Vikan


Vikan - 17.04.1986, Page 60

Vikan - 17.04.1986, Page 60
z REYKJAVIK TOKYO I Þær eru komnar langt að, þess- ar verndarbrúður, alla leið frá Perú þar sem þær eiga sér merkilega sögu samkvæmt aldagamalli hefð inka. Brúðurn- ar eru jurtalitaðar, unnar í höndunum og fást í þrem gerð- um í versluninni Tínu Mínu. Verð frá 535 til 895 krónur. LOS ANGE Dagatöl eru bráðnauðsynleg og þau geta líka verið mjög falleg ávegg. Það er ýmislegt hægt að finna / 1 í versluninni IKEA, þar á meðal þessa hanka sem klemmurnar eru síðan festar á. Hankarnir eru til hvítir og rauðir, 6 stykki í pakka kosta 275 krónur. Hönk- unum er rennt á spýtu sem fest hefur verið á vegg. Spýturnar fást ólitaðar og hvítar í nokkrum lengdum. Klemmurnar fást í rit- fangaverslunum. Það eru ekki lengur bara ungl- ingarnir sem hafa plaköt uppi á vegg. Vönduð og falleg gallerí-plaköt fást nú I miklu úrvali. Pastel er nýleg verslun á Laugavegi 33. Þar fást margar gerðir gallerí-plakata, einnig er þar innrömmun. Þar er hægt að fá tré- og állista í fallegum litum. Smellu-myndarammar fást í fjölmörgum verslunum. Ramm- arnir fást í ýmsum stærðum, með venjulegu gleri og möttu. Þó að matta glerið geti verið skemmtilegt skal hafa það I huga að það getur breytt litum í myndum. Hér hefur verið rað- að saman nokkrum teikningum eftir lítinn krakka. Þar á meðal er mynd af konu með barn í maganum. Undir myndunum er litaður pappír úr Pennanum. Það væri líka hægt að hafa litla Ijósmynd af unga listamannin- um með. Minnistöflur eru algengar og eru þá oftast striga- eða kork- töflur. Hér höfum við mjög fallega krómaða minnistöflu með segulstálsbólum (pinn- um). Taflan er 36x56 cm að stærð, fæst í A5, nýlegri verslun á Laugavegi 33b, og kostar 3.300 krónur. 6

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.