Vikan - 16.07.1987, Blaðsíða 44
Vikan — böm
Sex ára
myndlistarmaður
Flestir krakkar hafa mjög
gaman af að teikna og um
daginn hittum við stelpu sem
er alltaf teiknandi en ætlar
samt að verða hárgreiðslu-
kona þegar hún verður stór.
„Mér fmnst alveg nóg að
mamma sé teiknari," svaraði
Þórdís Þorvaldsdóttir þegar
við spurðum hana um það.
Ljósmyndin af henni, sem
við fengum til að birta í blað-
inu, er ekki alveg ný. Nú er
Þórdís rneð styttra hár. „Mér
finnst klippingin mín ekkert
flottf' sagði hún ákveðin og
tók nokkur fimleikaspor.
Þórdís var alveg hissa á öll-
um spurningunum og mátti
ekkert vera að því að tala við
blaðamanninn. Hún sagðist
aldrei hafa verið spurð svona
mikið. En eftir að við höfðum
sagt henni hvernig blaðavið-
töl ganga fyrir sig sagði hún
að það væri i lagi að við
spyrðum sig í klukkutíma
enn.
En hvað gerir Þórdís annað
en að teikna? „Mér finnst
gaman^ að syngja,“ svarar
hún. „Ég syng aðallega þegar
ég er ein, til dæmis En lille
melodi úr söngvakeppninni.
Svo spila ég á píanó hjá
ömmu - stundum Meistara
Jakob, en það er nú ekki mjög
skemmtilegt lag. Svo á ég
leynistað heima og þar er
skemmtilegt að vera.“
En hvað finnst þér leiðin-
legast? „Að hafa ekkert að
gera,“ svaraði Þórdís og fór
á handahlaupum um stofuna.
En nú skulum við láta þessa
kátu stelpu i friði og skoða
heldur myndirnar hennar.
Þóntis
700 .
'&ÍK&VIIC J
f%7 ÍHftMÍ')
Fjölskyldumynd.
Kóngur og drottning.
Þórdis Þorvaldsdottir.
Kanína aö gefa ungunum sinum.
Myndarlegur hrafn meó ungana sína.
44 VIKAN 29. TBL