Vikan - 16.07.1987, Page 34
Um Stormskerið orti Sverrir Stormsker:
„Ég bið það sökkvi í haf, ég bið það sökkvi
í kaf og vona að enginn koniist af.“ Kannski
er þessi hending dálítið táknræn fyrir dreng-
inn, þessi kaldhæðnislegi húmor sem sumum
verður óneitanlega dálítið bumbult af. Hann
talar i líkingum og hefur gaman af hártogun-
um og tvíræðum merkingum orða. Sverrir er
kannski ekki beint venjulegur maður, hvorki
í útliti né viðkynningu. Líf hans hefur heldur
ekki fallið í þennan hefðbundna jarðveg sem
líf flestra fellur i. Hann semur líka öðruvísi
texta og dægurlög en flestir tónlistarmenn.
Hann er konungur næturinnar en dagurinn
er fyrir honum sem martröð. Einhvern tím-
ann, þegar Sverrir var agnarsmár, var honum
kennd þessi vísa:
Heimtaðu allt af öðrum,
engu skaltu nenna.
Ef þú gerir aldrei neitt
er ekkert þér að kenna.
Glottandi segir hann að boðskapurinn í
vísunni hafi verið óbeint mottó hans í gegnuni
lífið.
Ekki hefur pilturinn þó setið aðgerðalaus í
gegnum tíðina. Hann stakk af úr skóla fyrir
fimm árum, átján ára gamall, og ákvað að
helga sig ljóðagerð og tónlist. Afraksturinn
er „Bókin“ sem einungis var gefin út í sjö
eintökum, enda hvert eintak útskorið í tré og
innsiglað svo innihaldið lá ekki á lausu. En
Bókin var auðlesin því hún innihélt einungis
þessa gullvægu setningu: „Þú keyptir hvort
eð er ekki Bókina til að lesa." Þá er það ljóða-
bókin Kveðið í kútnum og þrjár LP-plötur,
Hitt er annað mál, Lífsleiðin(n) og Ör-lög.
- Þessar vikurnar er Sverrir daglegur gestur
á öldum ljósvakans, raunar má segja að hann
sé spilaður daginn út og inn. Hann hefur því
þann samanburð að fá tvær af plötum sínum
mikið spilaðar í útvarp á meðan fyrsta platan
var ekki ýkja mikið spiluð. En hvernig ætli
honum þyki að glymja stöðugt í útvarpinu?
„Það er í rauninni kostur þegar allt kcmur
til alls að vera lítið spilaður. Ef þú hlustar á
Rás 2, Bylgjuna eða Stjörnuna þá er þetta
mestmegnis sama tuggan, sérstaða hverrar
rásar fyrir sig er lítil sem engin. Að hlusta á
útvarp er eins og að fara inn á hjólbarðaverk-
stæði eða inn í leiðinlega verslun, maður
heyrir bara hversdagslegt skvaldur og hávaða.
Þessi hávaði glymur í eyrum okkar daginn
út og daginn inn, hvort sem okkur líkar betur
eða verr. Hvar sem við setjum okkur niður,
við Elliðavatn, uppi á Vatnajökli eða í Austur-
stræti, þá erum við alltaf með þessa síbylju í
eyrunum - nú tala ég náttúrlega eins og Vel-
vakandi. Það er einungis einn kostur við að
vera spilaður í útvarpi en það eru stefgjöldin.
Að vísu borga nýju útvarpsstöðvarnar ekki
stefgjöld mér vitanlega, hvað sem verður.
í rauninni fannst mér skcmmtilegra að fá
litla spilun í útvarpi. Þá fékk ég það á tilfinn-
inguna að það væri eitthvert vit í því sem ég
var að gera. Þegar maður verður svona mikið
spilaður fær maður aftur á móti á tilfinning-
una að maður sé fimmti meðlimurinn í Five
Ég verð með kassagít-
arinn á bumbunni,
píanóið á bakinu og
bassatrommuna á
löppinni.
Star. Það kann ekki góðri lukku að stýra, það
er í rauninni skemmtilega leiðinlegt. Oscar
Wilde sagði: Það er aðeins til eitt verra en
það að vera frægur og það er að vera óþekkt-
ur. Auðvitað er ég, þegar á heildina er litið,
ánægður með spiliríið á stöðvunum."
- Um þessar mundir stendur yfir mikið
tónleikahald hjá Sverri. hann þeytist út og
suður um helgar en tekur sér frí í miðri viku,
hvað brallar hann þá?
„Ég er farinn að plana næstu plötu. Ég á
mikið efni á kassettum og það er hægara sagt
en gert að velja úr því. Eg á fullklárað efni,
lög og texta, sem dugar á svona sjö plötur
og úr því þarf að velja. Ég held að þetta sé
helmingi torveldara en að mynda ríkisstjórn,
þá hefur maður fieiri til að ræða málin við, en
í þessu er ég aleinn," segir Sverrir og glottir
við.
- Ætlar þú að vinna þessa plötu einn?
„Að langmestu leyti því þctta verður „a-
coustic“músík sem er mjög einföld í útfærslu.
Ég verð með kassagítarinn á bumbunni,
píanóið á bakinu og bassatrommuna á löpp-
inni. Þó að þetta sé einföld tónlist ætla ég
bara að vona að innviðirnir verði ekki jafn-
billegir.“
Textagerð Sverris hefur allar götur vakið
athygli. Það má scgja að eftir fyrstu plötuna,
Hitt er annað mál, hati textar Sverris verið á
allra vörum og sýnist sitt hverjum. En hann
hefur einnig sýnt á sér aðrar hliðar, ort hug-
Ijúfa texta. Hvernig verða textarnir á plötunni
sem er í bígerð?
„Þeir verða Blásaklausir," segir Sverrir og
vindur sér síðan í að tala um plötuna Hitt er
annað mál: „Textarnir á fyrstu plötunni eru
ekki ægilega klámfengnir, fjarri því, einungis
blásaklaus orðaleikjaerótík. Erótik er klám
sem fjallað er um undir rós. Ég vil taka það
„obboslega" skýrt fram, eins og stjórnmála-
gúrúin, að það er ekkert klám til. Klám er
aðeins orð yfir það sem menn framkvæma en
þora ckki að tala um.
A síðustu plötu, til dæmis í laginu Storm-
sker, þar sem ég óska þess að skerið l’arist
og enginn komist af, er það einungis vegna
undárlegrar óskhyggju sem hefur ásótt mig
og blundar sennilega ennþá i undirmeðvitund-
inni. Astæðan er sú að mér llnnsl svo litið
um frjálshyggjulegan þankagang i þjóðfélag-
inu. Þetta er allt svo steinrunnið, svo fastmót-
að í sama boxið. Ef einhver tekur sig til og
hugsar skynsarhlega hugsun þá er hann skot-
inn i kaf. Þá menn, sem skjóla þann mann í
kaf scm hefur eitthvað á milli eyrnanna, þá
vil ég skjóta í kaf. Þannig er nú einu sinni
landinn, þá er ég ekki að tala um landann,
það er að segja vínið sem er bruggað upp til
sveita, heldur þennan líkamlega landa.
Hvort ég kemst af þegar skerið ferst þá hef
ég sömu trú og Darwin hafði, að þeir hæfustu
lifi af. I þessari trú er ég mjög stabíll. Ég er
eins langt til hægri og hægt er að komast.
Frjálshyggjan gengur einfaldlega út á það að
mönnum eigi að leyfast allt, svo framarlega
sem þeir ganga ekki á rétt annarra manna.
Hvað viðkemur Darwin og hans þankabrot-
um þá vil ég taka það fram að lögmál frjáls-
hyggjunnar er ekki lögmál frumskógarins, eins
og svo rnargur einfeldningurinn heldur. Kenn-
ing frjálshyggjunnar er sú siðlegasta og réttlát-
asta kenning sem smíðuð hefur verið. Hún
er allt of skynsamleg til að komast nokkurn
tímann í framkvæmd. En hvað um það.
Eflaust hef ég einhvern tímann fengið komma-
grillur þegar ég var á mínu strákslega breyt-
ingarskeiði. Þá hef ég vafalaust fengið
einhverja sósialska hugljómun en sem betur
fer óx ég upp úr henni eins og trúarbrögðun-
um.
Annars er ég ekki eins og úrillur leigubíl-
stjóri, það er einungis einn texti þar sem ég
blóta dálítið hraustlega. Hins vegar getur ver-
ið að það sé einhver árátta hjá manni að vega
upp á móti þessari ægilegu hamingju sem er
að sprengja landann. Ég er að lesa það í
skýrslum að þetta sé hamingjusamasta þjóð
í heimi, sé að fara yfir um úr ást, umhyggju
og yndisauka. Ég veit hins vegar að þessi
hamingja getur varla verið sprottin upp úr
því að við búum i því sem kallað er velferðar-
þjóðfélag. Ef þetta er velferðarþjóðfélag þá
myndi ég skrifa það með eins litlu vaffi og
hægt er, nánast alveg ósýnilegu. Ég myndi
eiginlega heldur kalla þetta helferðarþjóð-
félag. Við köllum þetta lýðræðisþjóðfélag en
það cr það aðeins í orði kveðnu. Lýðræði
okkar er fólgið í því að velja á milli þess hvort
við dveljum í fangaklefa númer tíu eða ellefu.
Ég er hlynntur hugmyndum Bandalags jafn-
aðarmanna hvað viðkemur beinum kosning-
um og þær eiga ekki að bindast eingöngu við
forsætisráðuneytið. Samsteypustjórnarfars-
mynstur ætti að afnema með öllu. Annaðhvort
á sá flokkur að drottna sem fær fiest atkvæði
eða að hver ráðherra sé kosinn sér. Ef fyrri
kosturinn yrði tekinn þá myndi okkar
heimskulega Alþingi leggjast af. Þótt einræði
gangi á skjön við frjálshyggjuna þá cr ég síst
mótfallinn sliku fyrirkomulagi, það einfaldar
alla ákvarðanatöku og tillögur eru ekki fimm
þúsund ár að komast i gegnum „kerfið".
Reyndar yrði þeim aðskotahlut um leið út-
rýmt í vissum skilningi. Eitt er víst, landi
verður ekki stjórnað af krafti með því barna-
Iega. brjóstumkennanlega lýðræði sem okkur
er sagt að við búum við.
Ég vil ekki segja að ég sé reiður ungur
maður. Ég er ungur maður en ég held að ég
sé ekki neitt óskaplega reiður, bitur, sár og
svekktur. nema livað þessi greindarskortur
almúgamannsins fer óskaplega i taugarnar á
mér. Þar með eru táldir ráðhcrrar og slíkir
34 VIKAN 29. TBL