Vikan - 23.03.1989, Page 65
P05TURIHM
Mig langar
mest til að
fremja
sjálfsmorð
Kæri póstur!
Ég er alveg að farast! Ég
veit ekki livað ég vil, en
samt... Mig langar að 'byrja
með strák sem er einu ári
eldri en ég (ég er 15 ára).
Hann er sjúklegur en ekki
algjör súkkulaðigrís. Ég
þekki hann mjög lítið og
veit ekki hvort hann vili
hyrja með mér. Ég vil ekki
hara vera með strák í
nokkra daga, leyfa honum
að sofa hjá mér og svo er
allt húið okkar á milli.
Mér gengur ágætlega i
skólanum og á við engin
meiri háttar vandamál að
stríða heima íyrir. Ég á fáa
vini, en þeir sem ég á eru
skemmtilegir en ég get
ekki treyst þeim fyrir
neinu. Mig langar mest til
að fremja sjálfsmorð, en
þori það ekki. Ég er hrædd
við fólk og fer því sjaldan í
híó, diskótek eða þangað
sem fjölmenni er.
Það er alveg sama hvað
ég reyni að pæla í þessu
öllu og breyta, þá enda ég
alltaf á að hugsa um
sjálfsmorð. Ég er húin að
kynna mér allt um sjálfs-
morð og á pillur til að taka
inn. Ég gæti eins gert það
núna þegar ég lýk við að
skrifa þetta hréf, en ég ætla
samt að fresta því aðeins
og híða eftir svari.
Ein dauðvona
■ Eins og þú kannski
veist þá fyllist fólk — ungt
og gamalt - oft miklu
þunglyndi í skammdeginu.
Finnst allt ómögulegt, sér-
staklega það sjálft — þú get-
ur verið viss um að þú ert
ekki ein, sem huggar þig
kannski örlítið en hjálpar
þér náttúrlega ekki mikið.
Það sem þú þarfnast mest
nú er einhver verulega góð-
ur til að tala við og af hréf-
inu má ráða að þú treystir
foreldrum þinum ekki fyrir
því hvernig þér líður.
Veistu að þú getur hringt í
Rauða kross húsið og feng-
ið þar að tala við góða
manneskju sem hlustar á
allt sem þér liggur á hjarta,
gefið þér ráð og stuðning —
verið vinur hvenær sem er.
Þú þarft ekki að segja til
nafns frekar en þú vilt —
Rauða kross húsið og
starfsemin þar eru fyrir
allt ungt fólk í vanda. Þú
getur líka farið þangað og
hitt fólkið — Rauða kross
húsið er að Tjarnargötu 35
og síminn er 62 22 60. Á
meðan þér líður svona illa
þá skaltu gleyma strákn-
um í bili, enda er ekki mjög
gaman að vera samvistum
við niðurdregna mann-
eskju. Drífðu þig að tala við
einhvern strax — og hef-
urðu hugsað út í allt það
sem þú átt kannski eftir að
gera: Langar þig t.d. ekki
eítir 2-3 ár að fara í sumar-
frí til sólarlanda með vin-
konum þinum, eða á
sumarskóla einhvers
staðar erlendis, eða byggja
þig upp þar til þú ert veru-
lega ánægð með sjálfa þig
t.d. með því að fara á nám-
skeið hjá Modelsamtökun-
um þar sem þú lærir að
koma fram og hugsa um
úthtið og hæta kannski
enn hetur úr með því að
fara í líkamsrækt...
Vill meira
um álirif
tunglsins
Kæra Vika!
Gætuð þið nokkuð fundið
meira til að fræða okkur
um fulla tunglið? Ég hef
mikinn áhuga á þessu og er
sjálf hreinlega háð tungli,
því að flogaveiki sem ég
geng með virðist aðallega
gera vart við sig þegar
tungl kviknar og þegar það
er fullt — sem sé á stóra
straumi.
Ég hjó úti í hafi fyrir
nokkrum árum þar sem
maður var hreinlega háður
sj ávarföllunum og þá kom
þetta í ljós, annars hefði ég
kannski ekki uppgötvað
þetta enn. Öll mín hörn átti
ég á fullu tungli. Eins er ég
mjög hreytileg í skapi -
verð ör og undarleg á
tunglinu eða stóra straumi.
Læknirinn minn er hættur
að hlæja, að mér, því ég
hef vitni að þessu. Auk þess
þekki ég flogaveikt fólk
sem ég hef bent á þetta og
allir finna áhrifin.
Oft sýnist mér þetta
verka á þá sem í kringum
mig eru, t.d. rífast litlu
krakkarnir mínir helst
þessa daga — verða ör og
uppstökk. Flogaveikin
kemur fram um tveim til
þrem dögum fyrir timgl-
fýllingu og stendur þangað
til tunglið fýllist, þá losna
ég vtð hana. Þið vitið lík-
lega að í gamla daga var
talað um tunglsýki. Ég hef
sem sagt fundið áhrif
tunglsins á mitt líf. Skyldu
fleiri hafa fundið fýrir því
að eitthvað tmdarlegt ger-
ist í lífi þeirra á fullu tungli
og þegar það kviknar? Sjálf
held ég að það stjórni eða
geti ruglað einhverja
hormónastarfsemi í mann-
skepnunni. Meira um
tunglið og áhrif þess í Vik-
unni.
Vigdís.
■ Pósturinn þakkar ágæt-
is hréf og vonar að fleiri
láti frá sér heyra varaðandi
áhrif tunglsins á líf þeirra.
Á Vikunni er þegar farið að
safna og viða að sér meiri
fróðleik mn timglið og þeg-
ar komið er nóg í fróðlega
grein þá hirtum við meira
um þetta sígilda efni.
u
c
10
m
c
J0
1986 King Features Syndicate, Inc.
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
1. Glugginn er öðruvísi. 2. Orði breytt á vél. 3. Jakkinn er breyttur. 4. Glasið hefur
færst. 56. Orð vantar á vél. 6. Stólbak er hærra.
6. TBL1989 VIKAN 63