst og rúmlega pað. ,,Eiiginlega er þetta uppábaldskjóllinn minn,“ sagði Katrín um leið og hún sjndi Viku- mönnum hann. Knýr rómantíkin helst dyra hjá fólki í ágúst- mánuði? Það fullyrðir hún Katrín Óskarsdóttir í Breiðholtinu að minnsta kosti. Og Katr- ín ætti að vita svolítið um þessi mál því hún rekur nefnilega brúðarkjólaleigu. Það gaf heldur betur á að líta þegar Vikumenn heimsóttu Katrínu í Grjótaselið á dögunum. Þarna héngu brúðarkjólarnir í hrönnum, skreyttir blúndum, pífum og slóðum í ríkum mæli. Sumir höfðu farið margsinnis inn kirkjugólfið, aðrir voru að stíga sín bernskuspor í leigunm. Enn aðrir voru alveg splunkunýir og biðu þess eins að komast upp að altarinu. Katrín byrjaði með leiguna fyrir réttu ári. 1 upphafi hafði hún ætlað að vinna úti. Hún reyndi en það gekk ekki. Heimil- iið er nefnilega stórt og þá er erfitt að vera burtu frá því heilu og hálfu dagana. „Svo ég fór að leigja út brúðarkjóla," sagði Katrín. „Það hvatti mig líka til dáða að eina leigan af þessu tagi, sem ég vissi um, var að leggja upp laupana. Og þá vantaði svona þjói.iustu En geta allir notfært sér svona leigu? Hvað ef verðandi brúður er pöddulítil og vel yfir 100 kíló? Fær hún kjól við sitt hæfi? „Hann er hérna,“ svaraði Katrín að bragði og sveiflaði drellfínum blúndukjól út úr ein- um skápnum. Það var ekki að sjá neitt tjaldsnið á flíkinni þeirri. „Samt er hann alveg einn og hálfur yfir brjóstið,“ sagði Katr- ín. „Kjólarnir hjá mér eru allir þannig úr garði gerðir að hægt er að breyta þeim með lítilli fyrir- höfn, til dæmis að síkka þá eða stytta. Ég get því hjálpað konum af öllum stærðum og gerðum, ef svo má að orði komast.“ Yfirleitt koma verðandi brúðir tímanlega til að velja kjóla og ganga frá ieigunni. I einstaka tilvikum hafa þær komið með viku fyrirvara. En það hefur aldrei hent að kona hafi geyst inn og beðið um kjól til að gifta sig í samdægurs. Þrátt fyrir það hefur Katrín stundum mátt láta hendur standa fram úr ermum til að uppfylla þarfir viðskiptavin- anna: „Ég man sérstaklega eftir einu tilviki. Þá kom til mín kona af Vestfjörðum, alveg í öngum sín- að gifta sig í. Svo óheppilega vildi til að ég átti ekkert á hana í augnablikinu. Það varð úr að ég myndi bara sauma brúðarkjól í hvelli og senda hann vestur. Þetta var gert og fékk konan kjólinn í hendurnar í tæka tíð fyrir brúðkaupið. En hún hafði hvorki séð efni né snið að honum áður en hún fékk hann og það er nokkuð óvenjulegt við svona tækifæri. Engu að síður var hún sallaánægð. En nú ætla ég að koma mér upp myndalista til að senda út á land. Viðskiptavinirn- ir geta þá einfaldlega pantað eftir honum í stað þess að þurfa að kosta ferð til Reykjavíkur." Það tíðkaðist lengi við kirkju- brúðkaup að brúðguminn sæi brúðina ekki fyrr en hún brunaði inn kirkjugólfið í fullum skrúða. Þetta hefur breyst nokkuð í seinni tíð. „Brúðgumarnir til- vonandi koma stundum með konuefnunum til að velja kjóla þótt algengara sé að þær komi einar,“ sagði Katrín. „Karlarnir eru sumir hverjir ansi stífir á meiningunni. Þeir vilja ekki þetta og ekki hitt. í einstaka til- vikum ræður karlinn alveg hvaða kjóll er tekinn. En það er 58 VIKAN 16. TBL,

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.