Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 17.04.1986, Qupperneq 62

Vikan - 17.04.1986, Qupperneq 62
Áður en byrjað er að mála er silkið strekkt á blindramma eða þar til gerðan ramma, spennuramma. Ágætt er að nota „doppelband", límband sem hefur lím báðum megin, og líma silkið á rammann. Strekkið silkið vel og festið teiknibólur á hornin. Ef límið er ekki notað þarf að festa þétt með teiknibólum. Það er ágætt að gera litlar skissur að myndinni eða mynstrinu sem á að mála. Teikningin er síðan stækkuð upp í rétta stærð með breiðum tússpenna og ramminn með silkinu er lagður yfir. Passið að fyrirmyndin og silkið snertist ekki. Nú eigið þið að sjá myndina í gegn og þá eru útlínurnar teiknaðar á silkið með límkenndu efni sem stopp- ar litinn af. Þetta efni er á litlum plastbrúsum, skorið er ofan af stútn- um og efninu sprautað varlega úr. Línan verður að vera alveg heil því annars rennur liturinn yfir á næsta flöt. Þetta h'mkennda efni er til glært og þvæst þá úr, einnig fæst gyllt og silfurlitt og þeir litir halda sér (kost- ar 78-110 krónur). Þetta þornar á 15-20 mínútum og verður að þorna vel. Það er nauðsynlegt að hafa plastbakka til að blanda litina og þynna. Eins og áður sagði eru litirnir þynntir með vatni og til að fá mjög ljósan lit, eins og í bakgrunninum á ballettlöppunum, þarf aðeins örlítinn lit á móti vatni. Þarna var líka allur flöturinn bleyttur (notið pensil) áður en liturinn var málaður á. Þá sjást pensilförin síður. Litirnir eru mjög drjúgir svo þið skuluð ekki blanda of mikið í einu. Hristið upp í glasinu í hvert skipti sem litur er tekinn úr því. Notið góðan pensil, til dæmis nr. 8. Ef stopplínan er ekki notuð renna litirnir skemmtilega saman og með Effekt salti eða grófu salti má fá skemmtilega áferð. Saltinu er stráð yfir nýmálaðan flöt og það dregur í sig litinn. Sjá landslags- myndina. Passið að saltið hreyfist ekki á meðan liturinn þornar. Þegar búið er að mála þarf silkið að þorna. Þá er það straujað - það festir litinn - og síðan er silkið þvegið vel. Það þolir 60 gráða hita. Silkislæður eru alltaf vinsælar, ekki síst núna þegar klútar í hárið eru í tísku. Það er líka hægt að mála á heilu flíkurnar, til dæmis kjóla, skyrtur og sloppa. Myndir til að hafa uppi á vegg og lampaskermar úr ámáluðu silki koma mjög vel út þegar ljósið kemur í gegn. EFTIR HÓLMFRÍÐI BENEDIKTSDÓTTUR RA GNA R TH. TÓKM YNDIRNA R ö Þ P
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.