Vikan - 23.03.1989, Blaðsíða 22
BJOR
Skyggnst inn í þýsku þjóðarsálina:
AÐIÁ SÉR BJÓR
OG TAKA LAGIÐ
er jafnsjálfsagt og að vera til
í vinsælu þýsku sönglagi segir að það dásamlegasta í þessu lífi sé
að fá sér bjór og taka lagið. - En það er sannarlega ekki sama hvaða
bjór er drukkinn og hvernig. Smekkur fólks er misjafn á þessu sviði
sem og öðrum. Maður drekkur jú helst tegundina sem manni þykir
bragðast best. í Þýskalandi eru þær svo margar og mismunandi að
ómögulegt er að henda reiður á þeim.
Warsteiner bjór borinn fram af dökkri dís hjá Putz veitingamanni.
MYNDIR OG TEXTI:
HJALTI JÓN SVEINSSON
s
Iannan stað er ekki sama hvernig
bjórinn er borinn fram. Það er jafh-
vel fullyrt að flöskurnar undan hon-
um og glösin sem hann er drukkinn úr geti
gert gæfúmuninn. Sumir ganga svo langt
að segja að flöskumiðinn og vörumerkið
séu ekki síður mikilvæg atriði eigi bjórinn
að bragðast vel. Umbúðirnar verða að vera
aðlaðandi.
Tökum Warsteiner bjórinn sem dæmi.
Hann er einn sá vinsælasti í Þýskalandi,
auk þess sem hann er fluttur út til 10
landa. Jafhffamt því sem hann er mjög
góður vegur það þungt að allt sem honum
tengist er einkar aðlaðandi — eins og
glösin, merkimiðinn, vörumerkið, ein-
kunnarorðin, leturgerðin og liturinn á
stöfúnum.
Einkunnarorðin eru: Warsteiner — das
einzig wahre — eine Königin unter den
Bieren (hið eina sanna — drottning á með-
al bjóra).
Weissbier í Munchen
og Kölsch í Köln
Bjór hefúr verið drukkinn í Þýskalandi
um aldir og í tengslum við hann hafa orðið
til margs konar siðir og venjur. Drykkur
þessi á sinn sess í þýskri þjóðarsál. Þjóð-
verjar geta ekki gert sér það í hugarlund
hvernig það væri að lifa án hans.
Þýskaland skiptist í ein 11 sambands-
lönd sem hvert og eitt hefur eigin siði og
venjur á ýmsum sviðum mannlífsins. í
Bæjaralandi í Suður-Þýskalandi er önnur
bjórmenning en í Nordrhein-Westfalen
eða Schleswig-Holstein. Bæjararnir drekka
svokallaðan „hvítbjór" (Weissbier). Hann
er nokkuð þynnri en hinn hefðbundni
bjór sem við þekkjum. Af þeim sökum er
hann mest drukkinn úr stórum krúsum — í
hlutfalli við vínandann í honum og áhrifin.
Bæjararnir halda gjarnan miklar bjórveisl-
ur og mjög tíðkast að tjaldað sé yflr sam-
komuna. f slíkum tjöldum er glatt á hjalla
og freyðir þá bjórinn um hólf og gólf.
Á haustin er gleðin mest í Bæjaralandi
þegar haldin er hin svokallaða október-
hátíð í Múnchen. Þá innbyrðir fólk bjór í
lítravís úr hinum stóru krúsum. Sett eru
20 VIKAN 6. TBL. 1989